„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Írar og Svíar lækka skatta á eldsneyti – Hækkun á bensínverði kostar Selfyssinginn 50 þúsund krónur

Írar og Svíar lækka skatta á eldsneyti – Hækkun á bensínverði kostar Selfyssinginn 50 þúsund krónur

Elds­neyti hefur hækkað um nálægt 35 krónur frá ára­mótum og nú kostar bens­ín­lítr­inn um 299 krónur.

Ef tekið er dæmi um mann sem ekur á Toyota Corolla, bens­índrifnum bíl, og býr á Selfossi og vinnur í Reykja­vík, þá þarf hann að fara á milli þess­ara staða 450 ferðir ári, miðað við tvær ferðir hvern virkan dag.

Það eru um 120 kíló­metrar á dag. Samkvæmt reikni­vél orku­setur.is kost­aði ferðin, fram og til baka, fyrir áður­nefndar hækk­anir, um 1.976 krónur. Á ári eru það um 444.600 krónur.

Eftir und­an­farnar hækk­anir, miðað við 299 krónur pr. bens­ín­lítr­ann, er heild­ar­upp­hæðin 492.300.

Þannig er nú 47.700 krónum dýr­ara, á ári, fyrir umræddan mann að sækja vinnu og kom­ast heim að vinnu­degi loknum. Við þá upp­hæð má bæta tekju­skatti.

Vert er að geta þess að ekki er um nákvæma, vís­inda­lega útreikn­inga að ræða.

Hluta hækk­un­ar­innar umræddra verð­hækk­unar á elds­neyti má rekja til inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu og hækk­unar heims­mark­aðs­verðs í kjöl­farið, en verðið hefur hækkað um 20 krónur pr. lítra síðan rúss­nesk stjórn­völd lýstu yfir sjálf­stæði Donetsk og Luhansk í Austur-Úkraínu 20. febr­úar.

Heims­mark­aðs­verð hefur lækkað lít­il­lega und­an­farna daga og má rekja lækk­un­ina til minni eft­ir­spurnar í Kína. Þann 10. mars lækk­aði heims­mark­aðs­verð á olíu einnig í kjöl­far þess að Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin greindu frá stuðn­ing sínum við aukna fram­leiðslu.

Þrýst hefur verið á íslensk stjórn­völd um að lækka tíma­bundið skatt á elds­neyti, en fyrir því eru for­dæmi. Í því sam­hengi er vert að geta þess að um helm­ingur af verði hvers lítra á dælu hér á landi rennur í rík­is­sjóð undir for­merkjum ein­hverra skatta.

Víða um heim íhuga stjórn­völd að grípa til lækk­unar skatta á elds­neyti til að draga úr áhrifum hækk­andi verðs á almenn­ing. Írar riðu á vaðið og lækk­uðu tíma­bundið skatta á elds­neyti og Svíar hafa fylgt því for­dæmi og munu lækka tíma­bundið skatta á elds­neyti. Þess má geta að fyrir höfðu sænsk stjórn­völd ákveðið að lækka skatta á elds­neyti um sem nemur tæpum sjö krónum á lítra.

Sænsk stjórn­völd bæta reyndar um betur því þar í landi fá bif­reiða­eig­endur 1.000 sænskar krónur, um 14.000 íslenskar, í ein­greiðslu og stuðn­ingur við íbúa í strjál­býli verður enn meiri.

Stjórn­völd á Nýja-Sjálandi hafa ákveðið að lækka skatta á elds­neyti.

FÍB, Félag íslenskra bif­reiða­eig­enda, sendi í síð­ustu viku áskorun til íslenskra stjórn­valda þar sem kallað var eftir tíma­bund­inni skatta­lækkun á olíu til að, m.a., lág­marka skað­leg áhrif á þjóð­lífið.

Í við­tali við Mannlíf sagði Runólfur Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri FÍB, að áskorun til stjórn­valda hefði verið ítrekuð og þau svör feng­ist „að málið væri í vinnslu.“ Einnig ku hafa heyrst á þingi raddir ónefndra þing­manna sem telja óráð að lækka skatta á elds­neyti með til­liti til umhverf­is­sjón­ar­miða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins