„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tilkynningar um kynferðisbrot 23 prósent færri miðað við síðustu þrjú ár

Tilkynningar um kynferðisbrot 23 prósent færri miðað við síðustu þrjú ár

Í nýrri mán­að­ar­skýrslu lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir febr­ú­ar­mánuð kemur fram að flestum hegn­ing­ar­laga­brotum hafi fækkað milli mán­aða. Til­kynn­ingar um ofbeld­is­brot og heim­il­is­of­beldi voru til að mynda færri í febr­úar en í jan­úar.

Alls voru skráð 524 hegn­ing­ar­laga­brot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í febr­úar og voru þau færri en í jan­úar, þegar þau voru 611 tals­ins.

Í febr­úar bár­ust lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu alls 87 til­kynn­ingar um ofbeld­is­brot, sem eru færri til­kynn­ingar en í jan­úar. Um 16 pró­sent færri til­kynn­ingar um ofbeld­is­brot hafa borist það sem af er ári, ef miðað er við með­al­tal sama tíma­bils síð­ast­liðin þrjú ár.

Til­kynn­ingum um heim­il­is­of­beldi fækk­aði einnig á milli mán­aða; þær fóru úr 71 til­kynn­ingu í jan­úar niður í 52 til­kynn­ingar í febr­úar. Þeim hefur fækkað um sex pró­sent það sem af er ári, ef miðað er við með­al­fjölda sama tíma­bils síð­ustu þrjú ár.

Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu bár­ust 24 til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot sem áttu sér stað í febr­úar. Um 23 pró­sent færri til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot hafa borist lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu það sem af er ári, en með­al­tal sama tíma­bils síð­ast­liðin þrjú ár á undan. Fjöldinn var 53 á sama tíma­bili árið 2019, 37 til­kynn­ingar árið 2020, 51 árið 2021 og 36 það sem af er þessu ári.

Til­kynn­ingum um þjófn­aði og inn­brot fækk­aði tölu­vert milli jan­úar og febr­úar. Til­kynn­ingar um inn­brot eru um 20 pró­sent færri það sem af er ári en með­al­tal sama tíma­bils síð­ast­liðin þrjú ár. Til­kynn­ingum um þjófn­aði það sem af er ári hefur fækkað um 25 pró­sent. Til­kynn­ingar um þjófn­aði voru 234 í jan­úar en 159 í febr­úar.

Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu bár­ust 45 til­kynn­ingar um inn­brot í febr­úar. Til­kynn­ing­arnar voru 65 tals­ins mán­uð­inn á undan og fækk­unin því tals­verð. Tilkynnt inn­brot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru um 20 pró­sent færri það sem af er ári en þau hafa að með­al­tali verið á sama tíma­bili síð­ast­liðin þrjú ár.

Beiðnir um leit að börnum og ung­lingum voru átta tals­ins í febr­úar og fækk­aði frá því í jan­úar.

Til­kynn­ingum um nytja­stuld á vél­knúnum öku­tækjum voru einar af þeim fáu til­kynn­ingum sem fjölg­aði á milli mán­aða. Til­kynn­ing­arnar fóru úr 17 í jan­úar upp í 26 í febr­úar. Slíkum til­kynn­ingum hefur þó fækkað um 15 pró­sent ef horft er til með­al­tals sama tíma­bils síð­ast­liðin þrjú ár.

Skráðum fíkna­efna­brotum fækk­aði á milli mán­aða og það sama má segja um til­kynn­ingar þar sem öku­maður var grun­aður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkni­efna. Hins vegar fjölg­aði til­kynn­ingum þar sem öku­maður var grun­aður um ölvun við akstur.

Skráð umferð­ar­laga­brot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru um 33 pró­sentum færri það sem af er ári en á sama tíma­bili síð­ustu þrjú ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hegningarlagabrot

Tilkynnt ofbeldisbrot á höfuðborgarsvæðinu í október fleiri en á sama tíma síðustu þrjú ár
Innlent

Tilkynnt ofbeld­is­brot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í októ­ber fleiri en á sama tíma síð­ustu þrjú ár

Skráð hegn­ing­ar­laga­brot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á mán­að­ar­grund­velli voru færri í októ­ber sam­an­borið við sept­em­ber­mánuð. Til­kynn­ingum um þjófn­aði fjölg­aði milli ára. Til­kynntum ofbeld­is­brotum hefur sömu­leiðis fjölgað á milli ára og sama má segja um til­kynn­ingar um akstur undir áhrifum áfengis eða ann­arra fíkni­efna. Í októ­ber voru 857 hegn­ing­ar­laga­brot skráð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta kemur fram í mán­að­ar­skýrslu lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í færslu frá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins