„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lögreglan grunar blaðamenn um að hafa miðlað klámefni Páls skipstjóra – „Er þetta brandari“

Lögreglan grunar blaðamenn um að hafa miðlað klámefni Páls skipstjóra – „Er þetta brandari“
Páll Stein­gríms­son skip­stjóri.

Lög­reglan á Akureyri telur blaða­menn­ina fjóra, sem hafa rétt­ar­stöðu sak­born­inga í rann­sókn lög­regl­unnar, hafa séð og jafn­vel miðlað klám­efni sem finna mátti í síma Páls Stein­gríms­sonar, skip­stjóra Samherja. Stundin greinir frá þessu. 

Líkt og Mannlíf greindi frá í dag veit lög­reglan hver stal síma Páls og snýst rann­sóknin gegn blaða­mönn­unum fjórum ekki að skrifum þeirra um Samherja og skæru­liða­deild fyr­ir­tæks­ins. Blaða­menn­irnir sem hafa nú rétt­ar­stöðu sak­born­ings eru þau Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður Stund­ar­innar, Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kveiks og Arnar Þór Ing­ólfs­son blaða­maður Kjarnans.

Samkvæmt kröfu­gerð lög­reglu telur hún sig hafa fengið fram játn­ingu ein­stak­lings sem nákom­inn er Páli, þar sem við­kom­andi gengst við að hafa byrlað Páli svefn­lyfjum, tekið síma hans og dreift efni þaðan til fjöl­miðla. Lög­reglan átelur blaða­menn fyrir að hafa nýtt sér gögn „fag­lega og fjár­hags­lega“, gögn sem sýndu mynd­bönd af Páli skip­stjóra í kyn­lífs­at­höfnum.

Lögregla segir nákominn hafa játað

Samkvæmt Stund­inni var kröfu­gerð lög­reglu lögð fram í dag. „Lög­reglan veit hver heim­ild­ar­mað­ur­inn er,“ segir í grein Stund­ar­innar.

Lög­reglan á Akureyri grunar blaða­menn­ina fjóra um brot. Það er þó ekki þjófn­að­ar­brot heldur mögu­leg miðlun klám­efnis og brot á frið­helgi.

„Lög­reglan hefur stað­fest að mynd­bönd af kyn­ferð­is­legum toga hafi verið í síma brota­þola og að afrit slíkra mynd­banda hafi verið sent úr sím­anum. Brota­þoli hefur stað­fest við lög­reglu að í síma hans hafi verið mynd­bönd af honum í kyn­lífs­at­höfnum,“ segir í kröfu­gerð lög­reglu:

„Þar sem X afhenti ekki gögn úr sím­anum heldur sím­ann sjálfan liggur fyrir að fjöl­miðlar sem tóku við sím­anum afrit­uðu hann. Ekki er ljóst hvort sím­inn var afrit­aður að hluta eða að öllu leyti en ljóst er að þeir sem afrit­uðu sím­ann hafa þurft að skoða allt sem í sím­anum var þó þeir hafi bara afritað hann að hluta. Það er ljóst að gögnum úr þessum afrit­aða síma var dreift á milli fjöl­miðla­manna, þ.á.m. hugs­an­lega kyn­lífs­mynd­böndum. Rann­sóknin snýst einnig um meint kyn­ferð­is­brot (dreif­ing á kyn­ferð­is­legu myndefni),“ segir jafn­framt í kröfu­gerð­inni.

„Lög­reglan á Akureyri rök­styður saka­mála­rann­sókn á blaða­mönnum með því að hún gruni þá um kyn­ferð­is­brot gegn skip­stjóra Samherja, sem felist í hugs­an­legri miðlun eða við­töku kyn­lífs­mynd­banda hans, sem lög­reglan segir nákom­inn aðila honum hafa dreift ásamt fleira efni í síma hans, mögu­lega í hefnd­ar­skyni,“ segir Jón Trausti. Og rit­höf­und­ur­inn Illugi Jök­uls­son á ekki til orð yfir fram­göngu lög­regl­unnar í mál­inu. „Afsakiði átján sinnum — en er þetta brand­ari?!,“ spyr Illugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins