„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristinn er óvinnufær og á ekkert inni á reikningnum: „Gengur hægt að fyrirgefa sjálfum sér“

Kristinn er óvinnufær og á ekkert inni á reikningnum: „Gengur hægt að fyrirgefa sjálfum sér“
Kristinn Magn­ús­son

Kristinn Magn­ús­son hefur marga fjör­una sopið. Hann átti ánægju­lega æsku og honum gekk vel í skóla. Síðan kynnt­ist hann Bakkus en fyrir utan brenni­vínið var amfetamín og fleira dag­legt brauð – og þung­lyndi og kvíði hafa verið fylgi­fiskar hans í ára­tugi. Hvort kom á undan – neyslan eða and­leg van­líðan – er spurn­ing og hann líkir þessu við eggið og hæn­una. Kristinn kynnt­ist ljótum heimi í neysl­unni. Hann er óvinnu­fær, er 75% öryrki og seg­ist hafa búist við því áður fyrr að eiga sum­ar­bú­stað og fara í Kanaríferðir þegar hann kæm­ist á elli­laun. Lífið er alls konar.

Kristinn Magn­ús­son ólst upp í Hafn­arf­iði til 12 ára ald­urs, einn fjög­urra systk­ina. Fjöl­skyldan flutti svo á sveitabæ austur á Hérað þar sem þau bjuggu í fimm ár.

„Skóla­gangan var mjög fín. Mér gekk alltaf vel í skóla og þurfti aldrei að hafa fyrir námi. Það voru engin áföll í æsku eða neitt. Bara góð barn­æska. Ég var í heima­vist­ar­skóla fyrir austan og rann í gegnum allt nám eins og ekk­ert væri. Svo fluttum við aftur suður þegar ég var 17 eða 18 ára. Aftur í Hafn­ar­fjörð­inn. Þetta var allt bara svona ósköp venju­legt.“

Mér gekk alltaf vel í skóla og þurfti aldrei að hafa fyrir námi. Það voru engin áföll í æsku eða neitt. Bara góð barn­æska

Hvað með draumana á þessum árum?

„Ég sat ekki sem ung­lingur og dreymdi um að það væri best að verða öryrki þegar ég yrði eldri; hafa ekk­ert að gera og hafa það fínt heima eins og sumir halda að öryrkjar séu ein­hverjir sem vilji bara vera á örorku af því að þetta sé svo auð­velt líf. Ég var svo­lítið átta­villtur og vissi aldrei hvað ég vildi verða. Ég datt óvart inn í bif­véla­virkj­ann þegar ég var 17 eða 18 ára og fór að vinna við stand­setn­ingu á nýjum bílum um tví­tugt en mér hafði verið boðið að koma í nám á bíla­verk­stæði. Þá var ég búinn með dálítið í fjöl­braut og af því að ég átti alltaf svo auð­velt með að læra þá var ég búinn með öll þessi almennu fög. Ég vann í tvö eða þrjú ár á verk­stæð­inu og fór svo í iðn­skól­ann í eitt ár og kláraði bif­véla­virkj­ann á einu ári og vann svo við það lengi vel framan af.“

„Djélið“ eða dáinn?

Kristinn var 26 ára þegar hann kvænt­ist fyrri eig­in­konu sinni og eign­uð­ust þau tvo syni. „Við fluttum til Dan­merkur árið 1996 þar sem við bjuggum í þrjú ár og vann ég þar hjá Siemens sem var að fram­leiða vind­myllur.“

Kristinn hafði drukkið tölu­vert í gegnum árin og jókst drykkjan á árunum í Danmörku. „Þetta var alltaf að stig­magn­ast. Það var til nóg þar og bjór­inn kost­aði ekk­ert.“

Fjöl­skyldan flutti svo aftur til Íslands og skildu hjónin árið 2006. „Drykkja mín hafði stór áhrif á það. Ég var í fínu starfi á þessum tíma en ég var versl­un­ar­stjóri hjá Bíla­naust í Hafn­ar­firði og gekk mér ágæt­lega fyrir utan þessa drykkju og allt sem henni fylgdi.“

Ástin bank­aði aftur á dyrnar en Kristinn kynnt­ist annarri konu og fluttu þau til Dan­merkur og bjuggu þau þar í þrjú og hálft ár. Hann fékk aftur vinnu hjá Siemens og þar vann hann fram á vorið 2011.

„Árið 2010 var síð­asta árið sem ég var í fullri vinnu. Ég var að skoða þetta um dag­inn en ég var þá með um 15 millj­ónir í árs­laun á móti um 2,5 millj­ónum í dag sem ég fæ frá Trygg­inga­stofnun.“

Jú, drykkjan jókst alltaf og þung­lyndi og kvíði hafði mikil áhrif en Kristinn hafði fundið fyrir bæði þung­lyndi og kvíða síðan hann var á ung­lings­aldri.

„Ég er kvíða- og þung­lynd­is­sjúk­lingur með alls kyns and­lega kvilla,“ segir hann og nefnir einnig félags­fælni. „Þung­lyndið og kvíð­inn eru stóru punkt­arnir. Læknir spurði einu sinni hvort hefði komið á undan; alkó­hól­ism­inn eða þung­lyndið og kvíð­inn. Það er spurn­ing um eggið eða hæn­una; hvort kom fyrst. Þetta saman endar yfir­leitt ekki vel. Ég var líka orð­inn slæmur í skrokknum; bak­inu. Ég reyndi að fara að vinna árið 2011 eftir að ég flutti heim en ég var með súper með­mæli frá Dönunum en þá var ég kom­inn á það stig að ég bara treysti mér ekki lengur til að vinna út af drykkj­unni en ég drakk alltaf frá mér kvíð­ann og þung­lyndið.

Ég fór að vinna í vara­hluta­verslun bíla­um­boðs haustið 2011 en ég ent­ist fram að ára­mótum. Ég fór í mína fyrstu með­ferð um haustið; ég man að ég ætl­aði að taka það eins og skóla­göng­una: Mér fannst ég vera svo klár að ég þurfti eig­in­lega ekk­ert að vera að hlusta á hvað var sagt við mig í með­ferð­inni. Ég var svo far­inn að drekka einni eða tveimur vikum eftir með­ferð­ina. Þá tók við erf­iður tími. Ég leigði íbúð með pabba heitnum og af því að ég var skráður hjá honum þá fékk ég um 70.000 á mán­uði frá félags­þjón­ust­unni og var þá kom­inn út í miklu meira heldur en áfengi. Alls kyns rugl.“

„Alls kyns rugl“ segir hann.

„Ég var kom­inn mjög djúpt í neyslu á örvandi efnum; amfetamíni og kóka­íni. Þarna var ég kom­inn út í dag­drykkju. Ég drakk kannski eina til tvær tveggja lítra flöskur af 75% spíra og drakk svo bjór ofan í það líka; til að geta haldið út þá byrj­aði ég að taka þessi örvandi efni. Bara til að geta drukkið meira. Þau gerðu hins vegar ekk­ert nema að auka ennþá meira á kvíð­ann eftir að vera kannski búinn að vaka og drekka og taka í nefið í fimm til sjö sól­ar­hringa án þess að sofa; þá var maður orð­inn geð­veikur í hausnum.“

Ég var kom­inn mjög djúpt í neyslu á örvandi efnum; amfetamíni og kóka­íni

Kristinn er spurður hvað hafi verið það versta sem hann upp­lifði á þessum tíma.

„Ég veit það ekki. Það var svo margt. Það var stans­laust partí allan sól­ar­hring­inn allt árið. Alltaf fleira fólk. Ég vakn­aði oft upp við það eftir að vera búinn að sofa í nokkra tíma að það voru ein­hverjir stumr­andi yfir mér og var púls­inn á mér kannski kom­inn í 240 slög á mín­útu og var talað um að hringt yrði á sjúkra­bíl en ég var þá kannski kom­inn með verk niður í vinstri hand­legg­inn og var nátt­úr­lega bara í hjarta­á­falli. Það eru svona minn­ingar sem eru einna verstar; þegar maður var við það að fara. Það var hins vegar alltaf sama svarið hjá mér: Réttið mér bjór­inn eða flösk­una. Þá slokraði maður í sig áfengi og þá fann maður hvernig púls­inn fór niður. Svo var bara haldið áfram.

Ég sá nátt­úr­lega mikið af alls kyns ljótum hlutum sem ég vil helst ekki vera að rifja mikið upp.“

Þögn.

„Þetta er mjög ljótur heimur og hefur ekki skánað síðan.“

Kristinn er spurður hvernig hann hafi fjár­magnað neysl­una.

„Á þessum tíma var ég með rúm­lega 70.000 krónur frá félags­þjón­ust­unni og ég gerði bara það sama og margir fíklar gera: Ég kom mér í góð sam­bönd og fékk amfetamín á góðu verði og þá tók maður helm­ing­inn fyrir sjálfan sig og þynnti hitt út og svo seldi maður vinum og kunn­ingjum. Það var aðal­tekju­lindin. Það gerði það að verkum að rjóm­inn af götum bæj­ar­ins var nán­ast búandi heima hjá mér. Það eru nokkrir af þeim látnir og svo aðrir sem sitja inni. Svo eru nokkrir sem eru edrú og eru í góðum málum í dag.“

Ég kom mér í góð sam­bönd og fékk amfetamín á góðu verði og þá tók maður helm­ing­inn fyrir sjálfan sig og þynnti hitt út og svo seldi maður vinum og kunn­ingjum

Kristinn seg­ist ekki hafa kom­ist í kast við lögin. „Lög­reglan var nán­ast líka fasta­gestur. Þeir komu oft. Ann­að­hvort út af hávaða eða þá að þeir voru að leita að ein­hverjum sem þurftu að koma í skýrslu­töku. Þeir vissu alveg hver ég var og hvað var í gangi en það voru aldrei neinar kærur eða annað á mig. En það voru þarna menn sem voru nátt­úr­lega góð­kunn­ingjar lög­regl­unnar sem vissi alveg hvar hægt væri að leita að þeim.“

Kristinn sér eftir mörgu. „Ég held að það gangi hæg­ast hjá manni að fyr­ir­gefa sjálfum sér að leyfa þessu að ganga svona langt. Jú, á þessum árum missti ég nátt­úr­lega allt sam­band við ætt­ingja og börnin mín. Maður gat ekki boðið þeim upp á að heyra í manni í alls konar ástandi; en það hefur sem betur fer lag­ast allt og ég á góða stór­fjöl­skyldu sem studdi mig um leið og ég fór að gera eitt­hvað í mínum málum. Þegar svona er þá er aðal­lega við mann sjálfan að sakast. Þó mér hafi ekki fund­ist ég vera að gera neinum mein þá veit ég í dag að það er fullt af fólki sem þykir vænt um mig sem var kannski með enda­lausan kvíða­hnút og áhyggjur af því hvenær sím­hring­ingin kæmi um að ég væri kom­inn í „djé­lið“ eða dáinn. Maður var ekk­ert að pæla í því á þessum tíma. Það var bara „láttu mig í friði með mitt – ég er ekk­ert að meiða neinn annan en mig“.

Ég held að það gangi hæg­ast hjá manni að fyr­ir­gefa sjálfum sér að leyfa þessu að ganga svona langt

Sendi bréf til þingmanna

Kristinn fór í með­ferð á Vogi í febr­úar 2012 og datt í það fjót­lega eftir að hann kom úr með­ferð­inni. „Svo hringdi í mig vinur minn sem býr úti á landi sem var með véla­verk­stæði; hann vildi endi­lega að ég kæmi og hætti þess­ari vit­leysu. Ég var í nokkrar vikur hjá honum. Svo gekk það ekk­ert lengur. Brenni­vínið kall­aði á mig og var ég oft lengi í burtu og kom svo hálf­slomp­aður til baka og var í nokkra daga að jafna mig. Það var ekki hægt að bjóða neinum vinnu­veit­anda upp á það. Það er ekki væn­legt til árang­urs að flytja eitt­hvert til ađ verða edrú; það þarf aðeins meira til.“

Kristinn fór aftur í með­ferð árið 2013 og var edrú í tæp þrjú ár eftir það en treysti sér ekki í fasta vinnu. „Ég vann svo­lítið sjálf­stætt í bíla­við­gerðum árið 2015. Ég hélt ég gæti meikað þetta ef ég réði mér sjálfur en um leið og álagið fór að aukast þá kikn­aði ég undan því. Kvíðinn fór upp úr öllu valdi sem og þung­lyndið og ég réð ekki við öll verk­efni og end­aði á því að byrja að drekka. Það var ekki nema um hálft ár sem ég var að drekka og gerði ég það aðal­lega til að drepa niður van­líðan, þung­lyndi og kvíða. Þegar rann af manni þá bloss­aði kvíð­inn upp og það af tvö­földum þunga. Það var ein­fald­ast að halda áfram að drekka.“

Kristinn fór svo í enn eitt skiptið á Vog árið 2016 og hefur verið að mestu edrú síðan.

„Ef ég á að vera alveg heið­ar­legur þá hafa reyndar komið kvöld síð­asta einn og hálfa mán­uð­inn sem ég hef fengið mér einn eða tvo bjóra. Það er út af þess­ari vondu líðan sem ég hef verið að upp­lifa að und­an­förnu. Ég hef ekki haft hátt um þetta en ég veit að margir ætt­ingjar og vinir hafa haft miklar áhyggjur af mér um að ég myndi lenda á sama stað og áður.“

Kristinn hafði kynnst núver­andi eig­in­konu sinni, Heiðdísi Ýr, árið 2015. Hann segir að hún hafi líka átt við fíkni­vanda að stríða og bjuggu þau á áfanga­heim­ili til að byrja með sem var svo lokað. „Við fluttum til Vest­manna­eyja haustið 2016 af því að vinur minn þar átti íbúð sem við gátum fengið leigða. Þar byrj­aði ég í end­ur­hæf­ingu hjá VIRK og var í alls kyns sál­fræði­við­tölum og sjúkra­þjálfun til að reyna að koma mér í gang. En það var svo full­reynt eftir um eitt og hálft ár. Ég fékk þá end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri á meðan sem er svipuð upp­hæð og örorku­bætur. Það var svo úrskurðað að end­ur­hæf­ing væri ekki að skila árangri og ekki þannig að ég væri hæfur til að fara út á vinnu­mark­að­inn. Þá setti lækn­ir­inn í gang ferli um að sækja um örorku­bætur. Kerfið virk­aði þannig að á meðan ég var að bíða eftir úrskurði frá Trygg­inga­stof­unun þá fékk ég um 20.000 krónur á mán­uði í bætur af því að ég var kvæntur: konan mín, öryrk­inn, átti að sjá fyrir mér líka. Fólki er alltaf ein­hvern veg­inn refsað í kerf­inu fyrir að gifta sig en örorku­bætur kon­unnar voru reikn­aðar inn í þetta.“

Þar byrj­aði ég í end­ur­hæf­ingu hjá VIRK og var í alls kyns sál­fræði­við­tölum og sjúkra­þjálfun til að reyna að koma mér í gang

Úrskurður Trygg­inga­stofn­unar kom svo. Kristinn var dæmdur 50% öryrki. „Mig minnir að þetta hafi verið um 33.000 krónur á mán­uði. Það þykkn­aði í mér og ég skrif­aði bréf til allra alþing­is­manna þar sem ég lýsti þessu. Þetta rataði reyndar í fjöl­miðla og þá fór eitt­hvað í gang. Ég veit ekki hver gerði hvað en það var alla­vega hringt í mig og strax farið í að end­ur­meta þetta og þá var ég sem sagt dæmdur bara 75% öryrki.“

Bréfið:

Vest­mann­eyjum, 22.mai, 2018

Ágæti þing­maður.

Í aðdrag­anda síð­ustu alþing­is­kosn­inga var nokkuð rætt um bága stöðu öryrkja vegna þeirrar stað­reyndar, að örorku­bætur ná ekki lág­marks fram­færslu­við­miðum.
Það sem var þó mest rætt varð­andi stöðu þessa hóps voru þær órétt­látu skerð­ingar, stundum kallað “krónu á móti krónu”, sem þessi lægst setti hópur þjóð­fé­lags­ins þarf að þola ef ein­hver inn­koma kemur ann­ars staðar frá.

Flestir ef ekki allir fram­bjóð­endur og flokkar voru sam­mála um órétt­lætið sem í þessu kerfi felst og lof­uðu allir að láta sig málið varða þegar inn á þing yrði komið. Nú er mai næstum á enda og ekk­ert hefur verið gert.
Ástæða þess að ég skrifa þetta bréf nú er að í dag fengu öryrkjar sinn árlega glaðn­ing, útreikn­ing vegna árs­ins 2017. Þá kemur í ljós hverjir eiga að borga TR til baka vegna skerð­inga­lög­gjaf­ar­innar sem þinn vinnu­staður, Alþingi, hefur ákveðið.

Hér er mín saga til að hjálpa þér að glöggva þig á hvernig þessi lög, sem þú og þinn vinnu­staður getið breytt, virka í mínu til­felli:

Ég hef verið óvinnu­fær í 7 ár vegna sjúk­dóms. Síð­ast­liðin 3 ár hef ég verið í end­ur­hæf­ing­ar­úr­ræðum og fengið end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri sem er 204.000 útborg­aður á mán­uði.
Um síð­ustu ára­mót var ljóst að ég yrði ekki vinnu­fær aftur í bráð og þ.v. sótti ég, í byrjun Janúar, um örorku­bætur til TR. Sú umsókn varð til þess að ég fékk síð­ast greiddan end­ur­hæf­inga­líf­eyri 1.febr­úar.
Þar sem ég beið úrskurðar varð­andi örorku mína leit­aði ég til félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins um fjár­hags­að­stoð. Þar voru svörin að vegna þess að ég er giftur, þá ætti ég rétt á 20.000 krónum til fram­færslu, vegna tekna konu minnar. Rétt er að taka fram að konan mín er öryrki og fær vegna hjú­skap­ar­stöðu sinnar, 204.000 útborgað. Þessi mis­munun er nátt­úru­lega aug­ljóst brot á jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár­innar, en sam­þykkt af Alþingi.

Þegar loks kom nið­ur­staða frá TR varð­andi örorku­um­sókn mína var nið­ur­staðan sú að ég, algjör­lega óvinnu­fær, er met­inn með 50% örorku, og fæ því 33.168 kr á mán­uði til fram­færslu!
Þar sem þessi nið­ur­staða dugði ekki til að hrekja mig í sjálfs­morð, þá er reynt að reka enda­hnút­inn á það ætl­un­ar­verk með bréf­inu sem mér barst í dag. Þar kemur fram að ég skuldi TR 480.000 sem mér beri að greiða til baka innan 12 mán­aða. Hvernig ég á að fara að því með mínum 33.168 kr á mán­uði er mér hulin ráð­gáta.

Þetta er sá raun­veru­leiki sem ég lifi við, sem ég geri mér grein fyrir að er fjar­lægur þér, sem vænt­an­lega þiggur yfir milljón á mán­uði úr sama rík­is­sjóðnum og ég fæ 33.168 kr.

Því vil ég spyrja þig:

  1. Ætlar þú per­sónu­lega að berj­ast fyrir því að þessum ólögum um almanna­trygg­ingar verði breytt strax, eins og lofað var af öllum flokkum fyrir kosn­ing­arnar á síð­asta ári?
    2. Munt þú beita þér fyrir að skerð­ing­arnar sem öryrkjar búa við verði afnumdar með lögum á Alþingi, áður en þið farið í sum­ar­frí?
    3. Ætlar þú að beita þér fyrir að hætt verði að mis­muna fólki eftir hjú­skap­ar­stöðu innan almanna­trygg­inga­kerf­is­ins og hjá sveit­ar­fé­lögum, sem er brot á stjórn­ar­skránni?

Bréf þetta mun ég senda á alla þing­menn sem sæti eiga á alþingi. Einnig mun ég birta það opin­ber­lega á Facebook og hugs­an­lega í fjöl­miðlum. Ég vænti svars fyrir 10.júní en þá mun ég einnig birta hverjir hafa svarað mér og hugs­an­lega útdrætti úr svörum.

Virð­ing­ar­fyllst,
Kristinn Magn­ús­son”

VARÚÐ!!! Gríðarlega niðurdrepandi status

Kristinn og Heiðdís Ýr leigja gam­alt, lítið ein­býl­is­hús á Ólafs­firði og eiga tvo hunda. Hann segir að leigan sé 140.000 krónur á mán­uði. Hann seg­ist hafa fengið um 180.000 krónur útborg­aðar á mán­uði en hann tekur fram að hann fékk um 700.000 krónur í ein­greiðslu frá líf­eyr­is­sjóðnum á sínum tíma og að það hafi lækkað greiðsl­una frá Trygg­ina­stofnun en nú er hún að kom­ast í 200.000 krónur á mán­uði. Þá fær hann um 40.000 frá líf­eyr­is­sjóðnum á mán­uði og hefur sótt um bætur frá Danmörku og von­ast til að það gangi í gegn. Hann segir að eig­in­kona sín fái um 150.000 krónur útborg­aðar á mán­uði.

„Við erum heppin að búa á litlum stað úti á landi þar sem fólk þekk­ist og það er nátt­úr­lega ekk­ert mikið um að vera; við erum ekki að leyfa okkur neinar tóm­stundir eða þess háttar. Það eru engin veislu­höld á heim­il­inu. Við erum heppin þar sem ég þekki trillu­sjó­menn þannig að við höfum yfir­leitt haft nóg af fiski. Svo förum við yfir­leitt í kringum hver mán­aða­mót til Akur­eyrar til að versla í Bónus. Við höfum ekki liðið neinn skort í mat en maður er ekk­ert að leyfa sér eitt­hvað mikið. Maður er ekk­ert á veit­inga­stöðum um hverja helgi. Það er helst þessar dag­legu vörur sem okkur hefur vantað stundum ef mjólkin og brauðið hafa klár­ast og þetta sem maður er að kaupa. En að öðru leyti hefur þetta alveg gengið.

Við erum heppin þar sem ég þekki trillu­sjó­menn þannig að við höfum yfir­leitt haft nóg af fiski

Svo höfum við stundum fengið lánað hjá vinum og kunn­ingjum þegar við höfum orðið mjög aðkreppt. Það þarf nátt­úr­lega að borga það til baka og þá er maður ennþá kreppt­ari. Við höfum tekið smá­lán til að bjarga okkur.“

Kristinn talar um tann­lækna­kostnað en hann fór ekki til tann­læknis lengi en svo fór að það hefur þurft að fjar­lægja skemmdar tennur á síð­ustu tveimur árum.

Hjónin eiga sitt­hvorn bíl­inn. Kristinn seg­ist hafa keypt bíl þegar hann fékk ein­greiðsl­una frá Trygg­inga­stofnun og svo fengu þau bíl gef­ins.

Hvað með fjár­hags­á­hyggjur í bland við þung­lyndi og kvíða? „Það verður eng­inn bati á meðan. Ég hef verið á lyfjum á tíma­bilum hjá lækn­inum en hann setur mig á þung­lynd­is­lyf sem vinna aðeins á þung­lynd­inu þannig að dýf­urnar eru ekki eins slæmar. En þegar maður er alltaf með áhyggjur af hvernig hlut­irnir verða þá verður eng­inn bati.“

Kristinn skrif­aði nýlega færslu á Facebook sem vakti athygli og var minnst á hana í nokkrum fjöl­miðlum. Þetta skrif­aði birti hann 14. des­em­ber:

VARÚĐ!!!    Gríđ­ar­lega niđ­ur­drep­andi status…

Margir vina minna hafa haft sam­band viđ mig þar sem þau hafa tekiđ eftir und­ir­lyggj­andi þunga og myrkri í færslum mínum og laga­vali und­an­fariđ.

Ég er mjög þakk­látur ykkur öllum sem hafiđ sýnt mér umhyggju.

Máliđ er ađ ég hef lengi glímt viđ bæđi þung­lyndi og kvíđa en náđ ađ halda mér fljót­andi á jákvæđni og hjálp­semi viđ ađra (asna­legt ađ tala um eigin hjálp­semi).

Þennan mán­uđinn hefur álagiđ ein­fald­lega veriđ of mikiđ og ég hef þurft ađ berj­ast af hörku viđ eigin niđ­ur­drep­andi hugs­anir.   

Sem betur fer hef ég Heiđdísi mína, sem reynir eftir megni  ađ benda mér á ljósu hliđ­arnar. En hún hefur sjálf ekki getađ hreyft sig nema staul­ast á hækjum milli her­bergja, eftir ađ hùn slasađist á hné. (U.þ.b. mán­uđur síďan og loks tími í seg­u­l­ómun á morgun)

Eftir síđ­ustu mánađa­mót var ekk­ert eftir á reikn­ing­unum okkar, og enn ógreiddir reikn­ingar..

Viđ höfum fengiđ smá ađstođ frá vinum og ætt­ingjum til ađ kaupa mat og litla pakka fyrir yngstu börnin hennar. Fyrir þađ erum viđ mjög þakk­lát.

Þannig er stađan og kannski skilj­an­legt ađ kall­inn sé ekk­ert dans­andi af gleđi ađ fara inn í hátíđ­arnar.

En kæru vinir sem nenntuđ ađ lesa til enda, viđ ykkur vil ég segja aď ég er ekki ađ biđja um vorkun eđa pen­inga, heldur ein­fald­lega ađ útskýra mína stöđu, þar sem ég vil heist ekki valda mínum nán­ustu áhyggjum  

Ég vil líka segja ađ ég hef gengiđ í gegnum verra og þađ birtir alltaf til. 😊

Læt fylgja mynd af „sparnađinum“ þennan mán­uđinn. 😉

Svona er lífiđ fyrir öryrkja í „Landi tæki­færana“ hans Bjarna Ben.

„If you’re going through hell,  keep going.)

(Winston Churchill)

„Ég hef meira verið í að birta brand­ara á Facebook; meira í að reyna að dreifa ein­hverjum brönd­unum til að létta manni upp en ég ákvað að skrifa þennan status og lýsa hvernig þetta væri. Ég var alls ekki að ætl­ast til þess að fólk færi að senda mér ein­hverja pen­inga. Ótrú­leg­asta fólk hefur hins vegar haft sam­band til að upp­örva og eins viljað styrkja okkur til að við getum haldið jólin. Bæði fólk sem við höfum verið í sam­skiptum við í dag og fólk sem ég var í sam­skiptum við fyrir 10 árum síðan og alveg aftur í fólk sem ég var með í skóla sem ung­lingur og sem ég hef næstum því ekki hitt í 40 ár.“

Þetta hefur glatt Kristin mikið.

„Maður á kannski ekki að segja það 54 ára gam­all bif­véla­virki en ég hef setið hérna og kjökrað. Mér finnst vera til ótrú­lega mikið af góðu fólki. Blá­ó­kunn­ugt fólk hefur haft sam­band síðan Mannlíf, Hring­braut, Frétta­blaðið og trolli.is birtu færsl­una. Ég átti alls ekki von á þessum við­brögðum. Ég vil endi­lega koma á fram­færi þakk­læti fyrir allt þetta; það eru svo margir sem hafa haft sam­band hvað varðar upp­örvandi orð, hvatn­ingu og svo hafa sumir gaukað ein­hverju að okkur. Við erum mjög þakk­lát. Maður er hálf­orð­laus; maður veit ekki hvernig maður á að láta. Kona nokkur sem er öryrki og á mann sem er atvinnu­laus vildi endi­lega leggja inn á mig 5000 krónur en ég sagð­ist ekki vilja taka síð­ustu krón­urnar af henni.

Ég lít á þetta eins og það eigi að skila skömminni. Skömmin er ekki öryrkj­ans að verða fyrir því að vera fatl­aður eða veikur heldur eru það stjórn­völd sem stýra því hvernig staðan er.“

Jú, lífs­leið Kristins Magn­ús­sonar er búin að vera grýtt lengi vel. Hvað hefur hann lært af þessu öllu?

„Ég held að fyrir það fyrsta ætti maður ekki að taka neinu sem gefnu. Ég var í fullri vinnu og hélt ég yrði gam­all maður sem myndi eiga sum­ar­bú­stað og sem færi í Kanaríferðir þegar ég færi á elli­laun. Svo getur lífið farið alla­vega. Þetta hefur aukið skiln­ing­inn og sam­kennd gagn­vart öllum. Það eru margir að glíma við sitt. Ég vona að þessi athygli sem ég fæ opni augu fleiri en það eru ekki allir á Íslandi sem hafa það rosa­lega fínt.“

Skömmin er ekki öryrkj­ans að verða fyrir því að vera fatl­aður eða veikur heldur eru það stjórn­völd sem stýra því hvernig staðan er
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu