Á meðan fréttir af ítrekuðu unglingaofbeldi í Grafarvoginum, jafnt gegn afgreiðslufólki verslana sem og gegn strætisvagnabílstjórum, hefur Anna nokkur fallega sögu að segja úr hverfinu. Í morgun mætti hinn eini sanni jólaandi á dyrapallin hjá henni.

Anna segir frá tilfinningum sínum í hópi hverfisbúa á Facebook. Þar segir hún atburðinn hafa komið sér skemmtilega á óvart:
„Tveir ungir og kurteisir drengir hringdu dyrabjöllunni hjá mér í morgun og spurðu hvort þeir mættu gefa mér þetta jólakort sem ég þáði en bjóst samt smá við að það væri eitthvað grín í gangi,“ segir Anna og heldur áfram:
„En svo kom í ljós að það var bara hreinn jólakærleikur. Á miðað við það sem er búið að vera í gangi undanfarið hérna í Grafarvogi tengt unga fólkinu þá langaði mig að deila þessum jákvæða pósti hingað.“Fjölmargir Grafarvogsbúar lýsa ánægju sinni yfir frásögn Önnu og fyllast þakklæti yfir framtaki ungu drengjanna. Hólmfríður er til að mynda ein þeirra. „Vá, en sætt,“ segir hún. Og Anna gladdist líka. „Þetta er fallegt,“ segir Anna.Linda, sem er móðir annars jóladrengsins, er greinilega mjög ánægð með færslu Önnu. „Hér er einn mjög glaður drengur sem sá þennan póst en hann var víst annar af þessum drengjum. Ánægður með að hafa glatt einhvern og að fá þökk fyrir,“ segir Linda.




















Athugasemdir