„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mál Arons Einars og Eggerts Gunnþórs komið inn á borð ákærusviðs

Mál Arons Einars og Eggerts Gunnþórs komið inn á borð ákærusviðs
Aron Einar Gunn­ars­son og Eggert Gunnþór Jónsson

Mál knatt­spyrnu­mann­anna Arons Einars Gunn­ars­sonar og Eggerts Gunnþórs Jóns­sonar er nú komið inn á borð ákæru­sviðs. Lögregla hefur því form­lega lokið rann­sókn á mál­inu.

Ævar Pálmi Pálmason, yfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar, stað­festi þetta við frétta­stofu RÚV í gær. Um er að ræða rann­sókn lög­reglu á kyn­ferð­is­brota­máli sem kom upp í Kaup­manna­höfn fyrir rúmum ára­tug en þeir Aron Einar og Eggert Gunnþór hafa rétt­ar­stöðu grun­aðra í mál­inu.

Meintur brota­þoli birti frá­sögn sína á sam­fé­lags­miðlum í maí síð­ast­liðnum. Sögur voru á reiki um það hvaða tveir knatt­spyrnu­menn ættu í hlut en í lok sept­em­ber var greint frá því að lög­regla hefði tekið mál tví­menn­ing­anna upp að nýju að beiðni brota­þola.

Þegar Aron Einar var ekki val­inn í lands­liðs­hóp­inn gaf hann frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði meðal ann­ars að það hlyti að vera vegna sögu­sagna um meint brot í Kaup­manna­höfn. Hann þvertók fyrir það að hafa gerst brot­legur gagn­vart neinum og að hann ætl­aði sjálfur að óska eftir því að gefa skýrslu hjá lög­reglu.

„Það er hrika­legt áfall að vera ásak­aður um hræði­legt of­beld­is­brot vegna at­viks sem var svo sann­ar­lega ekki með þeim hætti sem lýst er í fjöl­miðlum,“ sagði Eggert Gunnþór í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér eftir að hafa verið nafn­greindur í Stund­inni.

Þeir Aron Einar og Eggert Gunnþór hafa gefið það út að þeir reikni með því að málið verði fellt niður. Þetta sögðu þeir strax í des­em­ber, eftir að hafa gefið skýrslu hjá lög­reglu. Rannsókn var því enn í fullum gangi á þeim tíma.

„Þeir hafna því með öllu að hafa brotið af sér og reikna með að málið verði fellt niður. Afstaða þeirra er því alveg óbreytt. Að öðru leyti vís­ast til fyrri yfir­lýs­inga þeirra en þeir munu ekki tjá sig frekar um málið að sinni,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá lög­manni þeirra við það tæki­færi.

Í ljós hefur komið að KSÍ leyndi mál­inu og virð­ist það hafa verið upp­hafið að falli Guðna Bergs­sonar, fyrrum for­manns KSÍ, sam­kvæmt skýrslu úttekt­ar­nefndar á vegum Íþrótta­sam­bands Íslands um KSÍ. Hvorki Aron Einar né Eggert Gunnþór voru nafn­greindir í skýrsl­unni en þar sagði að Guðni hefði í júní vitað að Aron Einar væri annar tveggja manna sem sak­aðir væru um kyn­ferð­is­brot í metoo-frá­sögn á sam­fé­lags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins