„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Anita Briem, leikkona: „Ég vildi alls, alls ekki fara til baka“

Anita Briem, leikkona: „Ég vildi alls, alls ekki fara til baka“
Aníta Briem. Mynd: Skjáskot

Anita Briem, leik­kona segir að það sé best að búa á Íslandi og seg­ist ekki vera á leið­inni út til Hollywood aftur í bráð. Það er þó nóg að gera hjá leikkon­unni sem var að klára tökur á Íslenskri kvik­mynd sem verður frum­sýnd í lok mars. Myndin heitir Skjálfti, en svo er hún einnig að skrifa nýja sjón­varps­s­eríu.

Anita ræddi um það hvers vegna hún flutti frá Hollywood og aftur heim til Íslands eftir 13 ára dvöl vest­an­hafs í spjalli við Ísland vaknar í morgun sem Rósa Margrét Tryggva­dóttir tók saman. Sagði hún að það hafi tekið á og verið áhuga­vert að búa úti en að lang­best væri að búa heima á Íslandi. Býst hún ekki við að flytja aftur út. Hún leikur aðal­hlut­verk í vænt­an­legri kvik­mynd sem heitir Skjálfti og verður frum­sýnd 31. mars. Sjálf er Anita að skrifa sjón­varps­s­eríu í sam­starfi við fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Glass River en hún ræddi um þetta allt á K100.

„Það er bara lang­best að vera hér,“ sagði Anita sem segir ótrú­lega mik­il­vægt fyrir 8 ára dóttur hennar að geta alist upp með ömmu sinni og afa og stór­fjöl­skyld­unni.

Ég átti heilt líf þar

„Ég kom hingað í byrjun 2020 með tvær ferða­töskur til að taka upp þessa mynd, Skjálfta, sem er verið að fara frum­sýna eftir tvær vikur. Við tókum upp mynd­ina og svo átti ég að fara heim aftur. Þegar við vorum á setti, þegar við vorum að taka upp fyrir tveimur árum síðan. Þá man ég að ég sat í stólnum hjá Kristínu Júllu í sminki og þá sagði hún: Anita, það er komið fyrsta til­fellið af Covid á Íslandi. Þannig að ég fór aldrei til baka. Og alltaf þegar það átti að nálg­ast það að fara heim til mín aftur. Ég átti heilt líf þar og mað­ur­inn minn var þar. Þá fann ég alltaf meira og meira að ég vildi alls, alls, alls ekki fara til baka. Ég fann bara svo sterkt að hér átti ég að vera,“ lýsti Anita ein­læg í við­tal­inu

Þó að fólk sé frægt þá gerir það ekkert að betri manneskjum

„Því eldri sem þú verður verður auð­veld­ara að for­gangs­raða og virki­lega vita hvað þér finnst mik­il­vægt,“ sagði Anita.

„Dóttir mín var svona fimm ára þegar ég fór virki­lega að hugsa hvað ég vildi vera. Mun dóttir mín líta á sig sem Amer­ík­ana eða Íslend­ing? Það er mik­ill munur að alast upp í þessum heimum,“ sagði hún.

Aðspurð um fræga fólkið í Hollywood benti hún rétti­lega á að þetta væri allt saman fólk.

„Þetta er allt saman fólk. Þó að fólk sé frægt þá gerir það ekk­ert að betri mann­eskjum eða áhuga­verð­ari mann­eskjum,“ sagði Anita.

Búin að vera ótrúlega lánsöm

Hún stað­festi að það sé nóg að verk­efnum í gangi hjá henni um þessar mundir.

„Ég er búin að vera ótrú­lega lánsöm og ég er svo þakk­lát á hverjum ein­asta degi að ég er búin að fá að vinna með svo dásam­legu kvik­mynda­gerð­ar­fólki á Íslandi,“ sagði Anita og nefndi meðal ann­ars Tinu Hrafns­dóttur leik­stjóra Skjálfta. Hún ræddi um mynd­ina og frá­bærar við­tökur hennar á erlendum kvik­mynda­há­tíðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins