„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leiðir til að endurhugsa ferðaþjónustu að loknum heimsfaraldri

Leiðir til að endurhugsa ferðaþjónustu að loknum heimsfaraldri

COVID-19 hefur haft mikil áhrif á ferða­þjón­ustu á norð­ur­slóðum en áhrifin hafa birst með ólíkum hætti eftir svæðum. Heims­far­ald­ur­inn dró fram veik­leika ferða­þjón­ustu en und­ir­strik­aði einnig efna­hags­legt og sam­fé­lags­legt mik­il­vægi hennar.

Þessar nið­ur­stöður komu fram í skýrslu vís­inda­manna við Háskóla Íslands um áhrif ofgnóttar ferða­mennsku og leiðir til að end­ur­hugsa ferða­þjón­ustu að loknum kór­ónu­veiru­far­aldri. Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn sendi nýverið frá sér skýrslu um sjál­bæra ferða­þjón­ustu á norð­ur­slóðum.

Í rann­sókn­inni kom fram að COVID-19 krísan hafi leitt til þess að fólk tók að end­ur­hugsa for­sendur fyrir vexti ferða­þjón­ustu og nei­kvæðum afleið­ingum hans á lofts­lag, vist­kerfi og sam­fé­lög. End­ur­hugsun ferða­þjón­ustu á tímum COVID-19 felur í sér sam­kvæmt skýrsl­unni að rýna í und­ir­liggj­andi gildi ferða­mennsku jafnt sem ferða­þjón­ustu sem atvinnu­greinar og finna leiðir til að þróa ferða­vörur sem hafa gildi fyrir nær­sam­fé­lög og efla þannig sam­fé­lög og umhverfi.

Skýrslan und­ir­strikar þörf­ina á því að ferða­þjón­usta sé byggð upp í sam­tali og sam­vinnu atvinnu­grein­ar­innar og nær­sam­fé­laga á norð­ur­slóðum.

Áður en heims­far­aldur COVID-19 skall á í árs­byrjun 2020 voru margir áfanga­staðir á norð­ur­slóðum að vinna að því að byggja upp ferða­þjón­ustu. Sumir áfanga­staðir stóðu einnig frammi fyrir áskor­unum vegna mik­ils og ósjálf­bærs vaxtar ferða­þjón­ustu á skömmum tíma.

Skýrslan naut stuðn­ings norð­ur­slóða­á­ætl­unar Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar á árunum 2018-2021 og ber heitið Arctic Tourism in Times of Change Uncertain Futures: From Overtourism to Re-star­t­ing Tourism. Þar er fjallað um nið­ur­stöður vinnu­stofu rann­sak­enda, nem­enda, for­svars­fólks ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja, aðila úr stoð­kerfi grein­ar­innar og frum­kvöðla sem ræddu áskor­anir ofgnóttar ferða­mennsku (e. overtourism), áhrif COVID-19 og leiðir til að end­ur­ræsa og end­ur­hugsa ferða­þjón­ustu til fram­tíðar.

Rann­sóknin sýndi fram á að lyk­il­at­riði fyrir sjálf­bæra stjórnun ferða­þjón­ustu sé að aðilar séu með­vit­aðir um að þeir til­heyra víð­tæku kerfi ferða­þjón­ustu sem hefur áhrif á hvernig þeir geta tekið á krísu­á­standi og áskor­unum eins og að byggja upp ferða­þjón­ustu á jað­ar­svæðum eða of hröðum og miklum vexti ferða­þjón­ustu.

Þeir sem komu að skýrsl­unni voru vís­inda­menn frá sjö háskólum á Norðu­löndum og í Kanada. Frá Íslandi voru þeir Gunnar Þór Jóhann­es­son, pró­fessor í ferða­mála­fræði við Háskóla Íslands og Johannes Welling, verk­efn­is­stjóri við Rann­sókna­setur Háskóla Íslands á Höfn.

Hér er hægt að skoða skýrsl­una og fræð­ast enn meira um fram­tíð ferða­þjón­ustu á norð­ur­slóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins