„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fótur Þórhalls prests kubbaðist í sundur: „Konan mín gat ekki hringt á hjálp“

Fótur Þórhalls prests kubbaðist í sundur: „Konan mín gat ekki hringt á hjálp“
Séra Þór­hallur Heim­is­son Mynd: Óðinn Jónsson

Þór­hallur Heim­is­son prestur fót­brotn­aði afar illa í göngu­skíða­slysi í Svíþjóð fyrir ári síðan og tók það langar tíma að jafna sig eftir brotið. Fótur hans kubb­að­ist í sundur og var hann lengi rúm­liggj­andi í kjöl­farið. Reynsla Þórhalls af sænsku heil­brigð­is­kerfi er upp á tíu sam­an­borið við íslenska kerfið.

Þór­hallur býr í Svíþjóð og er vanur göngu­skíða­maður. Fyrir tæpu ári fór hann með eig­in­konu sinni í ferð sem þau hjónin munu seint gleyma.

„Við Ingileif fórum í stutta göngu­skíða­ferð sem var svo lítið mál að við tókum ekki einu sinni sím­ana með okkur. En ég lenti í hálku og datt svona líka illa. Konan mín gat ekki hringt á hjálp, síma­laus en ég var svo hepp­inn að það kom þarna „mis­kunn­samur sam­herji“, ung kona með bleikt hár, nagla í gegnum nefið og finnskan hreim, sem var með síma. Hún gat hringt á sjúkra­bíl sem kom í skyndi Ég er ágæt­lega fær skíða­maður en í þess­ari ferð missti ég ein­beit­ing­una eitt augna­blik og datt þannig að fót­ur­inn kubb­að­ist í sundur. Ég lá alveg flatur í tvo mán­uði eftir fallið, gekkst undir aðgerð og kynn­ist sænska heil­brigð­is­kerf­inu mjög vel,“ segir Þór­hallur um atburð­inn.

Í sænska heil­brigð­is­kerf­inu var prest­inum íslenska vel sinnt:

,,Ég var fluttur á sjúkra­hús, fékk þar full­komna þjón­ustu, fór í aðgerð og þegar ég vakn­aði eftir fyrstu nótt­ina var mér réttur mat­seð­ill og mér boðið að velja og leið eins og ég væri á hót­eli. Eftir sjúkra­hús­vist­ina var ég fluttur heim með sjúkra­leigu­bíl og þegar ég kom heim var spít­al­inn búinn að útvega hjóla­stól, gera bað­her­bergið hæft fyrir sjúk­ling og heim­ilið hjóla­stóla­hæft, án þess að ég bæði um það. Allt var þetta ókeypis. Þannig er nú sænska vel­ferð­ar­kerfið, 100%. Á móti eru skattar þar auð­vitað tölu­vert hærri en hér“

Þór­hallur er nú orð­inn góður af brot­inu og eins og nýr. Hann seg­ist ann­ars reyna að hugsa vel um heils­una. Í ætt hans er hjarta­kvilli en faðir hans, Heimir Steins­son, lést fyrir aldur fram úr þeim kvilla. „Ég reyni því eins og ég get að huga að hreyf­ingu og matar­æði og umfram allt að hugsa jákvætt,“ segir Þór­hallur og brosir. „Ég tók til dæmis með­vit­aða ákvörðun þegar ég fót­brotn­aði, að nýta tím­ann í eitt­hvað jákvætt og upp­byggi­legt. Þetta var mark­viss ákvarð­ana­taka“ segir hann og hlær. „Hættan á að falla í svart­sýni og nei­kvæðni í slíkum aðstæðum er tölu­verð og ég vissi það. Ég skrif­aði því heila bók í rúm­inu, en hún heitir „Allt sem þú vilt vita um Biblíuna“

Heimild: Lifðu núna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins