„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Askasleikir opnar sig á einlægan hátt: „Ég er alls ekki hræddur við mömmu“

Askasleikir opnar sig á einlægan hátt: „Ég er alls ekki hræddur við mömmu“

Hann er nokkur hund­ruð ára gam­all, fer í bað einu sinn á ári en það er auð­vitað fyrir jólin. Askasleikir segir hér meðal ann­ars frá fjöl­skyld­unni, híbýl­unum, hve nútím­inn gerir allt auð­veld­ara fyrir þá bræður fyrir jólin og hann talar um erlenda sam­keppni svo sem jóla­svein­inn í rauðu föt­unum. Hann ljóstrar því meira að segja upp hvert upp­á­hald­s­jóla­lagið hans sé.

Hann er til­tölu­lega nýkom­inn til byggða. Skærblá augun full af visku og fróð­leik. Lífs­reynslu. Glettni.

Hann er svo­lítið skítugur en maður veltir því ekki mikið fyrir sér þegar um íslenskan jóla­svein er að ræða, enda búinn að fara langan veg til byggða og það í alls konar veðri og færð.

Röddin er svo­lítið hrjúf.

Hend­urnar grófar. Sterk­legar. Sigg á fingrum.

Skemmdar tennur.

Askasleikir er sjötti jóla­sveinn­inn. Hann kemur til byggða 17. des­em­ber miðað við þá röð þeirra bræðra sem birt er í Þjóð­sögum Jóns Árna­sonar frá 1862.

Hann segir móral­inn í hópnum vera góðan.

„Færri vita að við erum 77 systk­inin í heild­ina, þó svo að 13 okkar séu fræg­astir. Með öðrum orðum er bað­her­bergið oft þétt setið, bæði dollan og speg­ill­inn.“

Hann brosir svo skín í skemmdar tenn­urnar.

Hver vill ráða? Hver er frekastur? Hver er ljú­fastur?

„Það er kannski dálítið erfitt að gera upp á milli systk­ina sinna en Hurða­skellir er í það minnsta háværastur og flestir hræddir við hann. Hann er samt mjúkur inni við beinið. Við Ket­krókur og Kerta­sníkir erum svo afskap­lega góðir vinir. Þeir eru báðir voða­lega vina­legir og dálítið krútt­legir, Ket­krókur með fín­hreyf­ingar upp á 10 og Kerta­sníkir tryggir kerta­ljósin heima ár eftir ár.

Það er kannski dálítið erfitt að gera upp á milli systk­ina sinna en Hurða­skellir er í það minnsta háværastur og flestir hræddir við hann

Til útskýr­ingar þá hafa 77 nöfn birst í gegnum ald­irnar, stundum sam­nefni eins og Giljagaur og Froðu­s­leikir og svo Hurða­skellir og Faldafeykir. Svo má vera að ég hafi ekki fengið að kynn­ast þeim öllum og jóla­svein­arnir týnst í gegnum ald­irnar. Í dag eru allir löngu hættir að nota aska svo ég hef velt því fyrir mér að kíkja upp í Þjóðskrá og læt þau breyta nafn­inu mínu í Tupperware-sleiki eða Doll­us­leiki.“

Svo má vera að ég hafi ekki fengið að kynn­ast þeim öllum og jóla­svein­arnir týnst í gegnum ald­irnar. (Mynd: Róbert Reyn­is­son.)

Katla og Hekla gusu

Askasleikir segir að þeir bræður hafi alltaf viljað halda því dálítið leyndu hvenær þeir fædd­ust. „Okkar var þó fyrst getið í Grýlu­kvæði séra Stefáns Ólafs­sonar frá 17. öld en þá vorum við þegar farnir að láta að okkur kveða.“

Svo má geta þess að Jóhannes úr Kötlum kvað um Askasleiki.

Sá sjötti Askasleikir,

var alveg dæma­laus.

Hann fram undan rúmunum

rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti ask­ana

fyrir kött og hund,

hann slung­inn var að ná þeim

og sleikja á ýmsa lund.

(Jóhannes úr Kötlum)

Askasleikir er spurður um fyrstu minn­ing­una. Hann horfir til him­ins: Stjörn­u­rnar skína skært á ann­ars kolsvörtum des­em­ber­himn­inum.

„Upp­vaxt­ar­árin voru nú heldur fábrotin. Við systk­inin áttum völu­skrín og geymdum í því leik­föngin okkar sem voru skeljar úr fjör­unni, kjálka­bein sem var hestur, tábein sem voru kindur og völu­bein sem voru kýr.“

En hvað er svo eft­ir­minni­leg­ast frá æsku­ár­unum?

„Eft­ir­minni­leg­ast er þegar ég gekk upp allt fjallið, þar sem við bjuggum, með sleð­ann okkar systk­in­anna í eft­ir­dragi. Þegar á topp­inn var komið sett­ist ég á sleð­ann og hall­aði mér yfir fjalls­brún­ina. Ég fór svo hratt, örugg­lega á 1.000, að ég missti stjórn á sleð­anum, kastað­ist af honum og stakkst inn í snjó­skafl. Jóla­kött­ur­inn þef­aði mig upp og Giljagaur gróf mig svo upp.“

Það var ekki allt dans á rósum á æsku­árum Askasleikis.

„Veð­ur­farið var afskap­lega slæmt í upp­hafi 17. aldar. Það var alveg ískalt. Lítið veidd­ist af fiski og upp­skeran var ekki góð heldur. Í þokka­bót var eld­gos, Katla gaus tvisvar með stuttu milli­bili og Hekla rétt á eftir og svo voru fleiri gos þessa öld­ina. Þetta varð til þess að við héldum okkur eins mikið inni í helli og mögu­legt var.“

Í þokka­bót var eld­gos, Katla gaus tvisvar með stuttu milli­bili og Hekla rétt á eftir og svo voru fleiri gos þessa öld­ina

For­eldrar jóla­svein­anna, Grýla og Leppalúði, eru frægir. Jafnvel frægir að endemum.

„Fæstir vita að Grýla og Leppalúði eiga bara 20 börn saman. Mamma átti fyrir mann­inn Bola og bjuggu þau undir Arin­hellu og kynnt­ist hún Leppalúða eftir að Boli dó. Ég er ekki alveg viss um hve gömul mamma er, en ég veit að á hana er minnst í Snorra-Eddu sem er um 800 ára gömul. Mamma er því hörð í horn að taka, mik­ill kven­skör­ungur og kallar ekki allt ömmu sína. Pabbi er með svo lúin bein að hann er að mestu rúm­liggj­andi. Mamma stýrir því öllu á heim­il­inu.

Ég er alls ekki hræddur við mömmu, en ég vil hlýða henni, ann­ars verð ég stundum hræddur, en hún er góð móðir. Pabbi er kóngur allra pabba­brand­ara en gefur ann­ars lítið af sér og sést sjaldan. Ég velti stundum fyrir mér hvort hann þyk­ist vera svona slappur til þess að sleppa við hús­verkin.“

Pabbi er kóngur allra pabba­brand­ara en gefur ann­ars lítið af sér og sést sjaldan

Grýla virð­ist elda og Askasleikir segir að íslensk kjöt­súpa sé upp­á­halds­mat­ur­inn sinn.

„Hún er nefni­lega best upp­hituð og nokk­urra daga gömul, rétt eins og mat­ur­inn í ask­inum; afgangar. Askurinn er mjög sér­stakt fyr­ir­bæri sem Íslend­ingar hafa notað um aldir. Hér áður fyrr voru margir sem bjuggu í litlum húsum og ekki pláss fyrir alla að borða við mat­ar­borðið. Allir áttu þá sinn ask sem fólk fékk mat­inn sinn í og sat svo í rúm­inu sínu og borð­aði. Það var því eins og skál úr timbri með áföstu loki sem fólk borð­aði upp úr með skeið.“

Hvað með heim­kynnin? Heimilið?

„Ég reyni stundum að leggj­ast í dvala eins og birn­irnir gera, en næ yfir­leitt ekki nema viku eða tveimur í senn og vakna þá yfir­leitt við hrot­urnar í systk­inum mínum. Við nýtum tím­ann vel til und­ir­bún­ings fyrir aðvent­una, syngjum saman jóla­lög og þjóð­vísur, spilum á fjöl­breytt hljóð­færi, förum í leiki, æfum töfra­brögð og förum svo á stúf­ana annað slagið til að kanna hvort það séu ekki allir að hegða sér vel. Lífs­stíll­inn er fábreyttur en við eigum í okkur og á og fyrir það erum við þakk­lát. Við fáum oft­ast góðan mat, dass af sæt­indum og svo þetta gamla góða, laufa­brauð og hangi­kjöt, skyr og bjúgu. Þið þekkið þetta.“

Blaða­maður veltir því fyrir sér hvort jóla­sveinar geti átt áhuga­mál eins og mann­fólkið. Hvað segir Askasleikir?

„Þið hafið heyrt lagið Kerti og spil, ekki satt? Spilin eru þar inni vegna mín, ég er nefni­lega svo oft að sýna spilagaldra. Ég ákvað ungur að ég ætl­aði að verða töfra­maður þegar ég yrði stór og nú eru spilin og töfra­sprot­inn aldrei langt undan og er ómissandi þáttur á jóla­böllum og ann­ars staðar þar sem við erum með lengri heim­sóknir. Ég vinn nú hörðum höndum að því að kenna systk­inum mínum eitt­hvað örlítið svo þau geti í það minnsta reddað sér.“

Ég ákvað ungur að ég ætl­aði að verða töfra­maður þegar ég yrði stór og nú eru spilin og töfra­sprot­inn aldrei langt undan og er ómissandi þáttur á jóla­böllum og ann­ars staðar þar sem við erum með lengri heim­sóknir. (Mynd: Róbert Reyn­is­son.)

Góð samkeppni hjálpar

Mannanna börn hér á landi þekkja flest íslensku jóla­svein­ana. En hvað ef maður snýr dæm­inu við? Hver er fyrsta minn­ing Askasleikis varð­andi mann­fólkið?

„Ég sá fólk sem líkt­ist mér, en var samt ein­hvern veg­inn allt öðru­vísi, kannski svipað og þið hugsið þegar þið sjáið mig; mjög líkur ykkur, en samt svo öðru­vísi. Ég ólst auð­vitað upp í kringum mjög mörg systk­ini en átti ekki marga vini utan systk­ina­hóps­ins svo mér fannst mjög gaman að hitta fólk, spjalla og læra um það hvernig það gerir hlut­ina.“

Ég sá fólk sem líkt­ist mér, en var samt ein­hvern veg­inn allt öðru­vísi, kannski svipað og þið hugsið þegar þið sjáið mig; mjög líkur ykkur, en samt svo öðru­vísi

Askasleikir segir að þau séu að fara að nálg­ast 400 skiptin sem hann hefur farið til byggða fyrir jólin.

„En þá tel ég ekki með skiptin sem ég hef skot­ist til byggða til að sækja mat, kaupa í skó­inn eða skoða nátt­úru­undur. Ég lét mig ekki vanta að eld­gos­inu í Geld­inga­dölum.“

Jóla­svein­arnir þurfa að und­ir­búa sig vel áður en þeir halda til byggða fyrir jólin og þá er eins gott að hafa allt á hreinu.

„Þetta er reyndar orðið svo þægi­legt í dag. Við höfum fyrst sam­band við Þjóðskrá og fáum upp­lýs­ingar hjá þeim um fjölda barna og búsetu. Það eru svo góðar versl­anir sem opna fyrir okkur á nótt­unni til að kaupa inn gjaf­irnar. Ef við komum að tómu rúmi verður uppi fótur og fit og þá hef ég oft sam­band við bræður mína sem vinna rann­sókn­ar­vinn­una og kom­ast að því hvar barnið og skór þess sé nið­ur­kom­inn. Svo eru það blessuð jóla­böllin sem hefur verið heldur lítið af síð­ustu tvö ár. Við fáum gott und­ir­bún­ings­tíma­bil og æfum okkur á hljóð­færin, lærum töfra­brögð og vinnum í nýjum atriðum frá miðjum jan­úar til loka nóv­em­ber. Þá þjófstörtum við aðeins og kíkjum til byggða þegar vel liggur á og hátíða­höld hefj­ast.“

Við höfum fyrst sam­band við Þjóðskrá og fáum upp­lýs­ingar hjá þeim um fjölda barna og búsetu

Áður en hann heldur til byggða passar Askasleikir upp á að vera búinn að fara í árlega jóla­baðið. „Ég reyni líka að kíkja í klipp­ingu annað slagið. Ég lét klippa á mig „mul­let“ í ár, þið vitið, „business in the front, party in the back“. Það er víst í tísku núna. Ég legg svo áherslu á heið­ar­leika, góð sam­skipti og þjón­ustu­lund í öllu sem ég geri.“

Það er búið að vera nóg að gera að und­an­förnu.

„Við mamma höfum verið í Jóla­þorp­inu í Hafn­ar­firði alla sunnu­daga í aðventu og verðum fram að jólum og við Kerta­sníkir höfum svo verið að heim­sækja Húsa­smiðj­una um helgar. Þess á milli eru nokkur jóla­böll, barna­af­mæli, fjöl­skyldu­boð og versl­anir.“

Hvað með erlenda sam­keppni; jóla­svein­inn í rauðu föt­unum?

„Í gamla daga klædd­umst við gömlum, íslenskum fötum og vorum með skott­húfu. Rauði jóla­sveinn­inn varð ekki vin­sæll fyrr en upp úr 1930 en hann var líka stundum í grænum galla. Kók hafði lík­lega mikil áhrif á lit­inn og vin­sældir rauða jóla­sveins­ins og hægt og rólega fórum við að breyt­ast líka. Allt í einu áttu Íslend­ingar 13 rauða – amer­íska – jóla­sveina sem flestir líta eins út og gefa allir í skó­inn. Mér finnst nóg komið af þessu og ég legg mig fram við að ná aftur fram þessum gömlu karakt­er­ein­kennum sem lík­lega ein­kenn­ast af íslensku ull­inni. Við höfum því und­an­farið klæðst ull­ar­sokkum, rauðum buxum og lopa­peysu og verið með rauða jóla­húfu með skúf í stað­inn fyrir þessa kúlu sem flestir eru með. Lopa­peysan er svo lengi að þorna að ég þvæ hana vel fyrir aðvent­una og svo strax eftir ára­mót. Ég á svo fleiri lopa­peysur til skipt­anna. Buxurnar eru hins vegar fljótar að þorna þegar ég legg þær við eld­stæðið hennar mömmu; ég verð bara að passa að það kvikni ekki í þeim. Við leggjum líka mikla áherslu á að vel sjá­ist í and­litin okkar, bæði enni og augu, því það auð­veldar per­sónu­leg tengsl,“ segir Askasleikir og brosir svo mikið að brosið nær alla leið til skær­blárra augn­anna.

Mér finnst nóg komið af þessu og ég legg mig fram við að ná aftur fram þessum gömlu karakt­er­ein­kennum sem lík­lega ein­kenn­ast af íslensku ull­inni

„Flest lönd eru með sína eigin útgáfu af jóla­svein­inum. Úkra­ínski jóla­sveinn­inn er til dæmis bara einn og heitir Faðir Frosti og er í síðum kufli, stundum rauðum, stundum bláum og stundum í öðrum litum. Við erum alls ekki í sam­keppni við erlenda jóla­sveina en þurfum stundum að leið­rétta mis­skiln­ing. Íslensku jóla­svein­arnir eiga sem dæmi ekki fljúg­andi hrein­dýr.“

Askasleikir hugsar sig um í smá­stund. Lokar aug­unum en opnar þau svo aftur og heldur áfram.

„Hvað varðar íslensku jóla­svein­ana þá erum við mjög margir og erum kannski í smá inn­byrðis vin­sælda­keppni um hver sé í upp­á­haldi, en þetta er alltaf jákvæð sam­keppni. Góð sam­keppni hjálpar öllum að ná lengra og gera betur, sem er mjög jákvætt.“

Mannanna börn tengja ýmis lög við íslensku jóla­svein­ana. Askasleikir á sjálfur upp­á­hald­s­jóla­lag.

„Þó svo að ég haldi mikið upp á gömlu, íslensku jóla­lögin er ég mjög hrif­inn af ítalska smell­inum sem Helgi Björns gerði frægan, Ef ég nenni, en það lag syng ég alltaf mjög reglu­lega. Alltaf þegar ég fer í bað.“

Jóla­svein­arnir geta verið hrekkj­óttir og Askasleikir á sér draum.

„Mig langar að bæta upp fyrir slæma for­tíð og vera börnum, og gamla fólk­inu, gott for­dæmi. Ég geng sem dæmi alltaf með end­ur­skins­merki á mér núna svo ég sjá­ist nú örugg­lega. Mig langar líka að setja á svið sýn­ingu, kannski alvöru töfra­sýn­ingu, einn dag­inn.“

Draumar. Draumar geta verið alls konar. Askasleikir segir frá draumi sem hann dreymdi nótt­ina áður en við­talið var tekið.

„Mig er alltaf að dreyma ein­hverja vit­leysu. Í nótt dreymdi mig að ég hefði verið búinn að gefa um helm­ing barna í skó­inn þegar ég upp­götv­aði að pok­inn hafði verið tómur frá upp­hafi og að allir skór væru enn tómir. Ég hafði bara heim­sótt alla en ekk­ert skilið eftir. Það var gott að dreyma þetta bara; það hefði verið verra ef það hefði gerst í alvör­unni.“

Það eru þessi karakt­er­ein­kenni. Per­sónu­leiki.

„Ég myndi lýsa mér sem vina­legum og góð­hjört­uðum jóla­sveini þó svo að ég geti stundum verið dálítið stríð­inn, en það er bara á góðan hátt. Það má eng­inn meið­ast eða sær­ast. Ég hef auð­vitað tekið miklum breyt­ingum frá því fyrr á öldum, en í dag kann ég alla mannasið­ina, ég nota þá bara ekki alltaf.“

Ég myndi lýsa mér sem vina­legum og góð­hjört­uðum jóla­sveini þó svo að ég geti stundum verið dálítið stríð­inn, en það er bara á góðan hátt

Jóla­sveinn­inn er spurður hvað jólin séu í huga hans.

„Þó svo að mér finn­ist vera gaman að fá gjafir þá finnst mér vera enn betra að gefa gjafir. Það er nefni­lega sælla að gefa en þiggja. Nægju­semi er samt eitt­hvað sem fleiri mættu til­einka sér og njóta og gleðj­ast yfir litlu hlut­unum í líf­inu. Jólin eru þó fyrst og fremst tími kær­leika og friðar. Mér finnst voða gott að setj­ast við eld­stæðið heima með fjöl­skyld­unni og nokkrum vinum og verja góðum tíma saman. Því miður eru ekki allir sem finna frið á þessum tímum eða eiga fjöl­skyldu að gleðj­ast með. Þá er gott að geta lagt sitt af mörkum til að gera líf þeirra betra. Við fjöl­skyldan finnum okkur góðan stað til að verja aðfanga­dags­kvöldi á og bjóðum nokkrum fjöl­skyldu­vinum að vera með okkur. Við erum svo mörg hvort sem er að það munar varla um nokkra rassa. Við eldum saman, eða þau okkar sem ekki fara í heim­sóknir á aðfanga­dag, og svo slökum við bara á, njótum sam­ver­unnar og svo ætla ég að stýra kviss-keppni fyrir þennan góðan hóp. Við heim­sækjum svo fjölda fólks í fjöl­skyldu­boðin þess á jóla­dag og alveg fram að ára­mótum.“

Jólin eru þó fyrst og fremst tími kær­leika og friðar

Mig langar að bæta upp fyrir slæma for­tíð og vera börnum, og gamla fólk­inu, gott for­dæmi. Ég geng sem dæmi alltaf með end­ur­skins­merki á mér núna svo ég sjá­ist nú örugg­lega. (Mynd: Róbert Reyn­is­son.)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

viðtal

Hugvíkkandi efni hjálpuðu Unni í skilnaðinum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“
Menning

Hug­víkk­andi efni hjálp­uðu Unni í skiln­að­inum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“

Unnur Gunn­ars­dóttir segir að hug­víkk­andi efni hafi gjör­breytt lífi sínu. Nýjast gestur þátt­ar­ins Segðu mér á Rás 1, sem er í umsjón Sig­ur­laugar M. Jón­as­dóttur, er Unnur Helga Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Bak­arís­ins Jóa Fel og fyrr­ver­andi eig­in­kona Jóa Fel en hún fer þar meðal ann­ars yfir skiln­að­inn og hug­víkk­andi efni sem hún segir að hafi breytt lífi sínu. Eftir tæp­lega...
Ragnar Freyr segir læknastarfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefninn er ekki í lagi“
Menning

Ragnar Freyr segir lækna­starfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefn­inn er ekki í lagi“

Ragnar Freyr Ingv­ars­son læknir seg­ist ganga stoltur frá verk­efni sínu sem yfir­maður göngu­deildar Covid. Ragnar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að það að vinna við að hafa líf fólks í hönd­unum geti verið erfitt. Jafnvel þó að læknar hafi gert allt sitt sé mjög erfitt að horfa upp á sjúk­linga versna af sjúk­dómum eða deyja: „Þegar...
Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið
Innlent

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föð­ur­hlut­verkið

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins er engin annar en metal­haus­inn, vegan­inn, fem­inist­inn, sam­göngu­hjól­ar­inn og fað­ir­inn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhuga­maður um rokktón­list og segir hann í við­tal­inu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörð­inni í gegnum hina ýmsu öldu­dali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og...
Kannabis mætir skorti á blóðvökva – Viðtal við sérfræðing á sviði líftækni og læknisfræði
Menning

Kannabis mætir skorti á blóð­vökva – Viðtal við sér­fræð­ing á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði

„Árleg áætluð eft­ir­spurn eftir blóð­vökva hefur verið um 160 millj­ónir lítra en um 100 millj­ónum lítra hefur ekki mætt,“ segir Dr. Pavel Kubů, sér­fræð­ingur á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði, en fyr­ir­tæki hans, Plasma for People, hefur þróað tækni sem gæti gjör­bylt heil­brigð­is­kerf­inu eins og við þekkjum það í dag. Kubů sem er með dokt­ors­próf í lækn­is­fræði frá Charles háskól­anum í...
Fjölskyldufaðir tekst á við stórt áfall með plötuútgáfu: „Þú stýrir ekki vindinum …“
Menning

Fjöl­skyldu­faðir tekst á við stórt áfall með plötu­út­gáfu: „Þú stýrir ekki vind­inum …“

Atli Þór Sig­urðs­son greind­ist með heila­æxli í fyrra en hann stendur nú fyrir söfnun inni á Karolina Fund svo hann geti gefið út tvær plötur með frum­sömdu efni. Atli Þór, sem verður 39 ára á þessu ári, vinnur sem for­rit­ari hjá Bláa Lóninu og hefur gert það síðan 2021. Er hann alinn upp í Breið­holt­inu en hefur búið í Graf­ar­vogi...
Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum
Innlent

Íslend­ingar ættu að hefja afglæpa­væð­ingu strax – Minnkar umsvif glæpa­hópa og bjargar manns­lífum

„Þjóðir heims verða að reglu­væða vímu­efni til þess að ná aftur stjórn­inni. Vímuefni geta verið vara­söm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heim­sótt er auð­veld­ara fyrir börn að kaupa ólög­leg vímu­efni en áfengi og tóbak,“ segir leynilög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Neil Woods í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en Woods hélt erindi á alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu