„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Listamenn og menningarviðburðir sem eftir var tekið á árinu!

Listamenn og menningarviðburðir sem eftir var tekið á árinu!
Samsett mynd

Íslenskt menn­ingar- og lista­líf hefur blómstrað á árinu sem aldrei fyrr þrátt fyrir miklar áskor­anir. Það hefur verið bæði kraftur í útgáfu og almennu and­rúms­lofti og því ekki úr vegi að menn­ing­ar­geir­anum sé fagnað sér­stak­lega. Árið var að mörgu leyti blóm­legt þrátt fyrir aug­ljósa erf­ið­leika vegna heims­far­ald­urs­ins.

Mannlíf tók saman yfir­lit yfir lista­menn og menn­ing­ar­við­burði sem hafa gert það gott á árinu. Úr mjög mörgu var að velja. Hér er yfir­lit yfir það sem okkur fannst vekja lukku. Lista­menn­irnir eru birtir í staf­rófs­röð.

Birki Blær Óðinsson söngv­ari

Birkir Blær, söngv­ari Mynd.Skjáskot/RÚV

Birki Blær Óðinsson fór með sigur af hólmi í sænska Idolinu í des­em­ber, en hann keppti á móti Jacqline Mossberg Mounkassa. Sigri í keppn­inni fylgir útgáfu­samn­ingur við Uni­ver­sal auk pen­inga­verð­launa.

Úrslita­keppnin fór fram í beinni útsend­ingu á TV4 í Svíþjóð þar sem sýnt var frá Globen-höll­inni í Stokk­hólmi.

Í fyrri umferð­inni söng Birkir Blær lagið Sign of the time eftir Harry Styles og í síð­ari umferð­inni Are you gonna be my girl sem Jet gaf út árið 2003. Birkir virt­ist eiga erfitt með að muna texta þess lags í upp­hafi en hélt svo ótrauður áfram.

Birkir keppti við söng­kon­una Jacqueline Mossberg Mounkassa í úrslit­unum föstu­dag­inn 10. des­em­ber í Avicii Arena sem margir þekkja sem Globen.

Birkir Blær söng alls þrjú lög í keppn­inni. Eitt sem hann hefur áður sungið, eitt lag með Adele og svo síð­ast lagið Weightless sem var sér­stak­lega samið fyrir loka­keppn­ina, en hann og keppi­nautur hans, Jacqline Mossberg Mounkassa, sungu það báðir. Sig­ur­veg­ar­inn í keppn­inni fær lagið gefið form­lega út að henni lok­inni.

Birkir Blær er að norðan og vakti þjóð­ar­at­hygli á Íslandi þegar hann keppti fyrir hönd Mennta­skól­ans á Akureyri árið 2018 og sigr­aði með lag­inu I put a spell on you. Lilja Alfreðs­dóttir, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, afhenti honum verð­laun.

Ljóst er að Birkir Blær á fram­tíð­ina fyrir sér í tón­list en sem sig­ur­veg­ari hlýtur hann að launum plötu­samn­ing við hina virtu Uni­ver­sal-útgáfu.

BÍDDU BARA!

Bíddu Bara í Gafl­ara­leik­hús­inu. Mynd.Skjáskot/RÚV

Gam­an­leik­ritið er eftir stór­stjörn­urnar Sölku Sól Eyfeld, Selmu Björns­dóttur og Björk Jak­obs­dóttur sem leiða saman hryssur sínar í fyrsta sinn.  

Verkið er ein­lægt, beitt og fyndið sem fjallar um raun­veru­leika íslenskra kvenna; um vonir og drauma, bit­ur­leika og frú-stra­sjónir, upp­eldi, kvíða og hvítvín. Þær Björk, Salka Sól og Selma  byggja verkið á sinni eigin reynslu og draga ekk­ert undan en ljúga hell­ing. Þetta er verk um íslenskar konur, samið af íslenskum konum og fyrir íslenskar konur, hinsegin, kynsegin og allar hinar (og fyrr­ver­andi, núver­andi og til­von­andi maka sem þora að koma).

„Það má segja að þetta sé oln­boga-verk, því áhorf­endur munu skjóta oln­boga í sessu­naut­ana ótt og títt og hvísla: svona ert þú! Uppi­stand, leiksenur og söngur af bestu sort,“ segja þær.

Björk Orkestral – Live from Reykjavík

Björk, söng­kona. Mynd.Skjáskot/RÚV

Björk hélt sína fyrstu tón­leika af fjórum í tón­leika­ser­í­unni Björk Orkestral í Eldborg í Hörpu í októ­ber. Hún kom fram ásamt strengja­sveit Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands undir stjórn Viktors Orra Árna­sonar. Flutt voru lög af plöt­unum Post, Vespertine og Dancer in the Dark.

Tón­leik­arnir sem eru í umsjón Iceland Airwaves áttu upp­haf­lega að fara fram í ágúst á síð­asta ári en þeim þurfti að fresta vegna heims­far­ald­urs­ins.

Um er að ræða fyrstu tón­leika sem Björk heldur á Íslandi í þrjú ár og rennur hluti ágóða tón­leika­ser­í­unnar til Kvenna­at­hvarfs­ins. Tón­leik­arnir voru með ólíka dag­skrá og allir sína sér­stöðu.

Kjóll Bjarkar vakti mikla athygli en hann var hann­aður af jap­anska hönn­uð­inum Tomo Koizumi. Þá skart­aði Björk grímu og hring eftir hönn­uð­inn James Merry og eyrna­lokkum frá Aurum.

Brúðulistahátíðin (alþjóðleg)

Brúðu­lista­há­tíð. Mynd.Skjáskot/RÚV

Alþjóð­lega brúðu­lista­há­tíðin Hvamms­tangi International Puppetry Festival eða HIP Fest fór fram dag­ana 8.-10. októ­ber. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin og komu um á þriðja tug erlendra lista­manna frá átta löndum sem buðu upp á fjölda sýn­inga og vinnu­smiðja, auk fyr­ir­lestra og kvik­mynda­sýn­inga með umræðum við lista­menn­ina á eftir.

„HIP Fest er ein­stök við­bót í menn­ing­ar­líf lands­manna, enda eina brúðu­lista­há­tíð lands­ins,“ segir í til­kynn­ingu frá Hand­bendi – Brúðu­leik­hús núver­andi Eyr­ar­rós­ar­hafa. HIP Fest var valin menn­ing­ar­við­burður árs­ins á Norð­ur­landi vestra árið 2020.

„Þrátt fyrir veru­legar sam­komu­tak­mark­anir á hátíð­inni í fyrra tókst hún ein­stak­lega vel við mikla ánægju þátt­tak­enda og áhorf­enda. Brúðu­listin er fjöl­breytt og fornt list­form sem stöðugt haslar sér meiri völl í menn­ing­ar­lífi lands­ins. Á hátíð­inni má líta fjöl­breyttar sýn­ingar fyrir alla ald­urs­hópa, sem nýta sér öll blæ­brigði list­forms­ins,“ segir enn fremur í til­kynn­ing­unni.

Dj Dóra Júlía

Dj Dóra Júlía. Mynd.Skjáskot/RÚV

Plötu­snúð­ur­inn og fjöl­miðla­konan Dóra Júlía Agn­ars­dóttir hefur verið ráðin til Sýnar og fer hún af stað með sinn fyrsta þátt af Íslenska list­anum á FM957 á laug­ar­dag.

Í des­em­ber fer hún svo af stað með sjón­varps­þátt­inn Þetta redd­ast á Stöð 2. „Sjón­varps­þátt­ur­inn er við­tals­þáttur með afar óhefð­bundnu sniði á léttum, skemmti­legum og ein­lægum nótum,“ segir hún um þætt­ina sem fara af stað í des­em­ber.

Eysteinn Sigurðsson leikari

Eysteinn Sig­urðs­son leik­ari. Mynd.Skjáskot/RÚV

Hlutverk höf­uð­skúrks­ins í fjórðu seríu vík­inga­þátt­anna The Last Kingdom, sem eru nú í sýn­ingu á streym­isveit­unni Netflix, er í höndum Eysteins Sig­urðs­sonar sem lands­menn þekkja meðal ann­ars úr sjón­varps­mynd­inni Manna­siðum. Eysteinn fædd­ist í Reykja­vík en bjó lengst af í Madison í Wisconsin. Hann lærði ensku og skap­andi skrif við Uni­versity of Wisconsin áður en hann sneri sér að leik­list­ar­námi við Lista­há­skóla Íslands. Að námi loknu tók Eysteinn til starfa í Borg­ar­leik­hús­inu þar sem hann lék stór hlut­verk í upp­setn­ingum eins og Línu Langsokk, Hver er hræddur við Virginia Woolf? og Mamma Mia! Utan Íslands er hann þekkt­astur fyrir hlut­verk sín sem Hjálmar í sjón­varps­þáttum Baltasars Kormáks Ófærð og sem Sig­tryggr í Netflix-kvik­mynd­inni The Last Kingdom. Hér má Eystein í hlut­verki Sig­tryggr.

Fríða Ísberg rithöfundur

Fríða Ísberg rit­höf­undur. Mynd.Skjáskot/RÚV

Fríða Ísberg veltir upp áhuga­verðum sið­ferð­is­spurn­ingum í fyrstu skáld­sögu sinni sem ger­ist á Íslandi í náinni fram­tíð. „Það er verð­ugt verk­efni skáld­skapar að kanna mörkin á mann­legu atferli og reyna skilja hvernig þau geta verið á skjön við hug­myndir og hug­sjónir sem í sjálfum sér geta verið af hinu góða,“ segir Gauti Krist­manns­son gagn­rýn­andi.

Merk­ing, skáld­saga Fríðu Ísberg, hefur verið seld til 14 mál­svæða. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá For­lag­inu. Breski bóka­út­gef­and­inn Faber & Faber keypti rétt­inn í Bret­landi, en fyr­ir­tækið var stofnað árið 1929 og gefur út bækur margra fremstu rit­höf­unda heims, á borð við Milan Kundera, Sally Rooney og Kazuo Ishiguro.

Gugusar

Gugusar. Mynd.Skjáskot/RÚV

Guðlaug Sóley Hösk­ulds­dóttir, sem kemur fram undir lista­manns­nafn­inu gugusar gaf út fyrstu plötu sína í fyrra. Hún nefn­ist Listen to this twice. Hún flytur tón­list­ina á plöt­unni, semur og ann­ast upp­töku og hefur starfað með nokkrum þekkt­ustu tón­list­ar­mönnum þjóð­ar­innar. Lög Gugusar hafa ratað inn á vin­sælda­lista og hún nýtur mik­illar vel­gengni á Spotify.

„Mér datt ekki í hug að þetta myndi ein­hvern tíma ger­ast, þegar ég byrj­aði að semja tón­list. Ég gerði plöt­una, sem ég er búin að gefa út, þegar ég var fimmtán ára og ég var að búast við að mamma og pabbi myndu kannski hlusta, ef þau myndu nenna því, þannig að þetta er ótrú­legt,“ segir Guðlaug.

Laufey Lín söngkona

Laufey söng­kona. Mynd.Skjáskot/RÚV

Laufey Lín Jóns­dóttir tón­list­ar­kona hefur á skömmum tíma náð eft­ir­tekt­ar­verðum árangri í tón­list­ar­út­gáfu. Hún lauk námi við Berklee-tón­list­ar­skól­ann í Boston þar sem hún var á for­seta­lista. Hún hefur gefið út smá­skífu, EP-plötur og fjölda laga sem hafa náð eyrum millj­óna hlust­enda og áhorf­enda á Youtube. Og það er nóg um að vera hjá henni.

Tón­list­ar­konan Billie Eilish, ein vin­sælasta söng­kona heims, deildi mynd­bandi hennar á Instagram og var Laufey Lín heldur betur hissa.

Hún gaf út litla EP-plötu í apríl þegar hún flutti til Los Angeles síð­asta sumar og er að taka upp meiri tón­list. Hún vann við BBC-þátta­röð á árinu í New York. Þetta voru tólf þættir og er tón­listin hennar spiluð undir ásamt annarri tón­list sem hún setti saman og heitir Happy Harm­on­ies.

Libia Castro og Ólafur Ólafsson eru myndlistarmenn ársins 2021

Libia Castro og Ólafur Ólafsson mynd­list­ar­menn. Mynd.Skjáskot/RÚV

Libia Castro og Ólafur Ólafsson hlutu Mynd­list­ar­verð­laun árs­ins 2021 fyrir verkið Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórn­ar­skrá fyrir lýð­veldið Ísland, í Lista­safni Reykja­víkur, Hafn­ar­húsi og á götum úti við Stjórn­ar­ráð og Alþingi Íslands, 3. októ­ber 2020 í sam­starfi við Lista­há­tíð­ina Cycle og Lista­há­tíð í Reykja­vík.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, Lilja Alfreðs­dóttir, afhenti Íslensku mynd­list­ar­verð­launin sem haldin var í fjórða sinn við hátíð­lega athöfn í Lista­safni Íslands fimmtu­dag­inn 25. febr­úar.

Í umsögn dóm­nefndar kemur fram:

„Tvíeykið Libia Castro (f. 1970) og Ólafur Ólafsson (f. 1973) svið­settu í sam­vinnu við Töfrateymið stóran mynd­list­ar­við­burð Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórn­ar­skrá fyrir lýð­veldið Ísland á árinu. Verkið er fjöl­radda tón­listar- og mynd­list­ar­gjörn­ingur við hund­rað og fjórtán greinar nýrrar stjórn­ar­skrár Íslands sem kosið var um í októ­ber 2012 og nær tveir þriðju hlutar sam­þykktu. Áræðið og úthugsað þátt­töku­verk sem varpar ljósi á mátt list­ar­innar og efnir til umræðu um sjálfan grunn sam­fé­lags­sátt­mál­ans.“

Ragnheiður Inga Matthíasdóttir rappari

Ragga Rix rapp­ari. Mynd.Skjáskot/RÚV

Sig­ur­veg­ari Rímnaflæðis 2021 var Ragn­heiður Inga Matth­í­as­dóttir eða Ragga Rix frá félaga­smið­stöð­inni Tróju Akureyri. Hún er 13 ára og gengur í Brekku­skóla.

„Ég byrj­aði að rappa 8 ára með systur minni. Við stofn­uðum rappsveit­ina Blauta sokka og sömdum nokkur lög. Systir mín gafst upp á frægð­inni en ég hélt áfram,“ segir Ragga.

Rímnaflæði, rapp­keppni unga fólks­ins, var fyrst haldin árið 1999 og fór fram á net­inu í ár vegna sótt­varn­ar­að­gerða. Rímnaflæði hefur skipað sér fastan sess í dag­skrár­liðum félags­mið­stöðva um leið og hún vekur áhuga ung­menna á rappi og gefur því jákvæða umfjöllun. Kepp­endur í Rímnaflæði eru á aldr­inum 13-16 ára og er skil­yrði að textar séu samdir af kepp­endum, en lög og taktar þurfa ekki að vera frum­samdir. Átta kepp­endur tóku þátt í ár, þar af þrír af lands­byggð­inni.

Salóme Gunnarsdóttir leikkona

Salóme Gunn­ars­dóttir leik­kona. Mynd.Skjáskot/RÚV

Salóme lauk prófi frá leik­list­ar­deild LHÍ og hefur leikið hjá Þjóð­leik­hús­inu, í kvik­myndum, sjón­varpi og víðar. Nýlega lék hún í vís­inda- og fantasíu­kvik­mynd­inni Zack Snyder’s Justice League sem var til­nefnd til verð­launa í þremur flokkum; besta myndin, besta kven­hetjan og besta slags­mála­at­riði. Salóme leikur í mynd­inni íslenska konu.

Á síð­asta ári lék hún í fyrsta þætti ser­í­unnar Pennyworth frá banda­rísku kap­al­stöð­inni Epix, þar sem hún lék Patricia Wayne, systur Thomas Wayne (föður Bruce/Batman).

Þætt­irnir eru „spin-off“ þáttar­að­ar­innar Gotham sem sýndir voru í nokkur ár á Fox-stöð­inni í Banda­ríkj­unum við miklar vin­sældir. Pennyworth segir frá þjóni Batman, Alfred Pennyworth, á yngri árum. Sömu aðilar og stóðu að Gotham, Danny Cannon og Bruno Heller, standa að þessum þáttum.

Það voru ein­stak­lega margir fram­úr­skar­andi lista­menn sem gerðu það gott á árinu og því erfitt að velja. Sköpunin var alls­ráð­andi árið 2021.

Það verður for­vitni­legt að sjá hvað á eftir að koma frá þessum á næst­unni, fylgj­umst vel með!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins