„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Edda Falak: „Ég svaraði þessum Arnþóri í hálfkæringi“

Edda Falak: „Ég svaraði þessum Arnþóri í hálfkæringi“
Edda Falak, Arnþór Jónsson og Kári Stef­áns­son

„Ég svar­aði þessum Arnþóri í hálf­kær­ingi enda er ég bundin trún­aði við þol­anda. – ég hef engan áhuga á að taka þátt í ein­hverri póli­tík innan SÁÁ.“

Þessa færslu skrif­aði Edda Falak, stjórn­andi hlað­varps­ins Eigin konur, á Twitter í gær­kvöld. Með færsl­unni deildi hún frétt Stund­ar­innar þar sem Kári Stef­áns­son sagð­ist hund­rað pró­sent viss um að það væri ekki hann sem Edda vís­aði í á sam­fé­lags­miðli, hvar hún nefndi þjóð­þekktan mann sem hafi keypt vændi af konu.

Edda ræddi við Stundina í gær og sagð­ist ekki ætla að greina frá því hver mað­ur­inn væri. Upphaf máls­ins má rekja til færslu sem Edda skrif­aði inn í Facebook-hóp­inn Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu; opinn hóp sem telur um 6.500 með­limi.

Fárviðri innan SÁÁ

Frosti Logason, fjöl­miðla­maður og einn stjórn­ar­maður SÁÁ, sendi í gær tölvu­póst á aðra stjórn­ar­með­limi þar sem hann sagði Eddu Falak hafa neitað því að Kári væri mað­ur­inn sem um ræddi. Áður hafði Arnþór Jónsson, fyrr­ver­andi for­maður SÁÁ, sent töluvu­póst á núver­andi stjórn­ar­með­limi þar sem hann gerði því skóna að verið væri að saka Kára Stef­áns­son um að hafa keypt vændi.

„Með­fylgj­andi er skjá­skot frá í gær 2. febr­úar. Konur sem telja sig eiga um sárt að binda vegna ósæmi­legrar fram­komu ein­hvers frægð­ar­mennis, munu lík­lega stíga fram og segja sögu sína. Ef marka má upp­lýs­ing­arnar á mynd­inni gætu þolend­urnir verið skjól­stæð­ingar SÁÁ. Mér hefur verið sagt að ger­and­inn sé Kári Stef­áns­son. Getur þú stað­fest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?,“ skrif­aði Arnþór í tölvu­póst­inum, sem Mannlíf hefur undir höndum.

Í fram­hald­inu dró Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir fram­boð sitt til for­manns SÁÁ til baka og Kári Stef­áns­son steig til hliðar úr stjórn­inni. Þóra Kristín tók ákvörð­un­ina skömmu fyrir fund­inn þar sem kjósa átti nýjan for­mann SÁÁ. Ljóst var að hún gekk að for­manns­stólnum vísum, enda með yfir­burða­stuðn­ing stjórn­ar­með­lima.

Í póst­inum sem Frosti Logason sendi á stjórn­ar­með­limi SÁÁ í kjöl­far þess að Þóra Kristín dró fram­boð sitt til baka segir:

„Þóra Kristín og Kári Stef­áns­son hafa ákveðið að draga sig alfarið úr stjórn sam­tak­anna vegna þeirrar ofbeld­is­hegð­unar sem Arnþór Jónsson og félagar hafa verið að sýna af sér í dag eins og á liðnum árum. Það skal tekið hér fram að Edda Falak hefur stað­fest það við Arnþór að ekki sé um Kára Stef­áns­son að ræða í þessum orðrómi um vændis­kaup sem hún var að fiska eftir á sam­fé­lags­miðlum. Eftir stendur að ítrekað ofbeldi Arnþórs og félaga heldur áfram að eyði­leggja fyrir okkar ágætu sam­tökum og það er miður.“

Segist hafa svarað í hálfkæringi

Nú hefur Edda Falak gefið það í skyn á Twitter að hún hafi svarað spurn­ingu Arnþórs í hálf­kær­ingi. Hún segir einnig í sam­tali við Stundina:

„Ég ætla ekki að greina frá því hver þessi maður er. Ég svar­aði konu úr stjórn SÁÁ og þessum fyrr­ver­andi for­manni SÁÁ í hálf­kær­ingi, þetta var inni­halds­laust svar af því að ég þarf ekki að svara fyrir neitt, enda er ég fyrst og fremst bundin trún­aði gagn­vart þol­and­anum og í öðru lagi hef ég engan áhuga á að taka þátt í ein­hverri póli­tík innan SÁÁ.“

Kári sagð­ist í sam­tali við Stundina vera hund­rað pró­sent viss um að það væri ekki verið að tala um hann, öðru­vísi en að fólk væri að skálda.

Í gær eftir að Þóra Kristín dró fram­boð sitt til baka og Kári Stef­áns­son steig niður úr stjórn SÁÁ, deildi Edda Falak frétt­inni á Twitter með orð­unum „Flott. Bless bæði tvö.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins