„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ný íslensk jöklavefsjá opnuð í gær – sýnir skýrt breytingarnar sem eru að verða á jöklunum

Ný íslensk jöklavefsjá opnuð í gær – sýnir skýrt breytingarnar sem eru að verða á jöklunum

Íslensk jökla­vefsjá, islenskirjoklar.is, var form­lega opnuð í stjörnu­veri Perlunnar í gær í sam­starfi við Nátt­úru­minja­safn Íslands. Helgi Björns­son og Oddur Sig­urðs­son jökla­fræð­ingar opn­uðu jökla­vefsjána en auk þeirra voru sér­fræð­ingar Veð­ur­stofu Íslands, Jarð­vís­inda­stofn­unar Háskól­ans og Lands­virkj­unar sem fjöll­uðu um jökla­mæl­ingar, sýndu ljós­myndir af jöklum og fóru yfir virkni vefsjár­innar og gögn sem hún sýnir.

Jökla­vefsjáin kemur upp­lýs­ingum um jökla og jökla­breyt­ingar á fram­færi við almenn­ing og áhuga­fólk um nátt­úru­vís­indi og áhrif lofts­lags­breyt­inga á nátt­úru lands­ins. Hún gefur jafnt vís­inda­mönnum, nem­endum í skólum lands­ins og áhuga­sömum almenn­ingi kost á að kynna sér jökla­mæl­ingar og nálg­ast mæli­gögn og aðrar upp­lýs­ingar. Und­ir­liggj­andi vef­þjón­ustur sem sýna útlínur jökla á mis­mun­andi tímum og fleiri mæl­ingar bjóða upp á hag­nýt­ingu hjá ýmsum aðilum sem fást við grein­ingu landupp­lýs­inga og rann­sóknir á nátt­úru lands­ins, m.a. sér­fræð­ingum í orku­iðn­aði, sam­göngum, ferða­þjón­ustu og á fleiri sviðum.

Vefsjáin birtir einnig fjöl­margar ljós­myndir frá mis­mun­andi tímum. Sam­an­burð­ar­ljós­myndir sem teknar eru á sama stað með sama sjón­ar­horni sýna skýrt breyt­ing­arnar sem eru að verða á íslensku jöklunum með sívax­andi hraða.

Gögn í jökla­vefsjá eru opin til afnota í hvers kyns verk­efnum með stöðl­uðum skil­málum sem nú eru að ryðja sér til rúms í vís­inda­heim­inum í tengslum við opið aðgengi að vís­inda­gögnum. Jökla­vefsjáin veitir opinn aðgang í fyrsta sinn að mörgum gagn­anna sem hún sýnir.

Lofts­lags­sjóður og verk­efnið „Hörfandi jöklar“ á vegum umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins styrkja smíði og rekstur jökla­vefsjár­innar. Aðrir sam­starfs­að­ilar eru Vatna­jök­uls­þjóð­garður og Rann­sókna­setur Háskóla Íslands á Horna­firði.

Skipulegar mælingar frá 1930

Jón Eyþórs­son hóf skipu­legar mæl­ingar á stöðu jök­ul­sporða víða um land árið 1930 og fékk heima­menn til liðs við sig við mæl­ing­arnar. Sjálf­boða­liðar JÖRFÍ hafa séð um mæl­ing­arnar frá stofnun félags­ins 1950. Afkoma Vatna­jök­uls, Hofs­jök­uls og Lang­jök­uls er mæld árlega af starfs­mönnum Jarð­vís­inda­stofn­unar, Veð­ur­stof­unnar og Lands­virkj­unar og afkoma Mýr­dals­jök­uls af félögum JÖRFÍ. Útlínur jökla á ýmsum tímum hafa verið dregnar eftir loft­myndum, gervi­tungla­myndum, kortum og leysi­mæl­ingum á yfir­borði jökla en einnig raktar með GPS-mæl­ingum og grein­ingu á jök­ul­görðum og öðrum jarð­fræði­legum ummerkjum um fyrri stöðu jök­ul­sporða.

Sýning ítilefni af 70+1 ára afmæli Jöklarannsóknafélagsins

Vorferð er sýn­ing í Dropanum, sér­sýn­ing­ar­rými Vatna­sýn­ingar, sem sett var upp í nóv­em­ber 2021 í til­efni af 70+1 ára afmæli Jökla­rann­sókna­fé­lags­ins, í sam­starfi félags­ins og Nátt­úru­minja­safns­ins. Sýningin varpar ljósi á sögu félags­ins, segir frá skála­bygg­ingum, ferða­lögum á jökli, sporða­mæl­ingum, rann­sókn­ar­verk­efnum sem unnið hefur verið að í vorferðum á Vatna­jökul, jökla­bakt­er­í­unni og tíma­rit­inu Jökli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins