„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Baldur biður fjölskylduna afsökunar. „Ég harma óendanlega þann sársauka sem ég hef valdið“

Baldur biður fjölskylduna afsökunar. „Ég harma óendanlega þann sársauka sem ég hef valdið“

„Ég valdi að beita ofbeldi þetta kvöld sem hafði hræði­legar afleið­ingar og varð að harm­leik fyrir fjölda fólks sem aldrei verður bætt fyrir. Fyrir það er ég fullur iðr­unar og á ég þá einu ein­lægu ósk að saga mín geti orðið öðrum víti til varn­aðar.“
Þetta skrifar Baldur Ein­ars­son í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í gær­kvöldi.
Árið 2002 varð Baldur, Magnúsi Frey Svein­björns­syni að bana. Hann gaf út bók á dög­unum þar sem hann skrifar meðal ann­ars um kvöldið örlaga­ríka. Móðir Magnúsar, Þorbjörg Finn­boga­dóttir hefur síðan þá lýst reiði og sorg sem hún og fjöl­skyldan hafi þurft að þola eftir að þau heyrðu frá lýs­ingum Baldurs í bók­inni.
Hún hefur sagt að Baldur fari með ósann­indi í bók­inni og sýni ekki iðrun.

Birti Vísir yfir­lýs­ingu Baldurs en þar biður hann fjöl­skyldu Magnúsar afsök­unar.

„Í ljósi þeirrar umfjöll­unnar sem hefur verið um bók mína „Úr helj­ar­g­reipum“ í fjöl­miðlum síð­ustu daga vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Ég harma óend­an­lega þann sárs­auka sem ég hef valdið Þor­björgu Finn­boga­dóttur, fjöl­skyldu hennar og vinum með lýs­ingum mínum í bók­inni. Það var aldrei ætlun mín að særa þau meira en orðið er og það voru mis­tök af minni hálfu að hafa ekki sam­band við þau áður en ég rit­aði kafl­ann sem fjallar um þann sárs­auka sem ég olli þeim.

Ég var valdur að dauða Magnúsar og vil ég á engan hátt draga úr ábyrgð minni í því máli.

Fang­els­is­dóm­ur­inn var ekki mín refs­ing. Það var miklu frekar sárs­auk­inn, skömmin og sekt­ar­kenndin sem fylgir því að vera valdur að dauða ungs manns í blóma lífs­ins, með til­heyr­andi harmi og óbæt­an­legum missi fyrir fjöl­skyldu hans og vini.

Ég hélt lengi vel að þessi megna van­líðan sem ég lifi með væri mín afplánun, en hún er í raun dag­leg áminn­ing fyrir mig um þá ábyrgð sem ég ber á gjörðum mínum og afleið­ingum þeirra. Ég átta mig á að það er aldrei hægt að bæta fyrir það að taka líf ein­hvers en það eina sem ég get gert er að gera mitt besta til að nota reynslu mína til að hjálpa öðrum af villi­götum.

Síðustu fjórtán ár ævi minnar hef ég í ein­lægni reynt að nýta þessa hræði­legu reynslu til að hjálpa öðrum og þannig reynt að koma í veg fyrir að mín skelfi­legu mis­tök verði end­ur­tekin af öðrum.

Það var aldrei, er ekki og mun aldrei verða ætlun mín að firra mig af nokk­urri ábyrgð og ég harma að ég hafi ekki verið nógu skýr í end­ur­sögn minni á þessum skelfi­lega atburði.

Ég valdi að beita ofbeldi þetta kvöld sem hafði hræði­legar afleið­ingar og varð að harm­leik fyrir fjölda fólks sem aldrei verður bætt fyrir. Fyrir það er ég fullur iðr­unar og á ég þá einu ein­lægu ósk að saga mín geti orðið öðrum víti til varn­aðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins