„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ekkjan Sigrún braust úr fátæktargildru og lagði aleiguna í nýju íbúðina: „Ég læt ekki knésetja mig“

Ekkjan Sigrún braust úr fátæktargildru og lagði aleiguna í nýju íbúðina: „Ég læt ekki knésetja mig“
Sigrún Þor­steins­dóttir Holt,.

„Aleiga mín er í þess­ari íbúð. Ég læt ekki koma svona fram við mig,“ segir Sigrún Þor­steins­dóttir Holt, sem festi kaup á nýrri úbúð við Dals­braut í Njarðvík. Hún segir að við afhend­ingu hafi komið í ljós fjöl­margir og alvar­legir gallar sem ekki fáist lag­færðir þrátt fyrir kröfur hennar þar um.

Sigrún varð ekkja fyrir nokkrum árum. síðan hefur lífs­bar­átta hennar verið hörð. Hún hefur verið föst á leigu­mark­aði. Með til­komu hlut­deilda­ar­lána varð henni kleift að eign­ast sína eigin íbúð og losna úr fátækt­ar­gildru leigj­and­ans. Hún átti að fá íbúð­ina, sem kostar 36.1 milljón, afhenta 31. jan­úar. Afhend­ingin dróst til 15 febr­úar en þegar til kom var hún ekki til­búin til þess að flyja inn þar sem fjöldi galla mætti henni.

Parketið á íbúð Sigrúnar.

„Mig dreymdi um að losna frá baslinu og eiga eitt­hvert líf. Ég var að greiða 225 þús­und krónur á mán­uði í leigu en greiðslu­byrðin vegna íbúð­ar­innar er miklu lægri,“ segir Sigrún sem beið þess í ofvæni að flytja inn. En þá tók við að hennar sögn áfallið vegna aðkom­unnar.

„Þetta er fúsk. Frá afhend­ingu er allt búið að koma í ljós sem á ekki að vera að nýrri eign. Allir gluggar horn­skakkir, illa málað, parket á gólfi laust á öllum sam­skeytum, gæti flett því af með nagla­þjöl. Skápar og eld­húsinn­rétt­ingin rispuð . Hurða­húnar allir lausir og ekki einu sinni líkír þeim sem ég skoð­aði í sýn­ingar­í­búð. Og úti­hurðin lekur það mikið að í annað skipti á viku þurfti að negla fyrir hana Ég hef ekki getað flutt inn,“ skrif­aði Sigrún á Facebook og óskaði eftir ráð­gjöf í glímu sinni við fast­eigna­sal­ann.

Sigrún sagði í sam­tali við Mannlíf að Guð­mundur Ingi Jónsson hjá Mið­bæj­arfast­eignum hefði tekið kvört­unum sínum illa. Hann hefði boðið henni 200 þús­und krónur afslátt af pare­ket­inu en síðan hótað sér lög­manni. Sigrúnu sárnar við­rögð hans ekki síst í því ljósi að Guð­mundur Ingi sé frændi sinn.

VIð svala­hurð­ina.

„Ég læt ekki kné­setja mig. Við­gerð­irnar kosta millj­ónir. Þetta er ofbeldi. Ég er búin að stöðva greiðslur til fast­eigna­söl­unnar þar til þetta kemst í lag,“ segir hún.

Guð­mundur Ingi hjá Mið­bæj­arfast­eignum, stað­festir að hafa átt í sam­skiptum við Sigrúnu vegna máls­ins. Hann seg­ist ekki hafa séð sér annað fært en að koma sam­skipt­unum í það form að hafa lög­mann með í ráðum. Sam­skiptin við Sigrúnu hafi engan veg­inn verið boð­leg. Hann hafi viljað gera allt til þess að tryggja sættir en hann hafi ekki upp­lifað annað eins. Þannig sé ný úti­hurð á leið­inni og það hafi staðið tilað lag­færa eitt og annað. Sigr´æun hafi svo skipt um læs­ingar á dög­unum og ekki hafi verið hægt að kom­ast inn til lag­fær­inga. Aftur á móti sé par­k­etið á ábyrgð Sigrúnar sem ekki hafi viljað fá aðra teg­und á sínum tíma þegar verk­tak­inn lagði það til. Slæm reynsla af þeirri gerð í fyrri íbúðum hafi orðið til þess að vilji var til að hætta við notk­un­ina.

„Ég hef aldrei lent í öðru eins með við­skipta­vin,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins