„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lækna-Tómas æfur vegna undanþágugigga Willums fyrir jólin: „Man ekki annað eins á mínum 30 árum“

Lækna-Tómas æfur vegna undanþágugigga Willums fyrir jólin: „Man ekki annað eins á mínum 30 árum“

Hjarta­skurð­lækn­ir­inn Tómas Guð­bjarts­son er æfur út í Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra. Vegna „und­an­þágugigga“ ráð­herr­ans hefur lækn­ir­inn nú unnið 10 daga sleitu­laust á spít­al­anum þar sem starfs­fólk slig­ast undan álagi yfir jólin.

Þetta kemur fram í færslu Tómasar á Facebook þar sem hann seg­ist illa skilja mál­flutn­ings fólks í þá veru að ómikrón-afbrigð­ist sé bara sak­laust kvef og veirupest. Með færsl­unni birt­ist hann myndir af einu hágæslu­rými Land­spít­al­ans sem notað er sem geymsla.

„Samt liggur fár­veikt fólk á gjör­gæsl­unni hjá okkur og enn fleiri á smit­sjúk­dóma­deild – þar sem þeim bara fjölgar, og það með stæl eftir und­an­þágugigg ráð­herra á Þor­láks­messu. Verra er að starfs­fólk spít­al­ans er að veikj­ast í hrönnum og mörg teymi og deildir að slig­ast undir álagi – álagi sem fyrir jól var ærið,“ segir Tómast og heldur áfram:

„Sjálfur hef ég verið í vinn­unni sleitu­laust í 10 daga og man ekki annað eins á mínum 30 árum sem læknir. Áðan kom síðan upp hópsmit á hjarta­deild, sem er stærsta legu­deild sjúkra­húss­ins. Sjúk­lingar þeirrar deildar mega illa við Covid-sýk­ingu ofan á alvar­legan hjarta­sjúk­dóm – og því skilj­an­legt að skyn­samur sótt­varna­læknir reyni að bremsa far­ald­ur­inn með við­ur­kenndum aðferðum.

Þetta virð­ast sumir þing­menn og ráð­herrar bara alls ekki skilja – og eru sífellt að vísa í frelsi ein­stak­ling­ins og að stóri bróðir sé að taka yfir sjopp­una. Síðan hvenær getur frelsi ein­stak­lings gengið út yfir frelsi ann­arra? Það eru jú mann­rétt­indi að sýkj­ast ekki af sjúk­dómi sem getur verið ban­vænn – sér­stak­lega ef maður er veikur fyrir.

Og af hverju eru allir í lönd­unum í kringum okkur að fara leið sótt­varna og verja heil­brigð­is­kerfi sín? Eru engin mann­rétt­indi þar á bæ – og þeir bara hreinir vit­leys­ingar? Eða eru erlend þjóð­fé­lög ekki svo heppin eins og við að eiga vara­þing­menn og fyrr­ver­andi hér­að­dóm­ara, Arnar Þór Jónsson, sem sífellt beitir fyrir sig bulli og fer síðan í mál við fólk sem hefur heil­brigð­ari skyn­semi en hann sjálfur. Allt til að skora póli­tískar keilur að hætti Trump.

Vara­samur vara­þing­maður það – sem greini­lega hefur aðra hags­muni í heiðri en heild­ar­innar.

ps. læt fylgja með brak­andi ferskar myndir af hágæslu­rými gjör­gæsl­unnar við Hring­braut, stofu 1. Hún er enn nýtt sem geymsla – enda þótt ráð­herra og almenn­ingur haldi annað. Ástæðan er ein­föld – það vantar starfs­fólk. Lausnin á því er ekki fleiri skýrslur, erlendir ráð­gjafar eða fundir, heldur betri kjör sem lokka aftur á sjúkra­húsið gjör­gæslu­hjúkr­un­ar­fræð­inga sem horfið hafa til ann­arra starfa. Stundum eru lausnir óþægi­lega ein­faldar – og það beint af býli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins