„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Maria Gomez er skapstór og skíthrædd við drauga

Maria Gomez er skapstór og skíthrædd við drauga

Fag­ur­ker­inn og mat­gæð­ing­ur­inn, Maria Gomez, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Maria heldur úti ein­stak­lega fal­legum vef, Paz.is, þar sem hún deilir góm­sætum upp­skriftum, ásamt snið­ugum hug­myndum fyrir heim­ilið. Einnig er hún með Instagram reikn­ing með sama nafni, Paz.is, sem Mannlíf mælir með að fylgja, en óhætt er að segja að maður fyllist af inn­blæstri við að skoða fal­legar myndir og hug­myndir Mariu.
Mannlíf komst að því að Maria er með stórt skap, hún er skít­hrædd við drauga og hún segir fjöl­skyld­una vera það eina sem skipti máli þegar upp er staðið og góð heilsa. 

Fjöl­skyldu­hagir? Gift Ragnar Má Reyn­is­syni og saman eigum við fjögur börn og eitt barna­barn. Gabríelu 22 ára, Reyni Leo 8 ára, Mikael 7 ára og Ölbu 6 ára, litla nýjasta við­bótin er svo Aríana sem er 6 mán­aða og auga­steinn fjöl­skyld­unnar. 

Menntun/atvinna? Ég er með BS í ferða­mála­fræði frá Háskóla Íslands, en ég starfa í dag á sam­fé­lags­miðlum og já það er alvöru starf skal ég segja ykkur. Ég er með matar- og heim­il­isvef­inn www.paz.is þar sem ég gef ein­föld ráð fyrir fram­kvæmdir á heim­il­inu og ein­faldar og góðar mat­ar­upp­skriftir. Einnig er ég með Instagram reikn­ing­inn Paz.is þar sem er nóg að gera að sýna frá heim­ili og góðum mat. 

Upp­á­halds sjón­varps­efni? Ég elska breska saka­mála­þætti eins og The fall, en ég held samt að mitt allra upp­á­halds­sjón­varps­efni í gegnum tíð­ina sé Desperate Housewives.

Leikari? Morgan Freeman og Meryl Streep.

Rit­höf­undur? Liza Marklund.

Bók eða bíó? Bók. 

Besti matur? Maturinn hennar titu Paz eða frænku Paz.

Kók eða Pepsí? Kók. 

Maria Gomez

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Sá sem ég hef komið á er Annecy í Ölpunum í Frakk­landi og allt svæðið þar um kring.

Hvað er skemmti­legt? Að breyta og flippa húsum, taka eitt­hvað gam­alt og lúið hús og gjör­breyta því í glæsi­höll. 

Hvað er leið­in­legt? Að leið­ast. 

Hvaða flokkur? Æ ég veit ekki allir þessir flokkar eiga það sam­eig­in­legt að vera með fögur lof­orð sem sjaldan stand­ast.

Hvaða skemmti­staður? Hef ekki farið á skemmti­stað síðan ég veit ekki hvenær, en mér finnst mjög gaman að bjóða fólki heim eða vera boðið heim til fólks í gott mat­ar­partý. 

Kostir? Ég tel mig vera mjög vand­virka, áreið­an­lega og skiln­ings­ríka

Lestir? Ég er mjög óþol­in­móð og með stórt skap.

Hver er fynd­inn? Mikael sonur minn og Aríana litla barna­barnið sem fær mig alltaf til að hlægja. 

Hver er leið­in­legur? Besserwisserar geta farið óstjórn­lega í taug­arnar á mér. 

Trúir þú á drauga? Já og ég er skít­hrædd við þá, get ekki horft á hryll­ings- eða drauga­myndir enn þann dag­inn í dag og verð eins og Alba, 6 ára dóttir mín, sem þarf að fylgja á sal­ernið út af drauga­hræðslu eftir að hafa horft á slíkar myndir haha.

Stærsta augna­blikið? Þegar börnin mín fædd­ust klár­lega. 

Mestu von­brigðin? Hvað er stundum leið­in­legt að vera full­orð­inn, hlakk­aði svo til þess þegar ég var krakki og þá sér­stak­lega að fá að ráða alveg yfir mér sjálf, já og svo auð­vitað covid enn og aftur. 

Hver er draum­ur­inn? Að fá að lifa sem lengst heil­brigðu og góðu og lífi og sjá börnin mín vaxa úr grasi.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að hafa loks­ins kom­ist til fjöl­skyld­unnar á Spáni á covidtíma. 

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Nei, svo sann­ar­lega ekki en þessum stærstu jú. 

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Já já fullt en þeir eru flestir of klúrir til að skrifa þá hér.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þegar ég heilsa fólki og er að fara manna­villt, þar sem ég er frekar nær­sýn en nota gler­augun bara heima á það til að ger­ast aðeins of oft. 

Sorg­leg­asta stundin? Þegar nán­ustu ætt­ingjar láta lífið. 

Mesta gleðin? Börnin mín öll stór sem smá.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Fjöl­skyldan er það eina sem skiptir máli þegar upp er staðið og góð heilsa auð­vitað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stækkunarglerið

Bjarkey elskar að dansa – Fyndnasta fólkið er Svandís Svavars og Ari Eldjárn
Menning

Bjarkey elskar að dansa – Fyndn­asta fólkið er Svandís Svavars og Ari Eldjárn

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra er undir stækk­un­ar­gleri Sjóarans. Hún hefur alla jafna í mörg horn að líta og seg­ist eiga það til að ofhugsa hlut­ina. Hún segir ískalt fjalla­vatn vera besta drykk­inn og er lítið fyrir kók og pepsí. Bjarkey Olsen er að eigin sögn rök­föst Excel-kona. Fjöl­skyldu­hagir? Afskap­lega vel gift honum Helga mínum Jóhanns­syni. Börnin okkar eru Tímon Davíð,...
Baldur varð bóndi 13 ára gamall: „Felix er frábær heimilis DJ“
Menning

Baldur varð bóndi 13 ára gam­all: „Felix er frá­bær heim­ilis DJ“

Baldur Þór­halls­son er mjög heima­kær og kann ekki aðeins á þvotta­vél, heldur þurrkara líka. Hann er alæta á tón­list og segir Felix frá­bæran „heim­ilis Dj“. Upp­á­halds ljóð Baldurs er ljóð eftir maka hans, Felix Bergsson og stærstu stund­irnar í lífi hans eru barn­eign­irnar og barna­börnin. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Ég er alinn upp á bænum Ægissíðu í Rang­ár­valla­sýslu og er mjög...
Konan segir Ástþór „sérstaklega rómantískan“: „Mér leiðast þvottavélar en er hrifin af þvottakonum“
Menning

Konan segir Ástþór „sér­stak­lega róm­an­tískan“: „Mér leið­ast þvotta­vélar en er hrifin af þvotta­konum“

Ástþór Magn­ús­son er að sögn eig­in­konu hans alveg sér­stak­lega róm­an­tískur. Hann vill gefa þjóð­inni ávísun ef hann kemst á Bessa­staði og ætlar að leita frið­ar­samn­inga við Rússa, verði hann kos­inn for­seti. Þá leið­ist Ástþóri þvotta­vélar en er hrif­inn af þvotta­konum sem hugsa um hann. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Þing­vellir. Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil? Nei. Hvaða breyt­ingar viltu...
Helstu vonbrigði Viktors: „Að Selma hafi verið rænd sigrinum í Evrósjón“
Menning

Helstu von­brigði Viktors: „Að Selma hafi verið rænd sigrinum í Evrósjón“

Ólafur Ragnar Grímsson er upp­á­halds for­seti Viktors Trausta­sonar, for­seta­fram­bjóð­anda. Helsta fyr­ir­mynd hans er kvik­mynda­k­arakter og hann borðar þorra­mat en bara þegar hann er í boði. Þá vill hann breikka þjóð­veg­inn og heldur upp á ljóðið Slysa­skot í Palest­ínu. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Kólus­botnar. Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil? Í stjórn­ar­skrá er engin krafa um það að for­seti sitji...
Halla safnaði fyrir bílprófi með því að þvo af fjölskyldunni: „Skylda að dansa af og til“
Menning

Halla safn­aði fyrir bíl­prófi með því að þvo af fjöl­skyld­unni: „Skylda að dansa af og til“

Halla Hrund Loga­dóttir safn­aði fyrir bíl­próf­inu með því að þvo af fjöl­skyld­unni. Hún segir að það sé nauð­syn­legt að dansa annað slagið og sér róm­an­tík­ina í hvers­dags­leik­anum. Þá er hún sólgin í harð­fisk. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Sveitin mín á Síðu, þó að landið okkar í heild sé ger­semi. Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil? Ég myndi telja tvö...
Steinunn hefur neytt ólöglegra fíkniefna: „Vil tryggja yfirráð yfir auðlindum okkar“
Menning

Steinunn hefur neytt ólög­legra fíkni­efna: „Vil tryggja yfir­ráð yfir auð­lindum okkar“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir er afskap­lega róm­an­tísk að eigin sögn. Hún við­ur­kennir að hafa neytt ólög­legra fíkni­efna á ævinni og seg­ist hafa lært að meta augna­blikið þegar hún meðal ann­ars fylgdi Stefáni Karli sínum í dauða­stríði hans. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Þeir eru nokkrir, Strandir eins og þær leggja sig, N-Þing­eyj­ar­sýsla, hálendi Íslands og auð­vitað allar almenn­ings­sund­laugar lands­ins. Á for­seti að sitja...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins