„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ráðgátan um Loga og hótelherbergið: „Mér sýnist að þeir viti af þessu“

Ráðgátan um Loga og hótelherbergið: „Mér sýnist að þeir viti af þessu“
Logi Bergmann Eiðsson

„Sann­leik­ur­inn kemur alltaf í ljós,“ segir Vítalía Lazareva í sam­tali við Loga Bergmann Eiðsson, sem sjá má á skjá­skoti sem gengið hefur um sam­fé­lags­miðla.

Fleiri skjá­skot eru í umferð, meðal ann­ars af sam­tali þar sem Vítalía hefur sam­band við Loga og greinir honum frá því að atvik sem hafi átt sér stað þeirra á milli hafi reynst henni þung­bært. Hún ætli sér lengra með málið. Í sam­tal­inu svarar Logi fálega til að byrja með, en segir svo ein­fald­lega „Æ hættu þessu rugli“.

Sam­skipti þeirra enda þó ekki þar. Ein­hverju síðar, þann 21. des­em­ber, sendir Vítalía Loga eft­ir­far­andi skila­boð:

„Mætti ég biðja þig um að vera ekki að spurja spurn­inga um einka­líf mitt í vinn­unni aftur.“

Logi svarar þá; „Já. Fyr­ir­gefðu“.

Vítalía segir honum þá að hún kunni ekki að meta að hann skuli halda því fram að ekk­ert hafi gerst, en hafi síðan spurt hana út í málið í per­sónu. „Stangast vel á við það sem þú vilt halda fram að sé lygi. Sann­leik­ur­inn kemur alltaf í ljós.“

„Já. Hann gerir það yfir­leitt,“ segir Logi þá.

Vítalía spyr Loga því næst; „Hvernig stendur á því að þú sért búinn að segja Ara frá þessu?“

Logi seg­ist þá ekki hafa talað við Ara.

„Hann veit af þessu og spurði mig per­sónu­lega hvort þú yrðir kærður fyrir, þess vegna spurði ég þig,“ segir Vítalía þá.

„Það er ekki frá mér komið. Ég hef ekki nefnt þetta við hann,“ segir Logi.

„Hver veit af þessu? Þér vit­andi það er að segja,“ spyr Vítalía þá.

Logi svarar; „Ég veit það ekki en mér sýn­ist að þeir viti af þessu.“

Vítalía spyr þá; „Eru þeir búnir að vera að „hóta“ eitt­hverju eða nefna þetta við þig?“

„Nei. Hafa reyndar spurt mig en ég hef reynt að eyða þessu,“ svarar Logi.

Einn Ari tengdur frásögn Vítalíu

Einn maður að nafni Ari er sagður tengj­ast frá­sögn Vítalíu í hlað­varp­inu Eigin konur, sem hefur sett af stað miklar öldur í sam­fé­lag­inu. Sá er Ari Edwald, fram­kvæmda­stjóri Ísey útflutn­ings, en hann var nafn­greindur í tengslum við potta­ferð, þar sem Vítalía segir nokkra þjóð­þekkta karl­menn hafa mis­boðið henni og farið gróf­lega yfir mörk. Segir hún þá meðal ann­ars hafa þuklað sig og stungið fingrum í enda­þarm hennar.

Ari fór í leyfi frá störfum hjá Ísey í gær í kjöl­far þess­ara ásak­ana. Stjórn­ar­for­maður Ísey stað­festi þetta.

Ari Edwald.

Atvikið í golfferðinni og kynlífsspilin

Samtalið hér að ofan bendir til þess að sá Ari sem talað er um hafi vitað af ein­hverju sem honum þótti ástæða til þess að spyrja hvort Logi yrði kærður fyrir.

Logi Bergmann er mað­ur­inn sem sak­aður er um að hafa gengið inn á þau Vítalíu og Arnar Grant á hót­el­her­bergi þegar vin­irnir voru í golf­ferð í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Í kjöl­farið segir Vítalía Arnar hafa boðið Loga með þeim inn á her­bergi og gefið honum leyfi til þess að eiga kyn­ferð­is­leg sam­skipti við Vítalíu. Þetta hafi hann gert til þess að kaupa þögn Loga, svo ekki kæm­ist upp um fram­hjá­hald Arnars.

„Hann dregur spil úr ein­hverju kyn­líf­s­leikja­spili, sem er ein­hver svona mönun; eitt­hvað sem maður á að gera. Þá á ég bara að fara að sjúga á mann­inum typpið og hann að fara niður á mig. Og þetta er gert til þess að hann fái að halda þögn; svo þessi vinur hans fari ekki og segi kon­unni hvað er í gangi. Ég horfi í augun á honum og segi: Ég vil ekki meira, viltu hætta þessu. Hann sagði bara: Vítalía, þetta er allt í lagi, ég er með þér.

Ég get ekki meira og ég er að fara að gráta og hann segir bara: Þetta er allt í lagi, því ég er með þér.“ Svo hljóðar hluti frá­sagnar Vítalíu úr við­tal­inu sem Edda Falak tók við hana í hlað­varp­inu Eigin konur.

Logi Bergmann er kom­inn í frí frá útvarps­stöð­inni K100. Hann birti yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann kvaðst sak­laus af ásök­unum. „Ekkert er fjær mér en að þröngva annarri mann­eskju til kyn­ferð­is­legra athafna,“ sagði Logi í yfir­lýs­ingu sinni.

Hann sagð­ist hins­vegar sekur um að hafa farið yfir mörk í einka­lífi fólks „með því að hafa farið inn í her­bergi sem ég átti ekki að fara inn í. Það var takt­laust og heimsku­legt og ég hef þegar tjáð við­kom­andi að ég taki ábyrgð á því og mér þyki það leitt.“

Vítalía Lazareva. Skjáskot úr hlað­varp­inu Eigin konum.

„Mér sýnist að þeir viti af þessu“

Í skjá­skot­inu af sam­tali þeirra Vítalíu og Loga virð­ist atvik vera til umræðu, sem Vítalía segir Ara hafi spurt hvort Logi yrði kærður fyrir. Logi gerir ekki athuga­semd við það í sam­tal­inu. Þegar Vítalía spyr hann hvernig standi á því að hann hafi sagt Ara frá, seg­ist hann ekki hafa talað við Ara, en gefur ekki á nokkurn hátt í skyn að það sé ekk­ert til að segja frá. Hann segir líka „mér sýn­ist að þeir viti af þessu.“

Miðað við yfir­lýs­ingu Loga frá því í gær er þarna ein­ungis verið að ræða atvik þar sem Logi hafi fyrir mis­tök gengið inn á Arnar Grant og Vítalíu á hót­el­her­bergi. Ekkert meira hafi átt sér stað.

Hér að neðan má sjá skjá­skotin:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins