„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ragnar Freyr segir læknastarfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefninn er ekki í lagi“

Ragnar Freyr segir læknastarfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefninn er ekki í lagi“

Ragnar Freyr Ingv­ars­son læknir seg­ist ganga stoltur frá verk­efni sínu sem yfir­maður göngu­deildar Covid. Ragnar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að það að vinna við að hafa líf fólks í hönd­unum geti verið erfitt. Jafnvel þó að læknar hafi gert allt sitt sé mjög erfitt að horfa upp á sjúk­linga versna af sjúk­dómum eða deyja:

„Þegar maður er í þeirri stöðu að vera með líf fólks í hönd­unum vonar maður alla daga að maður séu nógu góður í starf­inu sínu til að geta hjálpað fólki í gegnum erf­ið­leika. Það er rosa­lega erfitt þegar illa fer, þó að maður hafi gert sitt allra besta. Það er hluti af starf­inu að það fer ekki alltaf allt vel. Stundum fara hlut­irnir illa þó að maður hafi reynt allt sitt og það er gríð­ar­lega erfitt og getur tekið mikið á. Maður lærir að takast á við það, en það er alltaf rosa­lega sárt ef sjúk­ling­arnir manns verða verri af veik­indum eða ef þeir deyja.“

Ragnar hefur um ára­bil bæði starfað sem sjálf­stætt starf­andi læknir, en einnig inni á Lands­spít­al­anum. Hann fékk það verk­efni að vera yfir­maður göngu­deildar Covid á for­dæma­lausum tímum og seg­ist ein­læg­lega þeirrar skoð­unar að það verk­efni hafi heppn­ast mjög vel:

„Covid göngu­deildin er eitt­hvað sem ég tók þátt í að byggja upp ásamt öðrum og það er dæmi um mjög vel heppnað verk­efni. Þá er ég bara að tala um Covid göngu­deild­ina. Ég átta mig á því að fólk hefur alls konar skoð­anir á aðgerðum hins opin­bera í heild. En þetta til­tekna verk­efni var bæði mjög gef­andi en líka krefj­andi. Það var ömur­legt en frá­bært á sama tíma. Við reistum bein­línis göngu­deild á einni viku og hún virk­aði. Öll töl­fræði­leg gögn sýna að þetta verk­efni dró veru­lega úr væntum inn­lögnum og þar með skaða í heild. Þarna fengu heil­brigð­is­starfs­menn að vera með skap­andi lausnir og stýra sjálfir. Við sýndum það að við gátum það þegar okkur var leyft að vinna vinn­una okkar eins og við vildum,“ segir Ragnar og heldur áfram: 

„Ég ætl­aði ekki að fara að tala mikið um Covid í þessum þætti, en mín skoðun er sú að margir hafi gleymt því hvaða hætta var aðsteðj­andi um mán­að­ar­mótin febr­úar/mars 2020. Það dóu 6 þús­und manns bara í Bergamó á Ítalíu á sex vikum. Það búa 120 þús­und manns í borg­inni og 500 þús­und í öllum sveit­unum í kring. Við eigum 26 gjör­gæslu­rými. Við þurfum að spyrja okkur hvað ger­ist í kerfi þar sem öll gjör­gæslu­rými eru full og allar önd­un­ar­vélar upp­teknar. Út frá þessu voru allar okkar ákvarð­anir teknar og fólk má ekki gleyma því. Það er auð­velt að vera vitur eftir á, en ég er á því að okkur hafi tek­ist mjög vel til miðað við allar for­sendur.“

Ragnar hefur talað tals­vert um heil­brigð­is­kerfið á Íslandi opin­ber­lega og það hag­ræði sem hljót­ist af því að ýta undir sjálf­stætt starf­andi lækna:

„Það hefur verið einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu á Íslandi í meira en 100 ár. Það hafa alltaf verið sjálf­stætt starf­andi læknar á Íslandi og umræðan um þessi mál er oft mjög skökk. Sjúk­lingar sem koma til sjálf­stætt starf­andi lækna eru eins tryggðir og þeir sem fara inn í opin­bera kerfið. Það vill eng­inn á Íslandi að kerfið okkar verði eins og í Banda­ríkj­unum og það er eng­inn af kol­legum mínum með neinn áhuga á því að við búum til kerfi þar sem hinir ríku borga sig fram­fyrir hina. En sjálf­stætt starf­andi læknar eru mjög góðir í að veita mikið af ákveð­inni þjón­ustu fyrir minna fjár­magn ef þeir eru nýttir rétt. Það er bein­línis best fyrir Lands­spít­al­ann okkar ef sjálf­stætt starf­andi læknar og einka­fram­kvæmd geta létt á spít­al­anum. Þá getur hann betur kjarnað sitt hlut­verk og sinnt því sem hann á að sinna. En það er búið að sá enda­laust af efa­semda­fræjum í opin­berri umræðu og af stjórn­mála­mönnum. Umræðan hefur oft verið færð á miklar villi­götur, en í mínum huga ættum við öll að geta verið sam­mála um að lyk­ill­inn að lausn­inni sé að besta bæði opin­bera kerfið og sjálf­stæða starf­semi lækna. Þannig virkar kerfið best og skatt­pen­ing­arnir nýt­ist eins vel og mögu­legt er,“ segir Rangar, sem segir ekk­ert laun­ung­ar­mál að heil­brigð­is­kerfi séu orðin þyngsti útgjalda­liður margra þjóða og Ísland þar engin und­an­tekn­ing:

„Heil­brigð­is­kerfi er í eðli sínu mjög flókið. Hver ein­asti sjúk­lingur er ein­stakur og þess vegna er alls ekki ein­falt að búa til hið full­komna kerfi. Ofan á það bæt­ist svo gríð­ar­leg aukn­ing í lífs­stíls­sjúk­dómum og meira ef eldra fólki, sem þýðir að heil­brigð­is­kerfi víða um heim eru orðin gríð­ar­lega þung í rekstri. Við höfum aug­ljós­lega haft kerfið of mikið þannig að kerfið tekur við fólki eftir að skað­inn er skeður. Sjúk­dóma­kerfi en ekki heil­brigð­is­kerfi. En á meðan við vindum ofan af því þurfum við í raun að gera allt. Bæði auka við allt sem snýr að lýð­heilsu, hreyf­ingu, nær­ingu og svefni og for­varnir. En að sama skapi verðum við að efla eins og við getum að vinna með fólkið sem þegar er komið með sjúk­dóma. Ef við ætlum að ná árangri verðum við að gera bæði í einu.“

Ragnar seg­ist telja að við sem sam­fé­lag þurfum að gera allt sem við getum til þess að vekja fólk til vit­undar um að taka ábyrgð á hlutum sem snúa að eigin heilsu. Eitt af því sem hann nefnir í þætt­inum er mik­il­vægi svefns:

„Ég segi oft við skjól­stæð­inga mína að það verði allt verra ef svefn­inn er ekki í lagi. Það skiptir engu máli hvað hrjáir þig. Hvort sem það er gigt­ar­sjúk­dómur,  hjarta­vanda­mál, lang­vinnir verkir, kvíði eða þung­lyndi, þá verða allir þessir sjúk­dómar verri ef svefn­inn er ekki í lagi. Þú þolir allt miklu verr, allt álag, áreiti og áskor­anir í líf­inu. Það er ótrú­lega mik­il­vægt að sinna svefn­inum vel. Halda reglu­legri rútínu og virki­lega leggja sig fram um að hafa þessa hluti í eins miklu lagi og mögu­legt er. Eins er mik­il­vægt að fólk sem er að kljást við kvilla og sjúk­dóma vinni með nátt­úr­unni. Hvort sem það er birtu­stig, veð­ur­far eða jafn­vel loft­þrýst­ingur. Sam­fé­lagið okkar ætl­ast til þess að við eigum að vera eins allt árið, sem er í raun mjög furðu­legt, miðað við hvað það er gríð­ar­legur munur á árs­tíð­unum á Íslandi. Það er ekki endi­lega eðli­legt að vinnu­staðir og skólar byrji á sama tíma á dimmasta tíma árs­ins eða þeim bjartasta. Hluti af því að vera eins heil­brigður og mögu­legt er, er að skilja eigin lík­ama og gera réttar teng­ingar til þess að geta lifað eins góðu lífi og mögu­legt er,“ segir Ragnar, sem segir mik­il­vægt fyrir lækna að raun­veru­lega hlusta á skjól­stæð­inga sína og gefa sér að upp­lif­anir fólks séu sannar og réttar:

„Það sem fólk segir manni er ekki rangt. Þegar fólk segir manni sínar upp­lif­anir á maður sem læknir að ganga út frá því að það sé að segja satt. Það er mitt sem læknis að reyna að skilja hvað þau eru að reyna að segja mér. Það heppn­ast auð­vitað ekki alltaf, en það er mik­il­vægur hluti af starfi lækna.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Ragnar og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kúltúrinn

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“
Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugn­an­legar lík­kistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

DJ Khaled er orð­inn nýj­ast stjarnan til að fá afhenta óhugn­an­lega lík­kistu heim til sín í Flórída. Áður hafði Tekashi 6ix9ine fengið slíka send­ingu á höfð­ingja­setur sitt nokkrum dögum fyrr. Hin óhuggu­lega lík­kista var send að heim­ili Khaleds í Miami síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, af tveimur mann­eskjum sem keyrðu trukki til örygg­is­varðar, og sögð­ust vera frá send­ing­ar­fyr­ir­tæki, sam­kvæmt lög­reglu­skýrslu. Eftir að þeim...
Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans
Menning

Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tím­ans

Tón­list­ar­mað­ur­inn Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína á morgun en nafn hennar er Rykfall. Rykfall, þriðja breið­skífa Myrkva, er afrakstur margra ára vinnu. Hún er sjálf­stæð­asta verk lista­manns­ins til þessa en nán­ast hvert smá­at­riði plöt­unnar er spilað eða útsett af honum. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu var mark­miðið að skapa eitt­hvað sem gæti stað­ist tím­ans tönn. Platan fjallar um að leggja allt undir...
Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza
Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórn­ar­lömb þjóð­ar­morðs­ins á Gaza

Stór­tón­leikar verða haldnir í Háskóla­bíói laug­ar­dag­inn 1. mars kl. 14:00. Ágóði af miða­söl­unni rennur í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza. Laug­ar­dag­inn 1. mars efni Félagið Ísland-Palest­ína til stór­tón­leika í Háskóla­bíó þar sem fram koma Bubbi, GDRN, Friðrik Dór, Jón Jónsson, KK og Ellen og hljóm­sveitin FLOTT! Samkvæmt frétta­til­kynn­ing mun ágóði af miða­sölu renna í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza sem stofnað var...
The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“
Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tíma­lausum smellum og anda kán­trítón­listar“

Fyrir fjöru­tíu árum, árið 1985, varð kán­trítón­listar saga sköpuð þegar fjórir af bestu tón­lista­mönnum allra tíma, Johnny Cash, Waylon Jennings, Willie Nelson og Kris Kristoffer­son, komu saman til að stofna The Highwaymen. Samstarf þeirra var sam­stundis far­sælt, leiddi til upp­seldra tón­leika, toppplatna og var­an­legrar arf­leifðar sem mót­aði fram­tíð kán­trítón­listar. Kraft­mik­ill og hjart­næmur hljómur þeirra ómaði um allan heim og nú,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza