„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Meirihluta lesenda Mannlífs fannst Skaupið lélegt eða í lagi: „Ég fílaði eldgosagrínið alveg“

Meirihluta lesenda Mannlífs fannst Skaupið lélegt eða í lagi: „Ég fílaði eldgosagrínið alveg“

Á slag­inu 22:29 í gær­kvöldi sátu lík­leg­ast vel­flestir lands­menn límdir við sjón­varps­skjái sína og fylgd­ust með Ára­mótaskaup­inu. Allir hafa álit á Skaupinu og getur það verið jafn mis­jafnt og við erum mörg. Mannlíf setti í loftið könnun að Skaupinu loknu og spurði ein­fald­lega „Hvernig fannst ykkur Skaupið?“

Nið­ur­stöð­urnar eru þessar.

Rúmlega 40% af þeim sem kusu þóttu Skaupið ömur­legt. Rúm 22% sögðu það frá­bært og rúm 45% fannst það „Svona allt í lagi“.
Ekki nema um 2% þeirra sem tóku þátt í könn­un­inni horfðu ekki á Skaupið.

Mannlíf fékk einnig nokkra val­in­kunna álits­gjafa til að leggja mat sitt á Ára­mótaskaupið.

Hildur Eir Bolla­dóttir, prestur.

Mér finnst afar ólík­legt að nokkur muni sitja eftir með sárt ennið eftir skaupið í ár, eng­inn tek­inn fyrir með mjög mein­legum hætti enda voru mörg stærstu mál árs­ins 2021 það erfið að kannski vildu höf­undar skaups­ins fara mjúkum höndum um þjóð­arsál­ina. Skaupið sótti í sig veðrið þegar á leið, Kristín Þóra Har­alds­dóttir átti stór­leik sem Lilja Alfreðs­dóttir, mér fannst karla­björg brand­ar­inn mjög góður og satt best að segja hló ég líka upp­hátt að krabba­meins­sýna brand­ar­anum, Kötlu­grínið var gott svo voru bara líka þarna leik­arar sem eru alltaf fyndnir.

Eva Ruza Miljevic, fjöl­miðla­kona og skemmti­kraftur með meiru.

Ára­mótaskaupið byrj­aði vel með upp­hafs­at­rið­inu og framan af hugs­aði ég, já þetta er að svín­virka. Ég skelli­hló til dæmis yfir kaðla­at­rið­inu og fjöl­skyld­unni sem skellti sér að eld­gos­inu, tengdi stíft við það að góla á fjöl­skyld­una að passa sig á covidkaðlinum. Ég hló líka hatt yfir Only Fans pabb­anum og 75.000 kr tips­inu hans. Eeeeen hins­vegar fór það allt í einu að missa pung og ég fór að detta út. Villi Neto er ótví­ræður ára­mótaskaups­meist­ari og ég hefði viljað sjá hann loka skaup­inu með ein­hverri neglu. Hvar var atriðið um alla sem tóku sprett­inn í Laug­ar­dals­höll­ina eins og brjál­æð­ingar til að fá fyrstu spraut­una? Og hvaaaaar var Bónus svína­skets­inn!? Ég hefði viljað sjá það í skaup­inu. Skaupið fær 6,3 í ein­kunn sem er hægt að námunda upp í 6,5. Krakkaskaupið fær hins­vegar 10 í ein­kunn

Grétar Þór Eysteins­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði.

Mér hálf-síð-mið­aldra karl­inum hefur yfir­leitt fund­ist ára­mótaskaupið vera ágætt fyrir mína parta. Gildir þá einu hvort ég hef skelli­hlegið að öllu Skaupinu eða ekki, að það hefur alltaf mátt finna eitt­hvað gott til að hlæja að og svo botnar maður ekk­ert í sumu og finnst eitt­hvað líka vera mis­heppn­aðir fimmeyr­ingar. Þetta skaup er engin und­an­tekn­ing frá þessu. Mér fannst nú brand­ar­inn um fót­boltalands­liðið vera ágætis hug­mynd en var teygt úr honum um of. Það sem ekki var teygt um of var taln­ingin í Borg­ar­nesi. Þar hefði mátt gera meira úr en gert var og einn stuttur fimmeyr­ingur var eini afrakst­ur­inn. En nóg af ein­hverri nei­kvæðni – sem á alls ekki að vera aðal­inntakið hér. Mér fannst gaman að því að sjá djamm­þyrsta fólkið tekið í bak­aríið í covidgríninu. Eins skemmtu bólusetningarbesserwisserarnir mér vel og líka fær­sér orða­leik­irnir sem voru skemmti­lega flétt­aðir yfir í að gera grína að öðru – nefni­lega Facebook fólk­inu sem er svo mik­il­vægt og áhrifa­vald­andi. Ég fíl­aði eld­gosa­grínið alveg en topp­ur­inn var þó undir lokin þegar Freyr Eyj­ólfs­son brá sér í gervi Jakobs Frímanns þing­manns og Stuð­manns. Það var bara nóg að sjá Frey.
En semsé, almennt slapp þetta Skaup alveg til hjá mér. Það væri eitt­hvað að ef að hálf-síð-mið­aldra karlfauskur norður í landi myndi hlæja sig mátt­lausan af öllu efn­inu í ára­mótaskaup­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skoðanakönnun Mannlífs

Áfastir tappar draga ekki lífsviljann úr meirihluta fólks
InnlentSkoðanakönnun Mannlífs

Áfastir tappar draga ekki lífs­vilj­ann úr meiri­hluta fólks

Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hélt í fyrra­dag eina eft­ir­minni­leg­ustu ræðu Alþingis í nokkur ár þegar hann ræddi lengi um áfasta tappa á plast­flöskum. Jóni finnst þeir skelfi­legir. „Þetta varðar lýð­heilsu, það augna­blik eða sú mín­úta sem það tekur að skrúfa tapp­ann á það minnkar svona lífs­vilja manns alla­veg­anna um stund. Því þetta er algjör­lega óþol­andi hegðun á tapp­anum,“ sagði...
Draga áfastir tappar úr þér lífsviljann?
InnlentSkoðanakönnun Mannlífs

Draga áfastir tappar úr þér lífs­vilj­ann?

Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hélt í gær eina eft­ir­minni­leg­ustu ræðu Alþingis í nokkur ár þegar hann ræddi lengi um áfasta tappa á plast­flöskum. Jóni finnst þeir skelfi­legir. „Þetta varðar lýð­heilsu, það augna­blik eða sú mín­úta sem það tekur að skrúfa tapp­ann á það minnkar svona lífs­vilja manns alla­veg­anna um stund. Því þetta er algjör­lega óþol­andi hegðun á tapp­anum,“ sagði...
Yfirgnæfandi meirihluti vill halda flugvellinum í Vatnsmýri
InnlentSkoðanakönnun Mannlífs

Yfir­gnæf­andi meiri­hluti vill halda flug­vell­inum í Vatns­mýri

Flug­völl­ur­inn í Vatns­mýri er enn og aftur í umræðu meðal almenn­ings og er hægt að þakka Einari Þor­steins­syni frá­far­andi borg­ar­stjóra fyrir það en hann sprengdi meiri­hlut­ann í Reykja­vík upp vegna flug­vall­ar­ins. Deilur um flug­völl­inn hafa staðið yfir ára­tugum saman og vilja sumir að hann verði færður hið fyrsta meðan aðrir vilja hafa hann á sínum stað. En við spurði les­endur...
Vilt þú halda flugvellinum í Vatnsmýri?
InnlentSkoðanakönnun Mannlífs

Vilt þú halda flug­vell­inum í Vatns­mýri?

Flug­völl­ur­inn í Vatns­mýri er enn og aftur í umræðu meðal almenn­ings og er hægt að þakka Einari Þor­steins­syni frá­far­andi borg­ar­stjóra fyrir það en hann sprengdi meiri­hlut­ann í Reykja­vík upp vegna flug­vall­ar­ins. Deilur um flug­völl­inn hafa staðið yfir ára­tugum saman og vilja sumir að hann verði færður hið fyrsta meðan aðrir vilja hafa hann á sínum stað. En við spyrjum les­endur...
Fáir vilja leyfa sameiningu Arion og Íslandsbanka
InnlentSkoðanakönnun Mannlífs

Fáir vilja leyfa sam­ein­ingu Arion og Íslands­banka

Á föstu­dag­inn var til­kynnt að Arion banki vildi kanna þann mögu­leika að sam­ein­ast Íslands­banka en um er að ræða næsta stærsta og þriðja stærsta banka Íslands. Viðbrögð almenn­ings og sér­fræð­inga hafa verið nokkuð mis­jöfn. Telja sumir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið eigi ekki og muni ekki leyfa sam­ein­ingu sem þessa meðan aðrir telja að sam­ein­ing muni vera jákvæð fyrir almenn­ing. En við spurðum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins