„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Yfirlýsing Öfga vegna viðtals við Ingó veðurguð: „Þetta er handrit meintra ofbeldismanna“

Yfirlýsing Öfga vegna viðtals við Ingó veðurguð: „Þetta er handrit meintra ofbeldismanna“
Öfgar

Bar­áttu­hóp­ur­inn Öfgar hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna við­tals sem birt­ist við Ingólf Þór­ar­ins­son, oft­ast kall­aður Ingó veð­urguð, í Stund­inni nú um helg­ina. Þar svar Ingólfur af sér allar ásak­anir og sagð­ist ekki sekur af þeim ávirð­ingum sem bornar hafi verið fram í hans garð. Ingólfur sagði frá­sagn­irnar upp­spuna og flökku­sögur. Hann sagð­ist aldrei myndu gang­ast við þeim og að hann hafi ekki farið í nafla­skoðun eða hugsað sér að breyta sam­skiptum sínum við konur.

Ingólfur Þór­ar­ins­son

Yfir­lýs­ing Öfga í heild sinni:

Að gefnu til­efni.

Um helg­ina birt­ist við­tal við Ingólf Þór­ar­ins­son þar sem hann seg­ist sak­laus af öllum nafn­vernd­uðum frá­sögnum Öfga. 

Öfgar hafa aldrei, og munu aldrei, stað­fest um hvaða tón­list­ar­mann ræðir. Ingólfur hefur séð sjálfur um það að bendla sig við þessar frá­sagnir. 

Hann sendi með­limi okkar, Ólöfu Töru, kröfu­bréf fyrir vanga­veltur áður en stað­fest var hver færi með brekku­söng­inn eða komin dag­skrá á Þjóð­há­tíð yfir höfuð. Þar bendl­aði hann sjálfan sig við ummæli hennar sem meintur nauð­gari. 

Hann sendi annað kröfu­bréf á aktí­vista sem segir að þjóð­þekktur tón­lista­maður hafi nauðgað sér. Þar bendl­aði hann sjálfan sig aftur sem mein­tan nauð­gara. 

Ingólfur hefur frá upp­hafi notað fjöl­miðla til að hóta. Meðal ann­ars hefur hann hótað að kæra nafn­vernd­aðar frá­sagnir sem hann kann­ast samt sem áður ekk­ert við.

Um leið og Ingólfur bendl­aði sjálfan sig við frá­sagn­irnar fór fólk að segja sína reynslu af meintri hegðun hans. Vit­neskja um meinta hegðun Ingólfs er hægt að finna víðs­vegar á net­inu, t.d. á bland þræði frá árinu 2009 og í sketch-þætti hjá Steinda frá sama ári. 

Út frá sam­fé­lags­legu umræð­unni sem varð í kjöl­farið benti með­limur okkar, Sindri Þór, á hversu sið­ferð­is­lega rangt það sé að full­orðnir menn geti á bak við lögin riðið börnum. 

Ingólfur sendi honum þá líka kröfu­bréf og stefndi honum fyrir meið­yrði. 

Þessi hegðun bendir ekki til þess að hann sé reiðu­bú­inn til að horfast í augu við það orð sem hann hefur á sér meðal almenn­ings.

Ekki svo löngu áður en nafn­vernd­aðar frá­sagnir Öfga birt­ust sagði Ingólfur í við­tali hjá öðrum meintum ger­anda að hann muni lítið frá þeim tíma sem hann drakk illa og not­aði orðið minnis­leysi. 

Nokkrum dögum eftir að frá­sagn­irnar birt­ust heldur hann því fram að hann viti hver hann er, hvað hann hafi gert og segir að frá­sagn­irnar séu árás á sína per­sónu. Hvernig getur hann stað­fest að hann viti hvað hann hefur gert þegar hann hefur lýst því yfir í við­tali að muna ekki margt vegna áfeng­is­neyslu?

Ingólfur stað­hæfir að ein­hver hafi sagt honum að þessar sögur hafi verið sendar til þess að athuga hvort að sög­urnar yrðu birtar, þetta kall­ast gróu­sögur. 

Við vitum sjálf hvernig frá­sagnir um einn þjóð­þekktan tón­list­ar­mann bár­ust okkur. Við vísum þessum róg­burð því alfarið á bug. 

Það er grafal­var­legt að ein­stak­lingur ætli ekki í nafla­skoðun eftir að hafa verið svo sann­færður um að svona alvar­legar ofbeld­is­sögur sem varða margar hverjar á við hegn­ing­ar­lög séu um hann sjálfan. 

Svo sann­færður að hann fer í drott­ing­ar­við­tal, nýtir sér valda­stöðu sína til að ógna og kærir fólk sem stendur með þolendum. 

Við þekkjum öll þessa taktík. 

Þetta er hand­rit meintra ofbeld­is­manna. 

Öfgar; Þór­hildur Gyða, Hulda Hrund, Helga Ben, Tanja Ísjförð, Ólöf Tara og Ninna Karla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins