„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ingó segist ekki vera ofbeldismaður: „Ég er svo sannarlega breyskur maður“

Ingó segist ekki vera ofbeldismaður: „Ég er svo sannarlega breyskur maður“

,,Allir sem þekkja mig og mitt fólk vita að ég er ekki ofbeld­is­maður,’’ skrifar Ingólfur Þór­ar­ins­son, betur þekktur sem Ingó veð­urguð í aðsendum pistli sem birt­ist á Vísi í dag. Þar seg­ist hann hafa verið bor­inn þungum sökum und­an­farna mán­uði og skað­inn sé óaft­ur­kræfur og rekur hann sög­una í stuttu máli en pistill­inn hefur þegar vakið hörð við­brögð.

,, Áróð­urs­her­inn hefur fengið mikið pláss í fjöl­miðlum og í kommenta­kerfum við­höfðu ýmsir aðilar, sem ég þekki ekki og hef aldrei hitt, hræði­leg ummæli um mig. Ég læt nú reyna á það gagn­vart lög­gjaf­anum hvort saka megi menn opin­ber­lega um nauðg­anir og barn­a­níð. Það er ekki gert í fjár­hags­legum til­gangi en er um leið það kostn­að­ar­samt að það er nán­ast ómögu­legt að verja sig með þessum hætti,’’ skrifar Ingó en pistil­inn má lesa í heild sinni hér að neðan og á vef Vísis.

Kæru vinir!

Und­an­farna mán­uði hef ég verið bor­inn þungum sökum sem ekki eiga sér stoð í raun­veru­leik­anum og setið undir ósann­indum af ýmsu tagi. Ég hef til að mynda verið kall­aður ofbeld­is­maður, nauð­gari og barn­a­níð­ingur þó það gæti ekki verið fjær sann­leik­anum. Það er sárt að vera bor­inn slíkum sökum og geta í raun ekki varist þeim þar sem sann­leik­ur­inn virð­ist engu máli skipta. Þar að auki hefur verið ráð­ist af mik­illi hörku á fyr­ir­tæki sem ég starfa fyrir, X-Mist, og flesta þá sem hafa bókað mig til að syngja við sína við­burði.

Skaðinn sem mér hefur verið unnin er óaft­ur­kræfur en ég get ekki lengur setið hjá og horft á annað sak­laust fólk þjást fyrir þessa aðför að mér. Ég hef því ákveðið að láta af störfum mínum fyrir X-Mist. Fyr­ir­tækið var byggt upp af heil­indum og hug­sjón aðila sem t.d. sáu það sem öfl­ugt verk­færi í bar­átt­unni gegn Covid 19 ásamt því að varan hefur hjálpað fólki við að leysa marg­vís­leg vanda­mál.

Ég óska fólk­inu sem starfar fyrir fyr­ir­tækið góðs gengis án þess utan­að­kom­andi áreitis sem þau hafa orðið fyrir vegna þess eins að vera kollegar mínir.

Ég er svo sann­ar­lega breyskur maður og hef gert mín mis­tök á löngum ferli eflaust sýnt af mér dóna­skap og ekki komið nægj­an­lega vel fram við alla en ofbeld­is­maður og þaðan af verra er ég ekki. Þess vegna finnst mér mik­il­vægt að segja alla sög­una.

Sagan mín

Mál mitt byrjar þannig að ég fæ sím­tal frá blaða­manni Mannlífs og er ég spurður hvort ég vilji láta hafa eitt­hvað eftir mér varð­andi ummæli aðila sem að ég átti að hafa nauðgað fyrir 15 árum. Stuttu áður hafði góð vin­kona mín sagt mér að ,,ég væri næstur og það væri verið að skipu­leggja að taka mig fyrir næst‘‘. Ég kem eðli­lega af fjöllum enda gæti ég ekki gert svo sví­virði­legan hlut að nauðga þó byssu væri miðað að höfð­inu á mér. Við nán­ari eft­ir­grennslan kemur í ljós að á ferð­inni er kona sem ég fór á nokkur stefnu­mót með fyrir 15 árum síðan. Stuttu áður hafði hún sagt að erfitt væri að setja sig í spor ein­hvers sem hefði verið nauðgað þar sem hún hefði ekki lent í slíku.

Sann­kall­aður áróð­urs­her fer í kjöl­farið af stað síð­asta sumar og kallar eftir sögum um mig. Þar virð­ist sann­leik­ur­inn engu skipta og ekki er leitað eftir heim­ildum eða stað­fest­ingum á sann­leiks­gildi sagn­anna. Í því sam­bandi má benda á að kona nokkur hefur við­ur­kennt að hafa sent inn nokkrar sögur sem voru upp­spuni frá rótum, til þess eins að sjá hvort þær fengjust birtar. Þær voru allar birtar. Nafn­laust. Ég styð heils­hugar bar­áttu gegn kyn­ferð­is­brotum og ofbeldi en aðförin að mér, minni per­sónu og atvinnu, tel ég ekki fram­lag í þeirri bar­áttu.

Áróð­urs­her­inn hefur fengið mikið pláss í fjöl­miðlum og í kommenta­kerfum við­höfðu ýmsir aðilar, sem ég þekki ekki og hef aldrei hitt, hræði­leg ummæli um mig. Ég læt nú reyna á það gagn­vart lög­gjaf­anum hvort saka megi menn opin­ber­lega um nauðg­anir og barn­a­níð. Það er ekki gert í fjár­hags­legum til­gangi en er um leið það kostn­að­ar­samt að það er nán­ast ómögu­legt að verja sig með þessum hætti.

Árásir gegn mér hafa verið marg­vís­legar og meðal ann­ars hefur Instagram reikn­ingur minn verið eyði­lagður og aðilar villt á sér heim­ildir inni á miðl­inum Snapchat undir not­enda­nöfn­unum ingo_ved­urgud, ived­urgud og mögu­lega fleirum sem ég veit ekki af. Þannig hafa óprút­tnir aðilar sent skila­boð í mínu nafni. Hópur kvenna, sem ég þekki ekki neitt, ákvað að mót­mæla því að ég syngi á þjóð­há­tið í Vest­manna­eyjum og fengu sínu fram­gengt.

Að auki var því svo slegið upp í fréttum að ég væri ein­hverra hluta vegna ekki bók­aður að syngja fyrir ákveðna hópa en á sama tíma á ég í mínum bókum um 50 skipti þar sem ég hef komið fram fyrir slíka hópa und­an­farin ár.

Áhrifin á fjölskyldu og vini

Allir sem þekkja mig og mitt fólk vita að ég er ekki ofbeld­is­maður. Ég hef alltaf staðið með þeim sem hafa orðið fyrir ein­elti og ofbeldi og getur fólk frá skóla­árum mínum vottað fyrir það. Nú hef ég setið undir marg­vis­legum ósann­indum þar sem öllu er grautað saman og ég hef enga leið haft til þess að verja mig.

Þá hafa þeir sem standa mér næst, fjöl­skylda og vinir, fengið að finna fyrir aðför­inni gegn mér. Auk þess sem þeim þykir sárt að hlusta á ósann­indi um mig hafa þau orðið fyrir grófum árásum sjálf vegna mín, svo grófum að kærasta mín þurfti til að mynda að hætta í vinnu sinni. Þetta er eitt­hvað sem eng­inn sér og fólk áttar sig kannski ekki á. Ásakanir sem þessar bitna því oft mest á sak­lausu fólki sem á það síst skilið.

Benda ber á að árás­ar­her­inn er ekki fjöl­mennur. Þvert á móti er hann mjög fámennur en hávær hópur sem fjöl­miðlar veita mikið pláss. Margir hafa haft sam­band við mig per­sónu­lega og lýst yfir stuðn­ingi við mig. Oft er þetta fólk sem ég ekki þekki en þorir ekki að stíga fram og tjá sig opin­ber­lega af ótta við hefnd­ar­að­gerðir. Ástæða þess er eðli­leg, því þeir örfáu sem hafa gert það og sett spurn­ing­ar­merki við aðferð­ina sem notuð er hafa heldur betur fengið að heyra það. Því fólki sem hefur lýst yfir stuðn­ingi við mig og jafn­vel tekið mínum mál­stað er ég óend­an­lega þakk­látur.

Áhrif á störf mín

Í kjöl­far alls þessa hefur starf mitt sem tón­list­ar­maður verið lagt í rúst. Þannig voru í fram­haldi nán­ast öll mín gigg afbókuð, tón­list mín tekin úr spilun og mörg stór verk­efni sem búið var að skipu­leggja tekin af dag­skrá. Ástæðan er ekki sú að við­kom­andi aðilar trúi hinum nafn­lausu frá­sögnum, treysti mér ekki til starfs­ins eða geri athuga­semdir við mig, heldur sú að þeir ótt­ast að lenda sjálfir í árás­ar­hernum. Er sá ótti enda á rökum reistur þar sem ráð­ist hefur verið opin­ber­lega á þá sem ég hef giggað hjá frá því aðförin gegn mér hófst.

Auk þess að ráð­ast á starfs­feril minn hefur árás­ar­her­inn gert mér ómögu­legt að reka fyr­ir­tækið X-mist sem ég rak ásamt góðum vini mínum. Fyr­ir­tækið hefur sætt slíkum árásum að ég sé mér ekki lengur fært að starfa við það enda hefur þessi vinur minn og fjöl­skylda hans liðið mest fyrir linnu­lausar árásir. Það er í raun ótrú­legt að upp­lifa hvað sumt fólk er til­búið að ganga langt í óhróðri og lygum til þess að ná sínu fram. Til­gang­ur­inn virð­ist helga með­alið og þá skiptir engu hvaða aðferðum er beitt.

Við félag­arnir höfum verið stoltir af þessu litla fyr­ir­tæki, vör­urnar eru í hæsta gæða­flokki, við­skipta­vin­irnir eru ánægðir og fjöldi fólks hefur tekið þátt í upp­bygg­ingu fyr­ir­tæk­is­ins sem nú er ráð­ist gegn. Haft hefur verið sam­band við fyr­ir­tæki og versl­anir með hreinum og klárum hót­unum um að þessir aðilar hafi verra af ef við­skipt­unum er haldið áfram. Allt er þetta gert til að koma í veg fyrir að vörur frá X- mist séu til sölu. Svo langt hefur þetta fram­ferði gengið að haft hefur verið sam­band við eig­endur sam­starfs­fyr­ir­tækis í Bret­landi og ég sak­aður um að vera nauð­gari og barn­a­níð­ingur! Svo það sé tekið fram hef ég aldrei verið svo mikið sem ákærður hvað þá sak­felldur fyrir ofbeld­is­brot af nokkru tagi.

Þessi hópur og fólkt tengt honum ann sér ekki hvíldar fyrr en hann er orð­inn full­viss um að fyr­ir­ætl­anir á nýjum starfs­vett­vangi utan sviðs­ljóss­ins séu einnig orðnar að engu, allt í nafni rétt­lætis.

Undir þessum kring­um­stæðum er ekki annað hægt en að velta fyrir sér raun­veru­legum til­gangi þeirra sem ganga hvað harð­ast fram. Sumir hafa til að mynda haft fjár­hags­lega hags­muni af því að kalla fram bita­stæðar frá­sagnir, allt í nafni mál­stað­ar­ins vænt­an­lega.

Að lokum um baráttuna

Eins og áður sagði er ég mis­tækur en ég get staðið við allt sem ég hef sagt og gert gegnum tíð­ina. Því miður get ég ekki orða bund­ist þegar óvið­eig­andi hegðun, dóna­skap eða skeyt­ing­ar­leysi er skeytt saman við jafn vondan hlut og kyn­ferð­is­of­beldi, nauðg­anir og barn­a­níð.

Kannski þarf ég að sætta mig við að vera hluti af hópi sem hent er undir lest­ina og þó logið sé upp á einn og einn þá sé bar­áttan mik­il­væg­ari. Ég get þó ekki sam­þykkt það þegar um svona alvar­legar ásak­anir er að ræða.

Ég er á móti hverskyns ofbeldi og finn til með þeim sem hafa orðið fyrir nauðg­unum og kyn­ferð­is­of­beldi. Eðlilegt er að berj­ast gegn ofbeldi og kyn­ferð­is­brotum og bæta kerfið okkar þannig að það hlúi sem best að þolendum. Ég vona að hóf­stillt fólk taki yfir þessa bar­áttu og skilji að það að saka fólk um eitt­hvað sem að það hefur ekki gert mun ekki hjálpa mál­staðnum. Þegar bar­áttan er rekin af fólki sem nýtir það til að fá athygli eða fólki sem vill sjá blóð vinnst ekki neitt. Hverjar eru ann­ars lausn­irnar sem verið er að boða?

Virð­ing­ar­fyllst,

Ingólfur Þór­ar­ins­son.

Höfundur er tón­list­ar­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins