„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Páll slæst í hópinn með Möggu Frikka: „Ég myndi frekar drekka olíuna af bílnum mínum“

Páll slæst í hópinn með Möggu Frikka: „Ég myndi frekar drekka olíuna af bílnum mínum“

Páll Erlends­son segir stoltur frá því að hann sé geng­inn í sömu alþjóð­legu rann­sókn­ina og bar­áttu­konan og rit­stýran Margrét Frið­riks­dóttir. Hann hafi nú passa upp á hönd­ina sem segi að hann megi alls ekki vera bólu­settur og full­yrðir að með því megi ekki meina honum aðgang að stöðum sem krefj­ast bólu­setn­ing­ar­skír­teinis.

„Þetta er svo inni­lega gott mál þar sem ég myndi frekar drekka olí­una af bílnum mínum en að láta bólu­setja mig með lyfi sem eng­inn veit hvaða áhrif hafa á okkar við­kvæma lík­ama,“ segir Páll í færslu á Facebook.

Margrét hefur skráð sig í alþjóð­lega sam­an­burð­ar­rann­sókn þar sem reynt verður að finna út hvor hóp­ur­inn er betur varður gegn kór­ónu­veirunni, bólu­settir eða óbólu­settir. Varla þarf að taka það fram að Margrét til­heyrir síð­ari sam­an­burð­ar­hópnum enda hefur hún lengi talað gegn bólu­setn­ingum hér á landi gegn veirunni skæðu.

Til að berj­ast gegn sótt­varn­ar­að­gerðum og bólu­setn­ing­unum stofn­aði Margrét vef­svæðið frettin.is sem á dög­unum hlaut skrán­ingu sem fjöl­mið­ill. Hún tekur nú þátt í þess­ari alþjóð­legu rann­sókn og sam­kvæmt henni má hún alls ekki láta bólu­setja sig gegn Covid-19. Hið sama á núna við um Pál sem gengur með sama skír­teinið í vas­anum þessa dag­ana og Margét.

Hjarta­skurð­lækn­ir­inn Tómas Guð­bjarts­son er hins vegar ekki par hrif­inn af hegðun Margétar. Hann segir hana á leið í ein­hvers konar harakiri-leið­angur sem stofni ekki aðeins hennar lífi í hættu heldur margra ann­arra.

Páll birti svo fyrir skömmu aðra færslu á Facebook þar sem hann segir frá heim­sókn sinni til Þórólfs Guðna­sonar sótt­varn­ar­læknis. Páll full­yrðir að hann hafi séð svip sam­visku­bits á and­liti lækn­is­ins. Til nán­ari útskýr­ingar skulum við gefa honum orðið:

„Málið er að eftir að hafa hitt Þórólf í morgun og átt við hann stutt spjall, þá tók ég greini­lega eftir að það sem hann er að eiga við í sam­visku sinni er alls ekki auð­velt. Í fyrsta lagi er hann alveg með á hreinu að það er fullt af fólki að skað­ast vegna bólu­setn­inga. Hann veit líka að það er fullt af fólki sem mun skað­ast af covid. Hann er lækn­is­fræði­lega mennt­aður og telur út frá sinni þekk­ingu að ávinn­ing­ur­inn sé mun meiri í því að láta bólu­setja alla.

Það hefur verið ákveðin töfra­lausn í gegnum árin, að bólu­setja fólk við ýmsum sjúk­dómum. Núna er staðan bara svo allt önnur. Stað­reyndin er sú að bólu­efnin eru ekki að virka eins vel og fyrri bólu­efni ann­ara sjúk­dóma. Í öðru lagi eru mikið fleirri auka­verk­anir og lík­am­leg vanda­mál tengdum flestum covid bólu­efn­unum sem verið er að gefa í dag.

Þórólfur og hans fólk er að reyna að vega og meta hvað sé best að gera og hans ákvörðun er að bólu­setja sem flesta m.a. vegna þess að trúin hans er sú að bólu­setn­ing ein­stak­linga minnki áhrif veik­ind­anna til muna og færri þurfi á lækn­is­þjón­ustu að halda. En svo er það okkar hlið sem viljum ekki láta bólu­setja okkur, við viljum ekki taka þá áhættu að við fáum auka­verkun og jafn­vel alvar­lega auka­verkun og finnst okkur því best að sleppa því og eigum við að eiga fullan rétt á því að við neitum bólu­setn­ingum fyrir okkur sjálf.

Vanda­málið sem er oft með bólu­setn­ingar er sú að auka­verk­anir af þeim geta komið í ljós nokkrum árum eftir að bólu­setn­ing hefur verið fram­kvæmd og í til­felli covid bólu­setn­ing­anna, þá vitum við mögu­lega of lítið um þær auk þess hvað það er mikið um alvar­legar auka­verk­anir og líka mikið um vægar auka­verk­anir.

Ég tel mig hepp­inn að hafa fengið covid sjálfur og er því með nátt­úru­legt ónæmi og fyrir mitt líf finnst mér það vera besta lausnin. Fyrir mig!. Þú að sjálf­sögðu gerir það sem þú vilt, hvort þú lætur bólu­setja þig eða ekki, er alfarið þitt mál því við tökum að lokum öll ábyrgð á okkur sjálfum. Ég læt þetta vera loka­punkt­inn minn á því hvaða skoðun ég hef á bólu­setn­ingum. Nenni hrein­lega ekki að standa í þessu. Þú kannt að hafa aðra skoðun og það er líka bara gott og blessað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins