„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðrúnu var byrlað ólyfjan og nauðgað en mætti fordómum lögreglu: „Tókstu þetta kannski inn sjálf?“

Guðrúnu var byrlað ólyfjan og nauðgað en mætti fordómum lögreglu: „Tókstu þetta kannski inn sjálf?“

Guðrún Ósk á að baki sér tvö ofbeld­is­sam­bönd og nauðgun. Hún segir Lög­regl­una í Reykja­nesbæ hafa sýnt sér for­dóma, en hún er greind með fíkni­sjúk­dóm og er í bata frá honum.

Hún sagði sögu sína í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur.

Guðrún er þrí­tug og alin upp í Keflavík. Hún var ung þegar hún eign­að­ist sitt fyrsta barn. Þegar dóttir hennar var eins árs kynnt­ist hún manni sem hún var með í sex ár; það sam­band ein­kennd­ist af neyslu og ofbeldi, en þau eign­uð­ust eina dóttur saman.

Guðrún náði alltaf að hætta neyslu á meðan hún gekk með börnin sín, en sjúk­dóm­ur­inn tók alltaf stjórn­ina aftur sem varð til þess að yngri dóttir hennar var tekin með lög­reglu­valdi eftir að Guðrún hætti að svara barna­vernd.

Eins og þeir sem þekkja til vita, þá er fíkni­sjúk­dómur erf­iður að eiga við. Sjúk­dómur sem ein­kenn­ist af föllum, mis­tökum og þrá­hyggju sem yfir­tekur líf þitt. Guðrún náði að losa sig úr fjötrum fíkn­ar­innar og skap­aði sér nýtt líf fyrir sig og börnin sín.

Guðrún kynnt­ist öðrum manni í gegnum Facebook, það sam­band ent­ist í tvö og hálft ár.

Maðurinn var í fang­elsi þegar þau kynnt­ust en Guðrún segir það ekki hafa stoppað hann af í að stjórna henni.

Því lengra sem leið á sam­bandið, því mun verra varð ofbeldið.

Parið eign­að­ist dreng saman, en loks fann Guðrún kjarkinn til að loka á sam­skiptin við mann­inn, en hann reynir enn í dag að hafa sam­band við hana.

Maðurinn er nú aftur kom­inn í fang­elsi og hefur Guðrún ítrekað reynt að fá fang­els­is­mála­stofnun til að loka á að hægt sé að hringja í núm­erið hennar úr fang­els­inu, en því hefur ekki verið sinnt.

Þegar Guðrún var 18 ára var henni byrlað ólyfjan og nauðgað af ókunn­ugum manni; hún leit­aði sér aðstoðar á slysa­deild þar sem tekin voru sýni og hún skoðuð.

Þegar hún tal­aði við lög­regl­una í Reykja­nesbæ og ætl­aði að kæra málið mætti hún að sögn for­dómum.

Málinu var snúið yfir á hana og hún spurð hvort hún hafi verið að nota fíkni­efni og gefið til kynna að hún gæti vel hafa tekið inn lyfin sjálf.

Guðrún seg­ist vera þekkt af lög­regl­unni í heimabæ sínum enda oft verið hand­tekin fyrir fíkni­efna­laga­brot. Aldrei var henni skip­aður lög­fræð­ingur og málið var síðan fellt niður.

„Ég hafði aldrei trú á þessu því þeir höfðu aldrei trú á mér“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins