Félagsbústaðir, sjálfstætt hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, hafa staðið í ólögmætum framkvæmdum við húsnæði sitt í Breiðholtinu svo mánuðum skiptir. Framkvæmdirnar eru alfarið leyfislausar og hefur félaginu verið sent kvörtunarbréf vegna málsins frá umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar.

Um er að ræða húsnæði Félagsbústaða við Írabakka 2-16 í Breiðholti. Hinar leyfislausu framkvæmdir hófust á vormánuðum og hefur þeim ekki verið lokið enn. Lóðin er ófrágengin og framkvæmdasvæðið girt af með girðingum. Að sögn íbúa svæðisins hefur lítið sem ekkert verið aðhafst þar í langan tíma.
Mannlíf leitaði til Nikulásar Úlfars Mássonar, byggingafulltrúa borgarinnar, í leit að svörum um hvort fyrir framkvæmdunum lægju tilsett leyfi. Erfitt reyndist að fá svar frá honum vegna málsins og það var ekki fyrr en Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, tók málið í sínar hendur sem skriður komst á það. Skrifstofa byggingafulltrúa fór í vettvangskönnun og niðurstaðan var sú að Félagsbústaðir væru ekki með leyfi fyrir framkvæmdunum. Byggingafulltrúi hefur síðan sent félaginu kvörtunarbréf vegna málsins.
Samkvæmt svörum frá borginni sóttu Félagsbústaðir síðast um leyfi vegna húsnæðisins í maímánuði 2012 en þá var sótt um leyfi til að skipta um glugga milli íbúða, til að stækka opnanleg fög í stofugluggum og klæða að utan með klæðningu. Síðan þá liggur ekkert leyfi fyrir til annarra breytinga eða framkvæmda og því ljóst að í vor var farið af stað með ólögmætum hætti með tilheyrandi raski fyrir íbúa.

Félagsbústaðir er sjálfstætt hlutafélag sem er í 100 prósenta eigu Reykjavíkurborgar. Markmið félagsins er að stuðla að velferð í Reykjavík með því að bjóða upp á hagstætt leiguhúsnæði fyrir þá sem búa við knappan fjárhag og kljást við félagslega erfiðar aðstæður. Félagsbústaðir eiga og reka yfir 2.200 íbúðir í Reykjavík.
Vegna fyrirspurnar Mannlífs um framkvæmdir Félagsbústaða í Breiðholti fór skilmálaeftirlit skipulagssviðs borgarinnar á stúfana. Annars vegar var skoðað hvort leyfi þyrfti fyrir framkvæmdunum og hins vegar hvort slíkt leyfi væri til staðar. Robert Pajdak, verkfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði, var meðal annarra í málinu:
„Ekki hefur verið sótt um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum á lóðinni. Starfsmaður byggingarfulltrúa skoðaði framkvæmdir á staðnum og lóðarhöfum hefur verið sent bréf vegna málsins,“ segir Robert.
Félagsbústaðir hafa áður verið í sviðsljósinu vegna áðurnefnds húsnæði í Breiðholti, þar sem hinar leyfislausu framkvæmdir standa yfir. Auðun Freyr Ingvarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Félagsbústaða, sagði af sér árið 2018 sökum 330 milljóna umframkostnaðar við framkvæmdir á húsnæðinu við Írabakka 2-16, á fjögurra ára tímabili. Kostnaður við framkvæmdirnar var upphaflega samþykktur 398 milljónir en endanlegur kostnaður var 728 milljónir.




















Athugasemdir