„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Neysla, lygar og ofbeldi – Batasaga fíkils

Neysla, lygar og ofbeldi – Batasaga fíkils

Ég hef aldrei áttað mig á því hvað gerð­ist, hvernig ég komst á þennan stað. Þarna sat ég, rétt skriðin yfir tví­tugt og beið eftir inn­lögn á Vog í afeitrun. Mörgum árum síðar man ég enn vel eftir þessum degi, bið­stofan var furðu­lega líf­leg miðað við aðstæður, skær­grænir sófar og lit­ríkar skreyt­ingar í björtu her­bergi sem hafði að geyma brotna ein­stak­linga sem höfðu glatað lífs­orkunni, þetta pass­aði ekki.

Ég hafði lengi glímt við ein­hvers konar blekk­ing­ar­heil­kenni, ég lifði í sjálf­sköp­uðu leik­riti sem sner­ist um að stjórna öllu og öllum í kringum mig, ég þurfti efnið mitt og annað skipti ekki máli. Löngu hætt að sýna raun­veru­legar til­finn­ingar var ég orðin vofa af eigin sjálfi. Svik, lygar og stuldur var orðið það sem ein­kenndi líf mitt, fyrir utan neysl­una auð­vitað.

Hver dagur var stríð við mig sjálfa, innst inni vildi ég hætta, mig dreymdi um eðli­legt líf hins hvers­dags­lega Íslend­ings, en fík­ill­inn var mun stærri en sá draumur. Ég gerði heið­ar­legar til­raunir til að hætta neysl­unni, en þær end­uðu allar í upp­gjöf og nið­ur­broti, sumar í geð­rofi, en þá reyndi ég ítrekað að fremja sjálfs­víg. Þrátt fyrir þennan drunga­lega veru­leika leit ég ekki á mig sem ein­stak­ling með fíkni­sjúk­dóm, miklu frekar var ég aum­ingi, af hverju gat ég ekki bara hætt?

Eftir nokkur ár af afneitun og sjálfs­hatri end­aði ég inni á vef­síðu SÁÁ, ég man að ég pass­aði að eyða öllum sönn­un­ar­gögnum um að hafa farið inn á þá síðu, ekki vildi ég að nokkur maður kæm­ist að því að ég væri nálægt því að við­ur­kenna ósigur, ég var búin að ákveða að ég væri ein­fald­lega aum­ingi, ekki fík­ill, og ég hélt fast í þann til­búna veru­leika.

Ég sat úti í bíl, fyrir utan Bónus, eftir enn aðra ferð­ina á almanna­færi sem ég þurfti að und­ir­búa mig and­lega fyrir. Ég gæti hitt ein­hvern sem þekkti mig, fólk gæti séð á mér að ég væri undir áhrifum, ég hataði Bón­us­ferðir og ég var þreytt.

Lesa meira..

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins