„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Víðir Reynisson glímir við langtímaafleiðingar veirunnar: „Ég var með svokölluð Covid-lungu“

Víðir Reynisson glímir við langtímaafleiðingar veirunnar: „Ég var með svokölluð Covid-lungu“
(Mynd: Stefán Karlsson.) Ekki nota.

Hann er yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varn­ar­sviðs hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, húsa­smiður að mennt, kvæntur tveggja barna faðir og afi sem nýtur þess að leika með barna­barn­inu í indíána­tjald­inu eða að lesa og segja sögur. Víðir Reyn­is­son er einn af þrí­eyk­inu svo­kall­aða sem hefur stappað stál­inu í land­ann í tæp tvö ár í tengslum við heims­far­ald­ur­inn. Hann birt­ist á skjánum yfir­veg­aður og góð­legur og fólk vill hlýða Víði. Sjálfur þekkir hann veiruna skæðu á eigin skinni og það var áfall að grein­ast fyrir rúmu ári síðan. Veik­indin tóku á bæði and­lega og lík­am­lega og hann hefur ekki enn náð sér að fullu. Um þessi ára­mót ræðir Víðir meðal ann­ars einmitt um heims­far­ald­ur­inn sem ræður svo miklu um heims­byggð­ina í dag og hann ræðir líka einmitt um veik­indin og álag í starfi sem hefur stundum haldið fyrir honum vöku. Hann ræðir líka um þessi tíma­mót. Áramót. Og hvernig hann horfir á nýtt ár. Árið 2022.

„Þetta hefur nátt­úr­lega algjör­lega tekið yfir líf manns. Það er ekki hægt að orða það neitt öðru­vísi. Bara frá því í mars 2020 hefur ein­hvern veg­inn líf manns hverfst í kringum það að taka þátt í þess­ari bar­áttu með þeim stóra hópi sem er í þessu á hverjum degi og allt annað hefur ein­hvern veg­inn þurft að víkja. Sem betur fer á maður stór­kost­lega fjöl­skyldu sem stendur við bakið á manni og gerir það að verkum að maður getur lagt sig allan í þetta,“ segir Víðir Reyn­is­son í við­tali við Mannlíf en hann hefur ásamt þeim Ölmu Möller land­lækni og Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni verið fastur gestur á skjám lands­manna og veitt okkur upp­lýs­ingar um heims­far­ald­ur­inn, sagt frá nýj­ustu reglum og stappað í okkur stál­inu.

Ný kór­ónu­veira kom jú fram á sjón­var­sviðið seint á árinu 2019 og er kennd við það ár – Covid 19. Ekki er enn búið að kom­ast að upp­runa hennar þótt margir telja að hún eigi upp­tök sín á mark­aði í kín­versku borg­inni Wuhan og vilja margir tengja hana við leð­ur­blökur. Sumir telja hins vegar að hún hafi verið búin til á rann­sókn­ar­stofu þar rétt hjá þar sem rann­sak­aðar eru einmitt kór­ónu­veirur í leð­ur­blökum; í frétt mbl.is 13. ágúst er til dæmis skrifað um að vitað sé að vís­inda­menn við Veiru­fræði­stofn­un­ina í Wu­h­an hafi unnið með kór­ónu­veir­ur úr leð­ur­blök­um á rann­sóknar­stof­um í borg­inni en kín­versk yf­ir­völd hafa verið treg til að veita nán­ari upp­lýs­ing­ar um þær rann­sókn­ir. Dr. Peter Emba­rek, sem leiðir hóp á veg­um Alþjóða­heil­brigðis­stofn­un­ar­inn­ar (WHO) sem rann­sak­ar hvernig far­ald­ur­inn hófst, greindi frá því að kín­versk­ur vís­inda­maður gæti hafa hrundið af stað far­aldr­inum eft­ir að hafa sýkst af henni þar sem hann safn­aði sýn­um úr leður­blök­um. Um tveimur árum eftir að veiran fór að sýkja fólk hafa ekki enn fund­ist dýr á svæð­inu með veiruna en leð­ur­blök­urnar þykja þó samt vera söku­dólg­ur­inn. Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin hefur sakað Kínverja um að vilja leyna upp­runanum. Fela hann. Ekki vilja vera nógu sam­vinnu­þýða. Svo eru vís­bend­ingar um að veiran hafi fund­ist mun fyrr til dæmis í Evrópu en talið var í fyrstu.

Jú, fólk tók að veikj­ast. Deyja. Og fólk ferð­að­ist um alla jörð með veiruna í fartesk­inu. Heims­far­aldur. Veikindi. Dauði. Sorg. Áhyggjur. Gjald­þrot. Atvinnu­missir.

Ósýni­legur óvinur sam­einar heims­byggð­ina.

Þjóðir heims sem stundum eru sundraðar og ber­ast jafn­vel á bana­spjótum standa nú allar saman frammi fyrir sömu ógn­inni. Ósýni­legur óvinur sam­einar heims­byggð­ina.

  1. febr­úar árið 2020 var sett til­kynn­ing á síðu land­lækn­is­emb­ætt­is­ins:

 Fyrsta til­felli COVID-19 kór­óna­veiru grein­ist á Íslandi

Íslenskur karl­maður á fimm­tugs­aldri hefur verið færður í ein­angrun á Land­spít­ala eftir að sýni úr honum reynd­ist jákvætt fyrir nýrri kór­óna­veiru (COVID-19). Maðurinn er ekki alvar­lega veikur en sýnir dæmi­gerð ein­kenni COVID-19 sjúk­dóms (hósti, hiti og bein­verkir). Þetta er fyrsta stað­festa til­fellið hér á landi.

Í ljósi þessa mun rík­is­lög­reglu­stjóri í sam­ráði við sótt­varna­lækni virkja hættu­stig almanna­varna. Er þetta gert bæði vegna þess að ekk­ert lát er á hóp­sýk­ingu af völdum veirunnar ytra, þá sér­stak­lega í Evrópu, og að fyrsta til­fellið hefur nú verið stað­fest hér á landi.

Maðurinn sem greind­ist var nýverið staddur á Norður-Ítalíu utan skil­greinds hættu­svæðis. Unnið er að rakn­ingu smit­leiða en mark­mið þeirrar vinnu er að varpa ljósi á það hverjir gætu verið útsettir vegna þessa stað­festa smits.

Á blaða­manna­fundi Almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra og sótt­varna­læknis sem hald­inn var fyrr í dag, sátu Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra fyrir svörum ásamt Ölmu D. Möller land­lækni og Guðlaugu Rakel Guð­jóns­dóttur, fram­kvæmda­stjóra flæð­is­viðs Land­spít­ala.

Þetta var fyrsti blaða­manna­fundur þrí­eyk­is­ins svo­kall­aða vegna heims­far­ald­urs­ins. Og þeir hafa síðan verið margir og lands­menn finnst mörgum án efa þeir þekkja þau Víði, Ölmu og Þórólf.

Síðan hefur reglu­lega verið til­kynnt um upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna klukkan 11; sem hefj­ast þó yfir­leitt klukkan 11.03.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þetta var. Veiran hefur stökk­breytt sér oft og mörgum sinnum og við Íslend­ingar höfum staðið fram­ar­lega í þessum málum, þökk sé meðal ann­ars íslensku heil­brigð­is­starfs­fólki og Íslenskri erfða­grein­ingu sem hefur lagt sitt lóð svo sann­ar­lega á vog­ar­skál­arnar meðal ann­ars með því að rað­greina veiruna svo athygli hefur vakið víða um lönd.

Um 155.000 manns hafa fengið örvunarskammt

Víðir segir að það sé allaf ánægju­legt að starfa með Ölmu og Þórólfi. „Eitt af því sem hefur haldið manni svo orku­miklum í þessu er að við þrjú ein­hvern veg­inn smullum saman. Við erum með léttan húmor í okkar starfi sem skiptir miklu þegar álag er mikið og við erum ólík og nálg­umst hlut­ina með ólíkum hætti. Við erum á fundum oft gagn­rýnin hvert á annað en þetta er á jafn­ingja­grunni. Við erum sér­fræð­ingar hvert á sínu sviði, við rök­ræðum málin og ég held að það sé ein­kenni á góðu teymi eins og okkar að við erum alls ekki alltaf sam­mála. Einn af kost­unum við að vinna með þeim er að þau eru mjög vel gefin og skörp, fljót að greina hlut­ina og þau eru ekki föst í ein­hverjum skoð­unum. Þau bara hlusta á rökin og töl­fræð­ina sem og vís­indin og þekk­ing­una og taka upp­lýstar ákvarð­anir í fram­haldi af því.“

Willum Þór Þórsson sett­ist nýlega í stól heil­brigð­is­ráð­herra og seg­ist Víðir lít­ast vel á hann sem og nýjan ráð­herra yfir almanna­varn­ar­málum, Jón Gunn­ars­son. „Þetta fer vel af stað, finnst mér. Við erum búin að eiga góð sam­skipti við þá ráð­herra sem hafa verið mest með þessi mál, Svandísi, Áslaugu Örnu og svo Katrínu og núna Willum Þór, Jón og Katrínu. Þetta er fólk sem er í stjórn­málum til að gera sam­fé­lagi sínu gott og er eins og gott teymi á að vera; þau eru ólík og nálg­ast hlut­ina með mis­mun­andi hætti og það er styrkur.“

Nýjasta afbrigðið, Omicron, upp­götv­að­ist fyrir nokkrum vikum í Suður-Afríku og virð­ist ætla að verða ráð­andi en það er mun meira smit­andi en Delta-afbrigðið svo­kall­aða sem á undan því var ráð­andi. Það er grískur stæll á heit­inu á afbrigð­unum. Stökk­breyt­ing­unum. Svo hefur komið í ljós að þorri fólks virð­ist ekki veikj­ast eins alvar­lega af Omicron og Delta og 28. des­em­ber kom frétt um að rann­sókn vís­inda­manna í Suður-Afr­íku bend­i til að Omicron-afbrigði kór­ónu­veirunn­ar gæti hindrað út­breiðslu Delta-af­brigðis­ins þar sem sýk­ing af völdum Omicron eyk­ur ónæmi gegn eldra af­brigð­inu. Daginn áður, 27. des­em­ber, greindust  836 hér á landi. Það var met. Þar af voru nokkrir ráð­herrar.

„Það er fyrst og fremst þessi óvissa sem þetta nýja afbrigði skapar sem olli því að við þurftum að end­ur­skoða stöð­una og grípa til aðgerða,“ segir Víðir en eftir að Omicron varð ráð­andi þurfti að herða reglur hér á landi rétt fyrir jólin. „Það er mikil óvissa í kringum þetta Omicron-afbrigði; það virð­ist vera miklu meira smit­andi en á sama tíma þurfa hlut­falls­lega færri að leggj­ast inn á spít­ala,“ segir Víðir en leggur áherslu á að fólk veik­ist almennt ekk­ert minna en til dæmis af Delta-afbrigð­inu en að færri veikj­ast hins vegar eins illa af völdum Omicron heldur en Delta.

Þó að það sé sjald­gæfara að ein­stak­lingar veik­ist mikið sýnir reynsla land­anna í kringum okkur að þegar svo margir smit­ast þá megi búast við að þó nokkur fjöldi ein­stak­linga þurfi á sjúkra­hús­vist að halda

RÚV birti frétt 28. des­em­ber og hefur eftir frétt á Guardian að Sir John Bell, pró­fessor við Oxford-háskóla og einn helsti ónæm­is­fræð­ingur Breta, segi einmitt að Omicron-afbrigðið valdi ekki sömu veik­indum og sáust í fyrri bylgjum. Í frétt­inni kemur fram að hann telji að há dán­ar­tíðni af völdum COVID-19 heyri nú sög­unni til. Þá segir að banda­rískir vís­inda­menn telji ólík­legt að heil­brigðir, full­bólu­settir ein­stak­lingar verði alvar­lega veikir af völdum afbrigð­is­ins, sér í lagi ef þeir hafa þegið örv­un­ar­skammt.

„Þó að það sé sjald­gæfara að ein­stak­lingar veik­ist mikið sýnir reynsla land­anna í kringum okkur að þegar svo margir smit­ast þá megi búast við að þó nokkur fjöldi ein­stak­linga þurfi á sjúkra­hús­vist að halda þrátt fyrir mun lægra inn­lagn­ar­hlut­fall.“

Þórólfur hefur sagt að veiran sé óút­reikn­an­leg.

„Okkar mestu sér­fræð­ingar og sér­fræð­ingar alls staðar í heim­inum hafa verið að tala um að það séu svo miklar breyt­ingar í Omicron-afbrigð­inu og að jafn­vel fyrri sýk­ing sem menn hafa talið að sé það besta í þessu muni ekki virka,“ segir Víðir en þegar hafa komið upp til­felli meðal ann­ars hér á landi þar sem ein­stak­lingar hafa sýkst aftur. Víðir nefnir í þessu sam­bandi nauð­syn þess að fólk fái örv­un­ar­skammt­inn, þriðju bólu­setn­ing­una. Nú þegar hafa um 155.000 manns hér á landi fengið örv­un­ar­skammt. „Þeir sem hafa fengið hann virð­ast að minnsta kosti vera betur staddir heldur en hinir; þær þrjár sprautur duga að minnsta kosti eins og tvær sprautur gegn Delta og það er jákvætt. Við sjáum bara hvað það er mik­ill munur á þeim sem eru bólu­settir og óbólu­settir. Þeir sem eru óbólu­settir veikj­ast meira og lenda frekar á spít­ala.“

Sama dag og fyrr­nefnd frétt birt­ist, 28. des­em­ber, kom fram í til­kynn­ingu á vef Land­spít­ala að mönn­un á spít­al­an­anum sé mik­il áskor­un nú þegar um 100 starfs­menn eru frá vegna ein­angr­un­ar og fjöl­marg­ir í sótt­kví. Far­sótta­nefnd og við­bragðs­stjórn hafi þung­ar áhyggj­ur af stöð­unni en for­dæma­laus fjöldi smita sé að grein­ast á degi hverj­um. Land­spít­ali var 28. des­em­ber færður á neyð­ar­stig vegna vax­andi álags. Neyð­ar­stig hjá Land­spít­al­anum þýðir í raun að hann geti ekki starfað án utan­að­kom­andi aðstoðar. Verið var að flytja yfir 30 sjúk­linga á aðrar stofn­anir til að reyna að létta á álagi.

Áfall að greinast

Veiran skæða fer ekki í mann­grein­ar­á­lit. Víðir, sem fræddi land­ann og stapp­aði stál­inu í fólk, fór extra var­lega mán­uðum saman og fór ekki einu sinni út í búð. Samt náði veiran honum. Hann talar í því sam­bandi um sam­eig­in­lega snertifleti og að ekki hafi komið í ljós hvernig hann og fleiri í fjöl­skyld­unni smit­uð­ust. Veiran laum­að­ist á hann eins og þjófur um nótt.

Það var áfall að grein­ast. Og Víðir seg­ist hafa veikst frekar leið­in­lega og var hann veikur ansi lengi.

Tekin var lungna­mynd og kom í ljós að ég var með svokölluð Covid-lungu þar sem þetta var komið ofan í lungu.

„Ég fór í próf í kringum 25. nóv­em­ber í hitti­fyrra vegna smits nálægt mér því ég var í sótt­kví. Þá kom jákvæð nið­ur­staða en ég var ein­kenna­laus. Ég greind­ist á mið­viku­degi og vakn­aði síðan á föstu­dags­morgn­inum með flensu­ein­kenni; ég byrj­aði á að fá kvef og var með haus­verk og fékk svo hita og var í tvo til þrjá daga með tals­vert háan hita, haus­verk og smá­hósta. Svo fór mér að skána. Ég var orð­inn miklu betri á mánu­deg­inum og hélt að ég myndi kom­ast létt í gegnum þetta. Hóstinn fór hins vegar að áger­ast. Ég varð svo ennþá lasnari þegar fór að líða á þá viku. Ég fékk þá mjög háan hita, mik­inn hósta og and­þyngsli. Súr­efn­is­mett­unin var mæld og kom í ljós að hún var mjög lág þannig að ég var tek­inn inn á göngu­deild­ina og þá var ég líka orð­inn mjög þurr og þurfti vökva. Tekin var lungna­mynd og kom í ljós að ég var með svokölluð Covid-lungu þar sem þetta var komið ofan í lungu. Ég var svona veikur í viku til 10 daga og þá fór mér hægt batn­andi. Ég byrj­aði að vinna fyrir jólin en ég var bara mjög lélegur og slappur og lækn­ir­inn sendi mig aftur í veik­inda­leyfi þannig að ég byrj­aði ekki að vinna fyrr en í jan­úar. Ég missti á þessum tíma bragð- og lykt­ar­skyn og það svona kemur og fer hjá mér ennþá. Það er eitt af þessum ein­kennum; suma daga finn ég enga lykt og ekk­ert bragð en aðra daga finn ég vonda lykt og vont bragð af öllu og svo suma sama finnst mér bragð- og lykt­ar­skynið vera eðli­legt. Þetta rokkar dálítið. Þetta virð­ist versna ef ég er mjög þreyttur.“

Hvað með hræðslu? Hræðslu við sjúk­dóm­inn sem getur drepið? „Það voru tíma­bil þegar ég var sem veikastur þar sem ég átti erfitt með að ná and­anum þegar ég fékk hósta­köst; það var mjög óþægi­leg til­finn­ing að finn­ast maður ekki geta andað almenni­lega þegar maður hóstaði svo mikið að maður náði ekki and­anum. Það var mjög óþægi­leg til­finn­ing.“

Þetta er sama sagan og maður heyrir frá mörgum sem hafa lent í þessu; menn hafa ein­hvern veg­inn byrjað algjör­lega á núll­punkti í þrek­inu þó menn hafi verið í fínu formi áður.

Víðir fór að byggja sig upp í fyrra­sumar; hann fór að hreyfa sig meira og hlaupa. „Það gekk ágæt­lega til að byrja með en þrekið fór að detta niður og ég varð mjög móður svo sem þegar ég gekk upp tröppur þegar ég æfði ekki reglu­lega. Þetta er sama sagan og maður heyrir frá mörgum sem hafa lent í þessu; menn hafa ein­hvern veg­inn byrjað algjör­lega á núll­punkti í þrek­inu þó menn hafi verið í fínu formi áður.“

Smitskömm

Víðir sagði að það hafi verið áfall að grein­ast. Hvað með and­legu hlið­ina síðan? Sálina? „Manni leið nátt­úr­lega illa til að byrja með og auð­vitað hafði ég áhyggjur af þessu. Ég fann það samt fljótt að ég var í góðum höndum. Starfs­fólk Covid-göngu­deild­ar­innar hringdi í mig einu sinni til tvisvar á dag; einu sinni á dag til að byrja með og svo tvisvar á dag þegar ég var orð­inn lasnari. Þegar þeir köll­uðu mig inn þá fann maður að það var verið að hugsa vel um mann þannig að ég var svo sem aldrei smeykur við þetta þannig. En auð­vitað leið manni ekki vel og ég hafði áhyggjur. En mér fannst ég alltaf upp­lifa að ég væri í öruggum höndum og að það væri passað upp á mann. Síðan eftir þetta var maður eins og eðli­legt er í ein­hvern tíma að jafna sig á þessu. En eins og ég segi; það var áfall að smit­ast. Það var það mikið sjokk. Ég þjáð­ist veru­lega lengi af smit­skömm þrátt fyrir það að hafa sjálfur talað mikið um og er enn að tala mikið um að menn eiga ekk­ert að skamm­ast sín fyrir að smit­ast. Það geta allir smit­ast og það geta allir smitað ein­hvern annan. En þetta var bara mjög erfitt en maður komst í gegnum þetta og sér hlut­ina bara eftir á í öðru ljósi. Ég skamm­ast mín ekki lengur fyrir að hafa smit­ast. Þetta er núna fyrir aftan mig eins og hvert annað verk­efni og ég hef lagt mikla áherslu á það við fólk að þetta sé eitt­hvað sem ger­ist og að það geti kannski ekk­ert gert í því þó það passi sig, fylgi sótt­vörnum og fari í bólu­setn­ingu. Svo bara læð­ist þetta ein­hvern veg­inn aftan að fólki. Þessi veira smeygir sér inn víða jafn­vel þó maður hegði sér mjög vel og geri allt sem á að gera.“

Ég fór alla þessa mán­uði bara í vinn­una og síðan heim til mín. Ég fór ekk­ert.

Víðir tal­aði um smit­skömm. Margir settu yfir for­síðu­mynd sína á Facebook setn­ing­una „Ég hlýði Víði“. Hann er spurður hvort smit­skömmin teng­ist því – að sá sem fólk vildi hlýða smit­að­ist svo sjálfur af veirunni. „Já, alveg örugg­lega. Eins og ég segi; maður var sjálfur búinn að vera í marga mán­uði í fram­lín­unni að tala fyrir sótt­vörnum en ég hafði farið gríð­ar­lega gæti­lega en frá því í mars hafði ég ekki farið í verslun eða neitt þar sem var fólk. Ég fór alla þessa mán­uði bara í vinn­una og síðan heim til mín. Ég fór ekk­ert. Maður bara hélt sig einn og sér en ein lyftu­ferð eða eitt­hvað slíkt virð­ist hafa verið nóg til að maður fengi þetta þrátt fyrir allt. Þarna lærði maður kannski líka ennþá betur að það er engin ástæða til að vera með ein­hverja smit­skömm en það tók mig smá­tíma að átta mig á því.“

Ég fell þess vegna að ein­hverju leyti inn í þann hóp sem er með lang­tíma­af­leið­ingar af Covid.

Og Víðir var lengi að jafna sig. Hann seg­ist í sjálfu sér ekki enn vera orð­inn jafn­góður og hann var áður en hann veikt­ist þrátt fyrir að 13 mán­uðir séu síðan hann smit­að­ist. „Ég fell þess vegna að ein­hverju leyti inn í þann hóp sem er með lang­tíma­af­leið­ingar af Covid.“

Hann sagði að Covid-bar­áttan hafi yfir­tekið líf sitt. Hann er spurður hvort það að hafa sjálfur fengið Covid hafi aukið áhuga hans á því að sinna starfi sínu varð­andi Covid: Að upp­lýsa land­ann og stappa stál­inu í fólk. „Maður brennur fyrir að láta þetta ganga upp og gera það sem maður getur til þess að draga úr afleið­ing­unum. Það er alltaf verið að tala um afleið­ingar á sam­fé­lagið og heil­brigð­is­kerfið en ég hef ekki síður verið að talað mikið fyrir því hvað það skiptir miklu máli að hver ein­stak­lingur sleppi við að fá þetta. Ég er kannski ennþá meira að hugsa um að það að hver ein­stak­lingur sem sleppur við að fá Covid er sigur fyrir okkur öll.“

Mikill lærdómur

Það hefur mikið mætt á Víði und­an­farin miss­eri og hann hefur lært mikið um sam­fé­lagið og sig sjálfan.

„Mér finnst ég hafa fengið full­vissu fyrir því hvað Íslend­ingar eru seig þjóð, hvað seiglan okkar er mikil og hvað við getum tek­ist á við erf­iða stöðu. Við bognum en við brotnum ekki. Mótlætið hefur keyrt okkur saman. Við erum ekk­ert endi­lega sam­mála um leið­irnar en við höfum að mestu leyti staðið saman á þeirri leið sem hefur verið ákveðin. Hvað mig sjálfan varðar þá hef ég lært hvað það skiptir miklu máli að halda ró sinni og reyna að horfa yfir­vegað á hlut­ina. Mér finnst skipta máli að setja mig í spor þeirra sem maður er í sam­skiptum við. Maður er í sam­skiptum við fólk sem er jafn­vel búið að missa lífs­við­ur­væri sitt og er mjög reitt og síðan er það fólk sem hefur ekki trú á því að Covid sé til og aðilar sem halda að bólu­setn­ing­arnar séu plat. Maður verður að reyna að setja sig í spor þessa fólks sem er með aðrar skoð­anir og horfir á hlut­ina allt öðru­vísi heldur en maður gerir sjálfur og reyna að skilja hvað það er sem lætur það hugsa og tala eins og það gerir og reyna þá að afla upp­lýs­inga og gagna og rök­ræða við fólk um það. Maður hefur lært mikið á sjálfan sig í því að halda ró sinni sama hvað gengur á. Það hefur skipt mig mjög miklu máli.“

Það veit eng­inn hvernig þetta fer með næsta mann en ég var 53 ára þegar ég veikt­ist og í góðu formi og ekki með neina und­ir­liggj­andi sjúk­dóma en ég varð samt svona hundlas­inn.

Og Víðir hefur líka lært mikið af því að hafa sjálfur fengið Covid. „Ég fékk meiri inn­sýn og meiri sam­hug eða samúð með þeim sem eru að veikj­ast svo sem þeim sem veikj­ast illa. Ég skil miklu betur hvað fólk er að ganga í gegnum sem fær þetta ofan í lungun og er að baksa við það, er með lélega súr­efn­is­mettun og er hundlasið og líður mjög illa. Auðvitað er auð­veld­ara að setja sig í spor þess þegar maður er búinn að prófa þetta. En þetta er ekki það sem maður vill að neinn lendi í; það er ekki skemmti­legt að prófa þetta. Það veit eng­inn hvernig þetta fer með næsta mann en ég var 53 ára þegar ég veikt­ist og í góðu formi og ekki með neina und­ir­liggj­andi sjúk­dóma en ég varð samt svona hundlas­inn. Það sem þessar sam­fé­lags­legu aðgerðir ganga dálítið út á er að vernda þá sem verða veik­ari; en við getum ekk­ert pikkað út þann hóp og sagt að ákveð­inn hópur sé miklu lík­legri til að verða veik­ari. Maður veit aldrei hvort sá sem smit­ast næst verði með lítil ein­kenni og las­inn í tvo til þrjá daga eða hvort hann endi á gjör­gæslu­deild og í önd­un­ar­vél.“

Starfi Víðis fylgir mikið álag – ekki bara á tímum kór­ónu­veirunnar. Vinnu­dag­arnir eru margir og oft langir. Og yfir­lög­reglu­þjónn­inn seg­ist vera vanur því. „Ég hef alla tíð unnið mikið og er með nokkuð góða seiglu varð­andi það og svo þarf maður bara að finna sína leið og það skiptir máli að vera við góða heilsu á meðan maður stendur í svona miklu álagi. Það er grund­vall­ar­at­riði að borða vel, taka lýsi, hreyfa sig og hvíla sig. Nota tím­ann vel. Svo er ómet­an­legt eins og ég sagði áðan að hafa svona sterka og öfl­uga fjöl­skyldu á bak við sig sem styður mann. Ég fæ mjög mikla orku frá mínu fólki.“

Flott teymi

Jú, lands­menn þekkja Víði í lög­reglu­bún­ingnum. Hann á sér auð­vitað sögu eins og aðrir. Þegar hann var lít­ill dreymdi hann um að verða flug­maður. Hann er lærður húsa­smiður og vann við smíðar í um 10 ár. Hann fór í björg­un­ar­sveit árið 1986 og var til að mynda sendur vestur í kjöl­far snjó­flóð­anna árið 1995. Hann fór síðan að vinna hjá Almanna­vörnum rík­is­ins árið 2000 í kjöl­far jarð­skjálft­anna á Suð­ur­landi. Almanna­varnir rík­is­ins voru lagðar niður þremur árum síðar og starfs­menn fluttir til rík­is­lög­reglu­stjóra og seg­ist Víðir hafa verið einn af fjórum starfs­mönnum sem fóru þangað. Hann ákvað síðan að fara í Lög­reglu­skól­ann árið 2006. „Ég hef mjög lítið unnið sem almennur lög­reglu­maður. Ætli þeir sem vinna á göt­unni kalli mig ekki „papp­írs­löggu“; ég hugsa það.“

Það eru ekki margir áber­andi eins og ég, Alma og Þórólfur en það fólk sem stendur okkur næst í vinn­unni vinnur ekk­ert styttri vinnu­dag heldur en við þótt við séum ein­hver and­lit á þessu.

Víðir Reyn­is­son hefur upp­lifað margt í starfi sínu en fyrir utan heims­far­aldur má nefna snjó­flóð, jarð­skjálfta og eld­gos. Og álagið er oft mikið eins og þegar hefur komið fram. „Það hafa verið nokkrar nætur sem maður hefur ekki sofið. Hugurinn hefur verið á flugi og maður hefur verið að velta því fyrir sér hvað næstu dagar beri í skauti sér í þessum málum. Það eru ekki margir áber­andi eins og ég, Alma og Þórólfur en það fólk sem stendur okkur næst í vinn­unni vinnur ekk­ert styttri vinnu­dag heldur en við þótt við séum ein­hver and­lit á þessu. Það er teymi sótt­varna­læknis og almanna­varna sem stendur á bak við þetta allt saman og það er nátt­úr­lega fullt af ótrú­legum karakt­erum í því. Maður reynir að horfa á jákvæðu hlið­arnar á svona ham­förum og eitt af því sem þessi atburður hefur gert er að ég hef kynnst ótrú­lega mikið af fólki sem er svo flott í því sem það er að gera og er algjör­lega laust við það að vera með ein­hver vand­ræði og vesen heldur er lausn­a­miðað. Og það er alveg sama hvað kemur upp á borðið á okkar dag­legu fundum; það er alltaf ein­hver sem seg­ist ætla að taka eitt­hvað verk­efni að sér.“

Þríeykið er lands­þekkt og segir Víðir að það sé í sjálfu sér skrýtið. „Ætli það séu ekki mestu áhrifin sem það hefur á mann er að maður finnur þá ábyrgð sem maður hefur og leggur sig ennþá meira fram við að sinna verk­efn­unum af trú og kær­leika sem maður hefur fyrir þessu starfi og fólk­inu í sam­fé­lag­inu. Þegar manni er treyst fyrir svona verk­efni þá er maður stoltur af því að fá þetta traust og leggur sig ennþá meira fram við að sinna verk­efn­unum vel.“

Indíánatjald og bangsi

Víðir á líf fyrir utan vinn­una. Auðvitað. Hann er kvæntur og eiga hjónin tvö börn og eitt barna­barn sem er eins og hálfs árs. Það er lítil stelpa.

„Ég kalla hana stundum leyni­vopnið mitt en það er ein­hver vítamín­sprengja að sitja með henni og púsla, fara í indíána­tjaldið, leika með bangs­ann, syngja eða lesa ein­hverjar sögur. Hjartað í mér stækkað mikið við að verða afi og við erum svo heppin að litla fjöl­skyldan býr rétt hjá okkur þannig að sam­gang­ur­inn er mik­ill. Það er bara ótrú­lega skemmti­legt og gaman að fá að taka þátt í upp­eldi á nýjum ein­stak­lingi.“

Ég fékk mér heitan pott og var að smíða í kringum hann og gera það skemmti­legt. Svona vinna hreinsar hug­ann.

Svo eru það áhuga­málin. „Mér finnst vera gaman að vera úti og hreyfa mig. Ég spila golf. Það er hjóna­sportið en við hjónin erum saman í golf­inu og það er það sem við gerum í frí­tím­anum á sumrin en þá reynum við að spila golf eins oft og hægt er. Síðan fórum við til Spánar í fyrra­haust og spil­uðum þar golf í nokkra daga en það var rosa­lega afslapp­andi og gef­andi að vera bara úti í góðu veðri og leika sér. Það var alveg frá­bært. Síðan finnst mér vera mjög gaman að vinna í garð­inum; mér finnst vera gaman að smíða og ég gerði eins og margir í „covidinu“: Ég fékk mér heitan pott og var að smíða í kringum hann og gera það skemmti­legt. Svona vinna hreinsar hug­ann.“

Víðir segir að það hvað börnin sín séu góðar mann­eskjur séu hans mesti sigur. „Ég held að það sem maður er stolt­astur af sé að ég á tvö börn og við hjónin erum held ég bæði jafnstolt af því hvað þau eru góðir ein­stak­lingar og hvað þeim er annt um vini sína og sam­borg­ara. Þau vinna bæði svo­lítið í þeim geira að hlúa að sam­borg­urum sínum þannig að maður er mjög stoltur af því.“

Sumarlandið

Lífið getur verið eins og hafið á lygnum degi eða þegar stormar geisa. Víðir er spurður um það erf­ið­asta sem hann hefur gengið í gegnum. „Það er svo margt í líf­inu sem getur reynt á mann. Ég var nú bara innan við þrí­tugt þegar góður vinur minn dó úr krabba­meini og síðan annar nokkrum árum seinna. Þetta reynir auð­vitað á í þéttum vina­hópi og það er alltaf erfitt að missa. Maður vinnur sig í gegnum það þótt maður veik­ist eitt­hvað og hefur trú á því að maður nái heilsu aftur. Hitt er erf­ið­ara og slíkt reynir á mann. Það er líka ýmis­legt sem ég hef upp­lifað í starf­inu sem hefur verið erfitt en ég hef í tæp 30 ár unnið í kringum slys og ham­farir svo sem bílslys og snjó­flóð og það er ekki auð­velt. Ég held að slíkt markeri alla jafn­vel þótt menn séu vel þjálfaðir og með mikla reynslu. Sem betur fer hefur orðið mikil breyt­ing á því í seinni tíð að menn vinna úr því ann­að­hvort með félögum sínum, fag­fólki eða fjöl­skyldu sinni. Við sem höfum verið að vinna í tengslum við Covid erum til dæmis öll með okkar leiðir til þess að vinna úr erf­iðum dögum; við setj­umst reglu­lega niður og ræðum málin og förum yfir það sem hefur verið erfitt og svo höfum við líka aðgang að fag­fólki sem hjálpar okkur í gegnum þetta. Það er sem betur fer liðin tíð í þessum heimi að normið sé að harka af sér, bíta á jaxl­inn og halda bara áfram. Við erum komin lengra heldur en það í þessu. Það er fag­fólk sem hjálpar okkur á erf­iðum stundum í þessu bara eins og fólk fer til læknis þegar það er lasið.“

Víður hefur kynnst dauð­anum í gegnum starf sitt og einka­líf. Hvað er dauð­inn í huga hans?

„Ég ólst upp í krist­inni trú og þar er dauð­inn auð­vitað ekk­ert enda­lok. Ég hef svo sem ekk­ert velt því mikið fyrir mér nákvæm­lega hvað hann er en dauð­inn er nú fyrir flesta ein­hvers konar enda­lok; það er að segja fyrir þá sem eftir lifa og eru þetta þá oft erf­iðar kveðju­stundir. Það er stundum sagt að gam­alt fólk og veikt sé satt líf­daga og það sé þá ákveð­inn léttir þegar það deyr en sorgin er samt sem áður sterk þegar kemur að kveðju­stund­inni. Ég held að það sé eng­inn sem und­ir­búi sig alveg undir það að þurfa að kveðja ást­vini sína, hvað þá þegar það ger­ist snögg­lega eins og í slysum. Dauðinn fyrir okkur flest er sorg og það er bara spurn­ing hversu lengi hún varir og hvernig maður lærir að lifa með henni.“

Víðir er spurður hvort hann telji að eitt­hvað taki við að þessu lífi loknu.

„Já, mér finnst gott að trúa því að það sé eitt­hvað sum­ar­land eins og sumir kalla það.“

2022

Árið 2021 er liðið í ald­anna skaut og aldrei það kemur til baka. Víðir segir að ákveðnar hefðir ríki á heim­il­inu á gamlárs­kvöld. Nánasta fjöl­skyldan borð­aði saman á heim­ili hjón­anna og yfir­leitt er nauta­kjöt í mat­inn síð­asta kvölds árs­ins. „Svo er horft á skaupið og síðan er farið út að sprengja. Það er mis­mikið á milli ára. Ég var lengi virkur í björg­un­ar­sveit­ar­starfi og þegar ég var í Hjálp­ar­sveit skáta í Reykja­vík sá ég um flug­elda­sýn­ingar í langan tíma þannig að ég er vanur að skjóta upp stórum flug­eldum eins og á Menn­ing­arnótt og á stórum sýn­ingum. Við fjöl­skyldan erum alltaf með flug­elda á gamlárs­kvöld og höfum gaman af að skjóta þeim upp.“

Ég held að skila­boðin séu nátt­úr­lega bara að við getum að mörgu leyti horft til baka til síð­ustu tveggja ára og klappað hvert öðru á öxl­ina fyrir þraut­seigj­una fyrir að hafa staðið saman í gegnum þetta.

Hver eru skila­boð yfir­lög­reglu­þjóns almanna­varn­ar­sviðs hjá rík­is­lög­reglu­stjóra til þjóð­ar­innar um ára­mót?

„Ég held að skila­boðin séu nátt­úr­lega bara að við getum að mörgu leyti horft til baka til síð­ustu tveggja ára og klappað hvert öðru á öxl­ina fyrir þraut­seigj­una fyrir að hafa staðið saman í gegnum þetta. Þetta er ekk­ert búið að vera auð­velt; það er mjög mikið af fólki búið að eiga mjög erfitt. Mjög margir hafa misst vinn­una og margir hafa veikst og svo hafa 37 manns lát­ist. Fjöl­skyldur þeirra sitja eftir með þá sorg. Þannig að það hafa margir átt erfitt. Við verðum líka að horfa á það að við höfum sem þjóð og sem sam­fé­lag gert gott og staðið okkur vel og ég held að ára­móta­heitið okkar ætti að vera að lifa í vel upp­lýstu og gagn­rýnu þjóð­fé­lagi, vera ófeimin við að ræða málin og taka umræð­una um ekki bara Covid heldur sam­fé­lagið okkar og í hvernig sam­fé­lagi við viljum lifa. Það hefur að und­an­förnu verið mikil umræða um ofbeld­is­menn­ing­una sem svo hefur verið kölluð og ég held að það skipti líka miklu máli fyrir okkur að halda þeirri umræðu áfram. Við eigum það langt í land með að við séum með ásætt­an­legt ástand í þeim málum og við megum ekki gleyma því en þó sú umræða hafi flogið hátt í haust þá finnst mér hún heldur vera að minnka. Ég held við eigum að taka þá umræðu mjög gagn­rýnið og kurt­eis­lega en ákveðið á nýju ári. Það sama gildir um sótt­varn­ar­að­gerðir: Við eigum að halda áfram að ræða málin, draga fram nýj­ustu þekk­ing­una og vís­indin og taka upp­lýstar ákvarð­anir um hvernig við vinnum þetta áfram.“

Víðir segir að árið 2022 legg­ist ann­ars bara vel í sig. „Þetta verður erfitt til að byrja með en svo fer að vora. Við skulum hins vegar vera undir það búin að fyrstu vikur árs­ins verði þungar og erf­iðar og það væri kannski gott að hafa jóla­ljósin okkar uppi extra lengi þetta árið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu