„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kalla eftir því að ofbeldið sem hefur viðgengist hætti og að ríkið stígi inn í

Kalla eftir því að ofbeldið sem hefur viðgengist hætti og að ríkið stígi inn í
Anna þráði mikið að æfa í kór eða fara í skát­ana þegar hún var lítil, en það var bannað. Mynd/Skjáskot: VISIR

Flest höfum við heyrt lygi­legar sögur af sér­trú­ar­söfn­uðum, enda hafa gjörðir þeirra og örlög oft ratað í heims­press­una og ekki síst popp­kúlt­ur­inn um allan heim. Í Kompás þætti Stöðvar 2 í gær­kvöldi var tekið við­tal við nokkra fyrr­ver­endi með­limi sér­trú­ar­söfn­uð­ar­ins Votta Jehóva.

Í þætti gær­kvölds­ins var rætt við fólk sem var útskúfað úr söfn­uði Votta Jehóva og hefur ekki fengið að hitta fjöl­skyld­una sína svo árum skiptir. Fyrr­ver­andi með­limir Vottanna lýsa gíf­ur­legu and­legu ofbeldi eftir útskúfun, harð­ræði gegn börnum í söfn­uð­inum og hvernig það skorti fag­leg úrræði og aðstoð eftir að hafa hætt í sér­trú­ar­söfn­uði. Þær kalla eftir því

Rakel Íris var brottrekin úr söfn­uði Votta Jehóva þegar hún var 23 ára gömul. Hún fædd­ist inn í söfn­uð­inn og þekkti engan utan hans. Hún hefur nú þurft að fóta sig í líf­inu án fjöl­skyldu sinnar, því þau slitu öllum sam­skiptum við hana þegar hún var rekin fyrir átta árum og hún hefur ekki hitt þau síðan. Mynd/Skjáskot: VISIR

að ofbeldið, sem hefur verið látið við­gang­ast ára­tugum saman, hætti og að ríkið stígi inn í.

Ung kona sem var rekin úr söfn­uði Votta Jehóva, hefur ekki fengið að hitta fjöl­skyld­una sína í átta ár.

Vottar Jehóva á Íslandi

Vottar Jehóva er nokkuð öfl­ugur sér­trú­ar­söfn­uður á Íslandi miðað við marga aðra. Samfélag Vottanna er mörgum hulið, enda ein­angr­unin og þögg­unin gíf­ur­leg innan safn­að­ar­ins. Bóknám í háskóla er talið hættu­legt því það hverfur frá sann­leik­anum, gas­lýs­ingin er enda­laus og feðra­veldið er alls­ráð­andi, en það er allt þess virði því þau sem trúa – enda í para­dís við heimsendi.

For­eldrar Rakelar Írisar voru í söfn­uð­inum þegar hún fædd­ist og sömu­leiðis systur hennar tvær. Og fjöl­skyldan er þar enn. Rakel ólst upp innan Vottanna og þekkti ekk­ert annað. Skóla­ganga hennar var erfið, þó að henni hafi ekki verið strítt, upp­lifði hún sig utan­garðs. Hún var tekin úr skól­anum í byrjun des­em­ber til að forð­ast allan jóla­und­ir­bún­ing og mátti aldrei fara í afmæli til bekkj­ar­systk­ina, sem henni var þó boðið í.

„Ég man ekki til þess að hafa lent í ein­elti eða mik­illi stríðni. Krakk­arnir voru bara mjög almenni­legir við mig að mestu leyti. Ég held að þau hafi bara vor­kennt mér,” segir hún.

Pabbi Rakelar vann við ræst­ingar, sem er víst algeng starfs­grein meðal Vottanna, þau fóru á sam­komur mörgum sinnum í viku og lífið gekk bara sinn vana­gang. Það var strangt upp­eldi og börnin þurftu að vera þæg.

„Maður þurfti að sitja kyrr og maður þurfti að fylgj­ast með. Maður var beittur aga til að gera það,” segir Rakel.

Rakel varð ástfangin af „röngum manni”

Þegar Rakel var orðin full­orðin, 23 ára, varð hún ást­fangin og byrj­aði að hitta mann utan safn­að­ar­ins. Það sam­band átti eftir að verða dýr­keypt. Vinkona hennar, sem var Vottur, komst að þessu og hót­aði að klaga Rakel til öld­ung­anna. Hún ákvað þó að fara að eigin frum­kvæði til þeirra og eftir að hafa þurft að lýsa ást­ar­sam­bandi sínu í smá­at­riðum fyrir þremur körlum, kveða öld­ung­arnir upp dóm sinn og ráku hana úr söfn­uð­inum.

„Það var bara áfall. Ég kveð fjöl­skyld­una, eða þau kveðja mig, og segja að núna förum við sitt­hvora leið­ina. Ég knús­aði systur mína bless og hef ekki séð hana síðan. Ég fékk sím­tal frá for­eldrum mínum um að þau ætli ekki að vera í sam­skiptum við mig,” segir Rakel. „Þau upp­lifa þetta sem aga frá Guði.”

„Ef þau hafa sam­skipti við mig þá eru þau að koma í veg fyrir aga Guðs, sem er til þess gerður að ég komi til baka. Það er það sem þau trúa. Til að fá mig til að koma aftur þá þarf ég að fá þennan daga og iðr­ast og koma aftur. Þetta er eina leiðin.”

Langar þig aldrei að snúa bara aftur?

„Jú. Stundum. Bara út af fjöl­skyld­unni. Ég fer yfir þetta oft. Reglu­lega. En ég get það ekki. Það er of margt í söfn­uð­inum sem stríðir gegn mínum gildum og minni sann­fær­ingu,” svarar Rakel. „Bara eins og þetta, að beita and­legu ofbeldi til að fá fólk aftur í söfn­uð­inn. Og þau sjá það ekki þannig.”

Fannst sárt að sjá að enginn vildi koma frá Vottunum

Í síð­asta þætti Kompáss var fjallað um trú­arof­beldi í kristi­legum sér­trú­ar­söfn­uðum þar sem fyrr­ver­andi með­limir nokk­urra safn­aða sögðu frá reynslu sinni af kúgun, ofbeldi og lygum. Rakel segir það hafa verið erfitt að sjá að eng­inn hafi viljað koma frá Vottum Jehóva, en skilur ótt­ann vel.

„Ég hugs­aði að það er ein­hver sem þarf að gera þetta. En á sama tíma þá er ég búin að vera að ströggla með þetta, hvort ég sé til­búin að fórna þeirri von um að geta ein­hvern tím­ann verið með fjöl­skyld­unni,” segir Rakel.

Allir vita af ofbeldinu en enginn gerir neitt

Það er svo sann­ar­lega ekki verið að afhjúpa útskúfun­ina og úti­lok­un­ina innan Vottanna hér. Flestir vita að þetta er aðferðin sem safn­að­ar­með­limir beita þau sem ákveða að leita annað. En það er samt látið við­gang­ast, lík­lega í nafni ein­hvers konar trú­frelsis. En frændur okkar Norðmenn úrskurð­uðu nú í jan­úar að Vott­arnir skyldu sviptir rík­is­styrkjum vegna útskúf­unar sókn­ar­barna sinna og að stjórn­endur Votta Jehóva hafi brotið lög um trú­fé­lög. Það var frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Brenn­punkt sem varp­aði ljósi á afleið­ingar útskúf­unar Vottanna í Noregi.

Kalla eftir aðgerðum frá yfirvöldum

„Ég hugsa að það séu margir mjög fastir sem eru bara þarna af því að þeir vilja ekki verða fyrir útskúfun­inni,” segir Lilja Torfa­dóttir sem hafði verið mjög virk í söfn­uð­inu en er nú fyrr­ver­andi með­limur Votta Jehóva. Þeir vilja ekki eiga það í hættu að for­eldrar, vinir og allt sam­fé­lagið hætti að tala við þá. Svo eru það þeir sem eru öfga­kenndir og hætta ða tala við börnin sín og barna­börnin, það er það fólk sem ég hræð­ist mest.”

Rakel hefur ekki séð fjöl­skyld­una sína í átta ár. Hún lifir enn í von­inni um að söfn­uð­ur­inn slaki á regl­un­unum og hætti að beita ofbeldi svo hún geti átt sam­skipti við þau á ný.

„Og að þau mundu geta hugsað sér að vera í sam­bandi við mig. Ég efast um það sko. En hver veit, ef það er meiri pressa úr fleiri áttum. Ef það væri pressa frá rík­inu eða bara fólki,” segir Rakel.

„Ég hefði viljað hafa úrræði, sér­stak­lega þegar ég var nýhætt í söfn­uð­inum. Að það sé eitt­hvað sem grípur mann.”

Vill hjálpa fólki eftir trúarofbeldi

Anna Margrét Kalda­lóns fædd­ist inn í söfn­uð­inn eins og Rakel, en var gerð brott­ræk ásamt fjöl­skyldu sinni þegar faðir hennar skrif­aði öld­ung­unum bréf. Hú hefur hug á því að tengja fólk saman sem hefur verið í sér­trú­ar­söfn­uðum.

„Ég mundi mjög gjarnan vilja koma á fót stuðn­ings­hópi hérna fyrir okkur og ekki síst fyrir unga fólkið sem er kannski að stíga sín fyrstu skref úr söfn­uð­inum eða búið að vera lengi í burtu, en vantar ein­hvern til að tala við. Þetta er svo öðru­vísi bak­grunnur og bara ólíkt því sem aðrir þekkja það er svo dýr­mætt að geta deilt þeirri reynslu,” segir Anna Margrét.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trúmál

Krossinn er fokinn af kirkjunni og Þjóðkirkjan áhyggjulaus
Landið

Krossinn er fok­inn af kirkj­unni og Þjóð­kirkjan áhyggju­laus

Eitt elsta guðs­hús lands­ins, kirkjan á Stað í Reyk­hóla­hreppi, hefur misst kross­inn og stendur koll­ótt á hlað­inu á kirkju­staðnum. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur þetta verið svona um hríð og hafa stjórn­endur Þjóð­kirkj­unnar ekki áhyggjur af ástand­inu. Ekkert hefur verið gert í því að koma kross­inum aftur upp. Viðhald kirkj­unnar er reyndar á ábyrgð Þjóð­minja­safns Íslands þar sem hún er á...
Gunnar Smári er sammála Agnesi: „Held að við mættum alveg ræða meira um hann blessaðan“
InnlentTrúmál

Gunnar Smári er sam­mála Agnesi: „Held að við mættum alveg ræða meira um hann bless­aðan“

Gunnar Smári segir ekk­ert skrítið að bisk­upinn vilji tala meira um Guð. Sós­í­alista­for­kólf­ur­inn Gunnar Smári Egilsson skrif­aði afar djúpa hug­vekju á Facebook-vegg sinn í dag. Þar fer hann á dýpt­ina yfir Guð og heim­inn í dag, sam­fé­lagið og for­feðra­dýrkun svo eitt­vað sé nefnt. Hér má sjá hug­vekj­una í heild sinni: „Þurfum við að tala um Guð? Ég myndi aldrei orða...
Hneykslast á orðum Agnesar: „Má ég kannski biðja um svoleiðis þöggun?“
InnlentTrúmál

Hneyksl­ast á orðum Agnesar: „Má ég kannski biðja um svo­leiðis þöggun?“

Orð Agnesar Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups um þöggun sem væri „í gangi varð­andi Guð krist­inna manna,“ sem hún lét falla í jóla­hug­vekju sinni, hefur fallið í nokkuð grýtt­ann far­veg hjá mörgum. Illugi Jök­uls­son er einn þeirra sem hefur hneiksl­ast á þeim orðum bisk­ups­ins. Fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son skrif­aði færslu í dag þar sem hann hnýtti í bisk­upinn: „Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir hefur að vísu...
Segja frá ofbeldi innan sértrúarsafnaða: „Þjónaðu leiðtogunum eins og þeir séu Guð’’
Innlent

Segja frá ofbeldi innan sér­trú­ar­safn­aða: „Þjónaðu leið­tog­unum eins og þeir séu Guð’’

„Ung­linga­leið­tog­inn í kirkj­unni tók mig í gólfið, kné­setti mig og stóð ofan á mag­anum á mér til að reka út djöfl­ana sem áttu að gera mig sam­kyn­hneigða,’’ segir Steinunn Anna Radha í við­tali við Kompás en fjallað var um málið á Vísi. Kompás hefur kafað ofan í hug­takið trú­arof­beldi og skyggnst inn í líf þeirra sem hafa verið í sér­trú­ar­söfn­uðum....
Ninna sóknarprestur biður þig að yfirgefa ekki Þjóðkirkjuna: „Þú refsar sókninni þinni“
InnlentTrúmál

Ninna sókn­ar­prestur biður þig að yfir­gefa ekki Þjóð­kirkj­una: „Þú refsar sókn­inni þinni“

Ninna Sif Svav­ars­dóttir, sókn­ar­prestur og for­maður Presta­fé­lags Íslands, biður lands­menn um að segja sig ekki úr Þjóð­kirkj­unni þó þeir séu ósáttir við yfir­stjórn kirkj­unnar. Það bitni nefni­lega aðeins beint á sókn­unum að segja sig úr söfnuðnum.Ástæða fyrir færslu­skrifum Ninnu á Facebook er sú að í dag rennur út sá frestur að skrá sig í eða úr trú­fé­lögum. Það er því...
Gunnar í Krossinum sér aðeins eina leið til að sigra kórónaveiruna: Guð hefur ekki lokið verki sínu
Innlent

Gunnar í Kross­inum sér aðeins eina leið til að sigra kór­óna­veiruna: Guð hefur ekki lokið verki sínu

Gunnar Þor­steins­son, sem oft­ast er kenndur við Krossinn, segir aðeins eina leið færa til að sigra kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Að gera iðrun frammi fyrir Guði og biðja hann um fyr­ir­gefn­ingu og mis­kunn. Gunnar segir að leitað hafi verið til hans linnu­laust und­an­farið eftir svörum við þeim Covid-tímum sem þjóðin er að upp­lifa. „Ótti og uggur er í mörgum og er ekki að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins