„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dóttir Möggu Frikka smituð af Covid: „Ég er búin að reyna að smitast en ekkert gengur“

Dóttir Möggu Frikka smituð af Covid: „Ég er búin að reyna að smitast en ekkert gengur“

Bar­áttu­konan og rit­stýran Margrét Frið­riks­dóttir hefur síð­ustu daga verið að reyna að smit­ast af Covid-19 en ekk­ert gengur. Yngri dóttir hennar er smituð og hefur Margét reynt allt til að smit­ast af dóttur sinni, en án árang­urs.

Í sam­tali við Mannlíf segir Margrét að dóttir hennar hafi fundið fyrir smá haus­verk í tvo daga vegna veirunnar. Meiri hafi ein­kennin ekki verið. „Hún er orðin góð fékk smá haus­verk í tvo daga og búið,“ segir Margrét.

Aðspurð hvers vegna hún reyni nú allt til að smit­ast af Covid segir Margét ástæð­una vera þá að hana langi í mótefnið í lík­ama sinn. „Merki­leg­ast er að ég er búin að bera reyna smit­ast en ekk­ert gengur og eldri stelpan mín smit­ast ekki heldur, erum allar óbólu­settar. Ég er einmitt búin að vera drekka úr glas­inu hennar og láta hana anda ofan í mig en ekk­ert gengur.“

Margrét hefur skráð sig í alþjóð­lega sam­an­burð­ar­rann­sókn þar sem reynt verður að finna út hvor hóp­ur­inn er betur varður gegn kór­ónu­veirunni, bólu­settir eða óbólu­settir. Varla þarf að taka það fram að Margrét til­heyrir síð­ari sam­an­burð­ar­hópnum enda hefur hún lengi talað gegn bólu­setn­ingum hér á landi gegn veirunni skæðu.

Til að berj­ast gegn sótt­varn­ar­að­gerðum og bólu­setn­ing­unum stofn­aði Margrét vef­svæðið frettin.is sem á dög­unum hlaut skrán­ingu sem fjöl­mið­ill. Hún tekur nú þátt í þess­ari alþjóð­legu rann­sókn og sam­kvæmt henni má hún alls ekki láta bólu­setja sig gegn Covid-19.

Hjarta­skurð­lækn­ir­inn Tómas Guð­bjarts­son er hins vegar ekki par hrif­inn af hegðun Margétar. Hann segir hana á leið í ein­hvers konar harakiri-leið­angur sem stofni ekki aðeins hennar lífi í hættu heldur margra ann­arra.

Eftir frétt Mannlífs birti Margrét svo færslu á Facebook þar sem hún fór nánar yfir veik­indi dóttur sinnar:

„Kæru vinir ég tel nauð­syn­legt að tjá mig um það sem hefur gerst á heim­il­inu þessi jólin, en þannig er mál með vexti að vin­kona dóttur minnar kom í heim­sókn þann 22. des­em­ber og hringdi svo á jóla­dag og til­kynnti okkur að hún hefði greinst jákvæð með Covid. Dóttir mín var svo farin að finna fyrir ein­kennum um kvöldið þannig ég fór og keypti hrað­próf fyrir okkur mæðgurnar þrjár. Við tókum allar test og yngri stelpan mín grein­ist jákvæð en við nei­kvæðar, ég tók svo annað test dag­inn eftir og þá er sú yngri aftur jákvæð en ég og eldri dóttir mín aftur nei­kvæðar.

Við pönt­uðum því tíma fyrir stelpuna í PCR próf á Suð­ur­lands­braut. Ég hafði sam­band við net­spjallið á Covid.is og sagði þeim frá þessu og spurði hvort ég þyrfti að gera ein­hverjar ráð­staf­anir hér á heim­il­inu en var svarað að þar sem við grein­umst ekki jákvæðar og ekki með nein ein­kenni þá þyrftum við ekki að koma í PCR próf. Ég fór svo með stelpuna í hrað­prófið þann 27. des­em­ber og um kvöldið kom jákvæð nið­ur­staða.

Dóttir mín hefur haft mjög væg ein­kenni hún fékk haus­verk í tvo daga en engan hósta eða hita. Vægt verkja­lyf dugði til að slá á haus­verk­inn. Ég hef ekki farið leynt með það að ég er ekki bólu­sett en ég vil endi­lega fá mótefnið sem er sam­kvæmt vís­ind­unum lang­best og miklu betra en bólu­setn­ing. Ég reyndi því að smit­ast af dóttur minni með því að drekka úr glas­inu hennar og við vorum ekk­ert að passa okkur hér á heim­il­inu, spil­uðum hér við borð­stofu­borðið og lét hana anda oní mig. Ekkert gekk og mér hefur ekki tek­ist að smit­ast en þá en er búin að taka þrjú hrað­próf og er ein­kenna­laus.

Þetta kemur mér kannski ekki mikið á óvart því ég hef aldei á ævi minni fengið flensu­vírus eins og t.d Inflú­ensu, ég þekki ekki að fá hita, bein­verki, háls­bólgu og þers háttar eins og margir þekkja, ef samt oft umgeng­ist fólk með flensu bæði á meðan og rétt áður þegar það er mest smit­andi en aldrei hef ég smit­ast. Þetta virð­ist vera ætt­gengt því faðir minn var eins, hann fékk aldrei flensu á þeim 62 árum sem hann lifði.

Stelpan mín er orðin hress núna, þannig þessi svoköll­uðu “hræði­legu” Covid veik­indi sem hefur sett þjóð­fé­lagið á hlið­ina síð­ast­liðnu tvö ár, var haus­verkur í tvo daga, við erum allar óbólu­settar og tel ég galið að bólu­setja börn við þess­ari vægu flensu eins og raun ber vitni, því flestir vita að börn og heil­brigt fólk er almennt ekki að veikj­ast illa.

Óska ykkur öllum gleði­legs nýs árs, með von um að betra og bjart­ara ár taki við og hætt verði þessum hræðslu­á­róðri sem hefur valdið mörgum miklum skaða, kvíða, þung­lyndi og mik­illi van­líðan og sjálfs­víg hafa auk­ist gríð­ar­lega á þessu tíma­bili. Það verður alltaf að horfa á heild­ar­mynd­ina sem mér finnst ekki gert þegar kemur að Covid flens­unni. Lifið heil og Guð blessi ykkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid 19 á Íslandi

Inga Sæland með Covid: „Ljóta óværan þetta sem flæðir nú yfir sem aldrei fyrr“
InnlentCovid 19 á Íslandi

Inga Sæland með Covid: „Ljóta óværan þetta sem flæðir nú yfir sem aldrei fyrr“

Inga Sæland hefur legið flöt með Covid-19 veiruna frá því á aðfanga­dag. Haustið og vet­ur­inn hefur verið mik­ill pesta­tími á Íslandi, líkt og alltaf og er ljóst að Covid-19 veiran lifir enn góðu lífi meðal okkar þó fyrir flestum sé hún orðin eins og hver önnur flensa. Inga Sæland seg­ist í nýrri Facebook-færslu hafa verið með Covid frá því á...
Gylfi Þór, verndari Covid-sjúklinganna, kominn með veiruna: „Líðanin er drulluslæm“
InnlentCovid 19 á Íslandi

Gylfi Þór, vernd­ari Covid-sjúk­ling­anna, kom­inn með veiruna: „Líðanin er drulluslæm“

Gylfi Þór Þor­steins­son er kom­inn með Covid. Hann lýsir líð­an­inni sem „drulluslæmri“. Gylfi hefur verið tals­vert í sviðs­ljós­inu síð­ustu mán­uði en hann hefur verið gegnt hlut­verki for­stöðu­manns far­sótt­ar­húsa Rauða Krossins og þannig verið vernd­ari þeirra sem glímdu veiruna. Þegar mest var voru hátt í 600 manns á dag í sjö far­sótt­ar­húsum en þeim verður lokað þann 1.apríl næst­kom­andi. Gylfi greindi...
Barn á vökudeild með Covid-19
InnlentCovid 19 á Íslandi

Barn á vöku­deild með Covid-19

Fimm börn liggja inni á Land­spít­ala með COVID-19, þar af eitt á nýbura­gjör­gæslu, vöku­deild spít­al­ans. Þetta kemur fram í stöðu­yf­ir­liti frá Land­spít­al­anum. Alls eru 59 sjúk­lingar á Land­spít­ala með COVID-19, þar af 54 með virkt smit. Tveir eru á gjör­gæslu, báðir í önd­un­ar­vél. Land­spít­ali er enn á neyð­ar­stigi en fyrir helgi var ýmsum tak­mörk­unum aflétt. Hildur Helga­dóttir, for­maður far­sótta­nefnd­ar, sagði...
Ótrúlegur fjöldi minnisblaða Þórólfs í faraldrinum
Innlent

Ótrú­legur fjöldi minn­is­blaða Þórólfs í far­aldr­inum

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur sent 93 minn­is­blöð til heil­brigð­is­ráð­herra frá upp­hafi Covid-19 far­ald­urs­ins hér á landi. Fyrsta minn­is­blaðið var sent þann 13.mars með til­lögu um sam­komu­bann og það síðsta 22. Febrúar. Kom þetta fram í svari Willums vegna fyr­ir­spurnar Bergþórs Ólasonar en fjall­aði Frétta­blaðið fyrst um málið. Segir Willum að gætt hafi verið með­al­hófs í ákvörð­unum en stundum hafi ráð­herra...
Sjúkrahúsið á Akureyri enn á hættustigi – Grímuskyldu létt lítillega
Landið

Sjúkra­húsið á Akureyri enn á hættu­stigi – Grímu­skyldu létt lít­il­lega

Létt hefur verið lít­il­lega á grímu­skyldu á Sjúkra­hús­inu á Akureyri. Nú eru þrettán sjúk­lingar inniliggj­andi á sjúkra­hús­inu með Covid-19 Samkvæmt Viku­blað­inu eru 13 inniliggj­andi á Sjúkra­hús­inu á Akureyri með Covid-19 veiruna. Þar af eru átta á lyf­lækniga­deild, þrír á skurð­lækn­inga­deild og tveir á gjör­gæslu­deild en hvor­ugur þeirra er í önd­un­ar­vél. Þá er tals­verður fjöldi starfs­manna fjar­ver­andi með Covid-19 og því...
Biðin eftir minnisblaðinu – biðin eftir afléttingum
Innlent

Biðin eftir minn­is­blað­inu – biðin eftir aflétt­ingum

Búast má við aflétt­ingum bæði á landa­mær­unum og inn­an­lands í síð­asta lagi á föstu­dag að sögn Willum Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra. Greindi hann frá þessu að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun og fjall­aði Vísir um málið. Nú þegar hafa nokkrar nágranna­þjóðir aflétt sótt­varn­ar­að­gerðum og sagði Willum þró­un­ina hér á landi í sam­ræmi við þær. Reglur á landa­mærum verða þær sömu fyrir bólu­setta...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins