„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Völvan reynist sannspá: Míkróskammtar af ofskynjunarlyfjum í meðferð geðsjúkdóma

Völvan reynist sannspá: Míkróskammtar af ofskynjunarlyfjum í meðferð geðsjúkdóma
Völvan 2022

Örskammtar eða míkró­skammtar af ofskynj­un­ar­lyfjum til með­höndl­unar geð­sjúk­dóma eru umfjöll­un­ar­efni kvölds­ins í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV. Það ætti ekki að koma völvu Mannlífs á óvart.

„Annars konar umræða um tabú mál­efni tengd geð­heilsu og spi­ritúal­isma mun fjalla um ýmsar „alt­ernative“ lækn­ing­ar­að­ferðir, jurtir og fleira. Meira verður rætt um smá­skammta af sveppum til and­legra lækn­inga, CBD-olíu og fleira. Fólk vill prófa nýjar leiðir og þótt það verði tek­ist á um þessi mál og hreint ekki allir sam­mála, þá verður umræðan sjálf meira áber­andi en áður.“ Svo sagði í spá völv­unnar fyrir árið 2022.

Í Kveiks­þætti kvölds­ins verður meðal ann­ars rætt við Guðrúnu Helgu Árna­dóttur sem glímir við geð­hvörf og prófar með­ferð með örskömmtum ofskynj­un­ar­sveppa til með­höndl­unar á sjúk­dómi sínum. Hún segir að veik­indi sín hafi ágerst und­an­farin ár og að hefð­bundin geð­lyf hjálpi ekki nægi­lega vel við að ná jafn­vægi. Að örskammta­með­ferð­inni lok­inni seg­ist Guðrún Helga finna jákvæðar breyt­ingar á líðan sinni.

Völvan glottir eflaust út í annað, viss um að út frá þessu muni spinn­ast miklar umræður í sam­fé­lag­inu. Hún sagð­ist hafa áhyggjur af geð­heilsu þjóð­ar­innar, sem og stöð­unni hvað varðar sál­fræði­þjón­ustu, sem enn er ekki nið­ur­greidd.

„Ég hef miklar áhyggjur af geð­heilsu þjóð­ar­innar. Henni fer hrak­andi og áfram fer til­fellum kuln­unar fjölg­andi. Við erum líka að verða dapr­ari, þung­lynd­ari og kvíðn­ari. Inntaka geð­lyfja er að aukast. Enda skyldi engan undra, í kerfi sem nið­ur­greiðir ekki sál­fræði­þjón­ustu.

Árið 2022 mun hefj­ast upp­gjör í geð­heil­brigð­is­málum á Íslandi. Geðdeild verður end­an­lega van­hæf í að takast á við biðlista og æ fleiri fá ekki þá aðstoð sem þeir þurfa.

Í kjöl­farið verður umræða um hið and­lega, trú og kær­leika meira áber­andi. Margir munu opna á ann­ars konar aðferðir til þess að takast á við van­líðan, utan heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þarna sýn­ist mér að tabú umræða varð­andi ein­hvers konar trú, í hvaða mynd sem hún er, muni opn­ast meira og fæða af sér eitt­hvað fal­legt og stórt í sam­fé­lag­inu. Fólk fer að finna ein­hverja aukna þörf fyrir trú og umræða um ein­hvers konar æðri mátt, sál­ina og slíkt verður fyr­ir­ferð­ar­meiri og heyr­ist á hinum ólík­leg­ustu stöðum.

Hvað geð­sjúk­dóma varðar sé ég aukna umræðu og fræðslu um geð­klofa á árinu og hvernig hægt sé að lifa með sjúk­dómnum. Þetta er einn af þeim geð­sjúk­dómum sem mætt hafa hvað mestum for­dómum.“

Lesið meira úr þessum hluta spár Völv­unnar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins