„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mikil lífsgæðaskerðing að missa tennurnar: „Þú verður hræddur við að hoppa, hjóla, kyssa einhvern“

Mikil lífsgæðaskerðing að missa tennurnar: „Þú verður hræddur við að hoppa, hjóla, kyssa einhvern“

Blaða­maður Mannlífs lagði á dög­unum land undir fót til þess að skoða umhverfi tann­lækn­inga í Búdapest sem og svo­kall­aðar túrista­tann­lækn­ingar. Sífellt fleiri Íslend­ingar leggja leið sína til borg­ar­innar í leit að ódýr­ari tann­lækna­þjón­ustu, einkum og sér í lagi þegar um er að ræða viða­meiri aðgerðir. 

Blaða­manni var boðið út á vegum Íslensku Klíník­ur­innar í Búdapest, stofu í eigu Íslend­inga. Umfjöll­unin er gerð í sam­starfi við stof­una.

Blaða­maður Mannlífs ræddi við Oddnýju Jakobs Krist­ín­ar­dóttur, yfir­ráð­gjafa á Íslensku Klíník­inni.

Seinni hluta umfjöll­unar um Íslensku Klíník­ina í Búdapest ásamt við­tal­inu við Oddnýju má finna í helg­ar­blaði Mannlífs.

Oddný Jakobs Krist­ín­ar­dóttir, yfir­ráð­gjafi á Íslensku Klíník­inni.

„Margir átta sig eflaust ekki full­kom­lega á því hvaða keðju­verk­unum það getur valdið að missa tenn­urnar og fá lausa gervi­góma. Við­kom­andi getur ef til vill inn­byrt meiri­hlut­ann af því sem við hin getum inn­byrt en það þarf hins vegar að mýkja allt. Með því að sjóða eða steikja til dæmis græn­meti fer mikið af nær­ingar- og stein­efnum úr því, sem og vítamín.

Það hefur áhrif á heils­una; mag­ann og ristil­inn. Gómarnir taka mikið af bragð­inu úr matnum því bragð­lauk­arnir skerð­ast. Sjálfs­ör­yggið; það fer. Þú verður hræddur við að hoppa, hjóla, renna þér á sleða, kyssa ein­hvern. Þú verður óör­uggur við að láta taka myndir af þér. Þegar þú getur ekki unnið almenni­lega úr fæð­unni geta komið hægða­vanda­mál. Þegar þú tapar stein­efnum og vítamínum úr fæð­unni getur það til dæmis leitt til liða­gigtar, æða­sjúk­dóma og hjarta­sjúk­dóma. Þannig að við getum haldið enda­laust áfram og rakið margt til tann­heilsu. Fólk sem missir tenn­urnar eld­ist hraðar vegna þess að lífs­gæðin skerð­ast.

Þannig að þetta er ekki alltaf spurn­ing um það hvað fólk er gam­alt, heldur hvernig tann­heilsa þess er. Við erum gerð til þess að borða fæðu en ekki taka bara vítamín og stein­efni.“

Oddný segir ýmsar leiðir í boði til að koma í veg fyrir að ástandið verði svona slæmt.

„Til þess erum við hér. Til þess að þessir hópar sem sjá sér ekki fært að við­halda almennri tann­heilsu geti komið til okkar og við passað að þeir hafi það sem við köllum sex­urnar. Það eru sex mik­il­væg­ustu tenn­urnar okkar; þær fremstu. Enda­jaxl­inn og jaxl­inn við hlið­ina á honum eru bara bónus. Þessar sex tennur eru þær mik­il­væg­ustu. Þær sem bíta í sundur, þær sem hjálpa okkur að mylja og þær sem tyggja. Við erum hér til þess að búa til plan fyrir þig, til þess að passa upp á að þær séu í lagi.“

Gervi­tennur, efri gómur.
Gervi­tennur, neðri gómur.

Þessi umfjöllun er gerð í sam­starfi við Íslensku Klíník­ina í Búdapest. Ferð blaða­manns á stof­una sem og þær með­ferðir sem hann und­ir­gekkst voru í boði stof­unnar. Blaða­maður ein­setur sér að fjalla um stof­una og reynslu sína af með­ferð­unum af heið­ar­leika.

Greinina má lesa í heild sinni í helg­ar­blaði Mannlífs.

Greinin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Óvæntur leynigestur tók lagið með Erpi – MYNDSKEIÐ
Menning

Óvæntur leynig­estur tók lagið með Erpi – MYNDSKEIÐ

Erpur Eyvind­ar­son rapp­aði fyrir vini sína í Sri Lanka en bauð svo upp á stór­glæsi­legan leynig­est. Sverrir Þór Sverr­is­son, eða Sveppi eins og hann er iðu­lega kall­aður, tróð óvænt upp með Erpi Blazroca Eyvind­ar­syni í veislu erlendis, senni­lega á Sri Lanka en Erpur hefur und­an­farið unnið sem leið­sögu­maður hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Crazy Puffin, sem sér­hæfir sig í ferðum til landa sem...
Björn sá merkilegt skilti á Máritíus: „Fallegt á síðasta degi ársins“
Menning

Björn sá merki­legt skilti á Máritíus: „Fallegt á síð­asta degi árs­ins“

Björn Þor­láks­son sá fal­lega sýn í gær á ferða­lagi sínu á Máritíus-eyrík­inu. Rit­höf­und­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Björn Þor­láks­son er á ferða­lagi undan ströndum Afríku þessa dag­ana en í gær birti hann ljós­mynd af skilti sem hann sá á alþjóða­flug­vell­inum í höf­uð­borg Máritíus, en þar er bent á sér­stakt bæna­her­bergi, þar sem ekki er spurt um trú heldur geta allir þeir sem...
Skelkaðir farþegar skemmtiferðaskips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND
Heimur

Skelk­aðir far­þegar skemmti­ferða­skips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND

Skelf­ingu lostnir far­þegar skemmti­ferða­skips sendu „kveðju­skila­boð“ til ást­vina af ótta við að þeir myndu „deyja eins og á Titanic“ þegar risa­stormur velti skip­inu í „45 gráður“. Dan So var að yfir­gefa Bar-Svar (e. Pub-Quiz) um borð í skemmti­ferða­skip­inu Royal Caribbean sem sigldi frá Spáni til Miami í Banda­ríkj­unum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag [7. nóv.] þegar hann heyrði „öskrur og glös brotna“. Hinn...
Tásumyndir Siggu Daggar setja internetið á hliðina – Nýtur lífsins með eiginmanninum á Ítalíu
Menning

Tásu­myndir Siggu Daggar setja inter­netið á hlið­ina – Nýtur lífs­ins með eig­in­mann­inum á Ítalíu

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur og eig­in­maður hennar Sævar Eyj­ólfs­son njóta nú lífs­ins í Ítal­íu­sól­inni en hægt er að fylgj­ast með ferða­lagi þeirra á Instagram. Sigga Dögg er skemmti­lega opinn ein­stak­lingur og deilir ævin­týrum sínum með fylgj­endum sínum á Instagram en nýj­ustu ljós­myndir hennar hafa nán­ast sett inter­netið á hlið­ina. Um er að ræða „skyldu tásu­myndir“ eins og hún orðar það...
Glæsileg Dorrit fékk sér sundsprett í miðju þrumuveðri – MYNDBAND
Menning

Glæsileg Dorrit fékk sér sund­sprett í miðju þrumu­veðri – MYNDBAND

Dorrit Moussaieff nýtur lífs­ins á Indlandi um þessar mundir en hún birti í dag mynd­skeið þar sem hún sést fá sér sund­sprett á þaki hót­els í miðju þrumu­veðri. Fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands, Dorrit Moussaieff hefur efni á að ferð­ast og gerir það óspart. Ef marka má myllu­merki hennar á ýmsum Instagram-færslum hennar und­an­farið hefur hún meðal ann­ars notið lífs­ins á Grikk­landi,...
Gjörbreytt Bríet brillerar í Köben með Hr. Hnetusmjöri
Menning

Gjör­breytt Bríet brill­erar í Köben með Hr. Hnetu­smjöri

Bríet Ísis Elfar skellti sér til kóngs­ins Köben á dög­unum ásamt fríðu föru­neyti, þar á meðal Hr. Hnetu­smjöri en til­efnið var gigg í borg­inni en tón­leik­arnir þóttu takast afar vel. Skæl­bros­andi Brí­et­Mynd: Instagram-sjá­skot Söngdívan Bríet birti ljós­myndir og mynd­skeið á Instagram frá ferð­inni en þar sést hún með glæ­nýjan hára­lit og má segja að hún sé nær óþekkj­an­leg með dökku...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins