„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ásmundur furðar sig á undanþágum Bubba og Emmsjé Gauta: „Það fokkar enginn í Bubba“

Ásmundur furðar sig á undanþágum Bubba og Emmsjé Gauta: „Það fokkar enginn í Bubba“

Enn og aftur verður jóla­hald Íslend­inga fyrir luktum dyrum. Frá og með mið­nætti í kvöld mun íslenska þjóðin þurfa að sæta fjölda­tak­mörk­unum og fjar­lægð­ar­reglum af harð­ara tag­inu sökum omikron-afbrigðis Covid 19.

Í ljósi þessa urðu margir hvumsa þegar út spurð­ist að Bubbi fengi und­an­þágu frá hertum reglum og þar með heim­ild til að halda Þor­láks­messu­tón­leika sína í Hörpu. Und­an­þágan ku byggja á því að ekki var hægt að ætl­ast til þess að hann brygð­ist við breyttum for­sendum með jafn stuttum fyr­ir­vara og raunin varð.

Emmsjé Gauti nýtur einnig við­líka vel­vildar ein­hverra sem sitja við stjórn­völ­inn og fær ásamt Jóla­vinum að stíga á svið í Háskóla­bíói, en þrennir tón­leikar verða haldnir á vegum Jólavina í dag og annað eins á morgun, Þor­láks­messu.

Svo allrar sann­girni sé gætt er rétt að geta þess að Borg­ar­leik­húsið og Þjóð­leik­húsið hafa hvort tveggja einnig fengið und­an­þágu.

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ásmundur Frið­riks­son, er ekki par sáttur við þessi tíð­indi og spyr á Facebook síðu sinni hví Bubbi hafi fengið þessa und­an­þágu. Ásmundur bætir um betur og segir að nú sé Bubbi fall­inn á and­litið „inn í hóp spill­ingar- sér­hags­muna­el­ít­unnar sem hann er alltaf að drulla yfir.“.

Það kann að vekja furðu margra að, nú þegar hátíð ljóss og friðar er að ganga í garð, að í kirkjum lands­ins þurfi að fylgja þeim ströngu reglum sem senn taka gildi. Þeir sem hugs­uðu sér að hlýða á kær­leiks­boð­skap í húsi Guðs verða senni­lega frá að hverfa margir hverjir, senni­lega haft nægan tíma til að gera aðrar ráð­staf­anir.

Í við­tali við Frétta­blaðið segir Guðrún Karls Helgu­dóttir, sókn­ar­prestur við Graf­ar­vogs­kirkju, að kirkjan sé í klemmu af sið­ferð­is­legum toga nú um jólin vegna sam­komu­tak­mark­ana.

Í Graf­ar­vogs­kirkju verður messað í tómu húsi og án efa verður sú raunin víðar á land­inu og kær­leiks­boð­skap­ur­inn sendur út í streymi.

Hvað sem því líður er Bubbi, í það minnsta, kampa­kátur og hafði á orði að „fjórt­ándi jóla­sveinn­inn hafi komið með risa­stóran pakka.“ Í við­tali við Vísi segir Bubbi að þetta snú­ist um gríð­ar­lega fjár­muni og að lokum að hann „trúi á jóla­svein­inn“.

Hver fjórt­ándi jóla­sveinn­inn er liggur ekki ljóst fyrir.   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid á Íslandi

Indverska Covid-afbrigðið er komið til Íslands – Minnst fimm einstaklingar hafa greinst með það
InnlentCovid á Íslandi

Ind­verska Covid-afbrigðið er komið til Íslands – Minnst fimm ein­stak­lingar hafa greinst með það

Hið nýja Covid-afbriði, sem kallað er í fjöl­miðlum Arcturus, er komið til Íslands. Afbrigðið, sem heitir form­lega XBB.1.16, hefur verið á hraðri dreif­ingu á Indlandi en fimm hafa greinst með það hér á landi. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti Land­læknis hafa fimm ein­stak­lingar greinst með afbrigðið hér­lendis í rað­grein­ingu en taka skal fram að ekki eru öll sýni rað­greind heldur úrtak...
Síðasta vígið fallið: „Þar kom að því. Ég er kominn með co­vid“
InnlentCovid á Íslandi

Síðasta vígið fallið: „Þar kom að því. Ég er kom­inn með co­vid“

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, er kom­inn með Covid-19 veiruna. Greindi hann frá frétt­inni á Facebook-síðu sinni í dag. Má því segja að eitt af síð­ustu víg­unum sé fallið enda virð­ist sem nán­ast allir Íslend­ingar hafi nú fengið veiruna, sem auð­vitað er ekki alveg rétt. Segist Guðni nokkuð slappur og að vegna fimm daga smit­gát­ar­innar muni dag­skrá hans raskað svo­lítið....
Níu börn inniliggjandi með Covid – Landspítali enn á neyðarstigi
InnlentCovid á Íslandi

Níu börn inniliggj­andi með Covid – Land­spít­ali enn á neyð­ar­stigi

Land­spít­ali er enn á neyð­ar­stigi og eru 85 sjúk­lingar með Covid, þar af eru níu börn. 78 eru í ein­angrun. „Hjá þeim eins og full­orðna fólk­inu er oft erfitt að greina á milli hvað er hvað en ljóst er að Covid getur valdið versnun á und­ir­liggj­andi heilsu­vanda og þannig leitt til sjúkra­húsinn­lagnar. Auk þess eru nokkur börn með aug­ljós Covid...
Covid-blóti frestað vegna Covid: „Við héldum bara í vonina um að úr rættist.“
Landið

Covid-blóti frestað vegna Covid: „Við héldum bara í von­ina um að úr rætt­ist.“

Þorra­blót­inu í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð í Múla­þingi sem halda átti um helg­ina hefur nú verið frestað um viku. Blótinu sem kall­ast þetta árið Covid-blótið er frestað vegna Covid smits. „Já, því er nú verr og miður en við þurfum að fresta Covid-blót­inu um eina viku vegna Covid-smits,“ segir Steinunn Snædal, einn skipu­leggj­enda Covid-blóts sem fram átti að fara í Brúarási...
Úr höllinni á heilsugæslustöðvar: „Stefnt er á að nota eingöngu bóluefni frá Pfizer“
Innlent

Úr höll­inni á heilsu­gæslu­stöðvar: „Stefnt er á að nota ein­göngu bólu­efni frá Pfizer“

Í til­kynn­ingu frá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins kemur fram að bólu­setn­ingar vegna COVID-19 hafi nú verið færðar til heilsu­gæslu­stöðva og þar með verið hætt að bólu­setja í Laug­ar­dals­höll. Á heilsu­gæslu­stöðv­unum verður bæði hægt að fá grunn­bólu­setn­ingar ætl­uðum fimm ára og eldri og örv­un­ar­skammta fyrir sextán ára og eldri. Þá er fólk minnt á að fjórir mán­uðir eða meira þurfi að líða frá...
Seðlabankastjóri Íslands með Covid-19: „Enginn má sköpum renna“
InnlentCovid á Íslandi

Seðla­banka­stjóri Íslands með Covid-19: „Enginn má sköpum renna“

Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson er kom­inn með Covid-19. Þetta til­kynnti hann í gær á Facebook síðu sinni. Segir hann að Seðla­bank­inn hafi alla tíð síðan far­ald­ur­inn lét á sér kræla, verið aðeins harð­ari í sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum en opin­ber fyr­ir­mæli sögðu til um. Þrátt fyrir það sé hann nú kom­inn með veiruna. Hann ber sig þó vel og seg­ist ekki mikið las­inn....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins