„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fleiri fluttust frá Íslandi en til landsins

Fleiri fluttust frá Íslandi en til landsins

Í skýrsl­unni Sta­te of the Nor­dic Region kemur fram að hús­næðis­verð á Ís­landi hækk­aði mest af öllum Norður­lönd­unum í Co­vid heims­far­aldr­inum en jafn­framt að lands­fram­leiðsla dróst mest saman hér­lendis. Þá kemur fram að at­vinnu­leysi jókst mest á Ís­landi.

Í heims­far­aldr­inum fór fæð­ingar­tíðni vax­andi, eins og á hinum Norður­lönd­unum. Fæðingar­tíðni var 7,8 pró­sent hærri frá jan­úar til septem­ber árið 2021 miðað við sama tíma­bil árið 2020.

Inn­flytj­endum til Ís­lands fækk­aði um sau­tján pró­sent milli áranna 2019 og 2020. Fólks­flutn­ingar frá Ís­landi fjölg­aði um þrettán pró­sent á sama tíma. Fækkun inn­flytj­enda til Ís­lands skýrist að miklu leyti af því að færri komu frá Tékk­landi, Litháen, Pól­landi og Serbíu, sam­kvæmt rann­sókn­inni.

Fólks­flutn­ingur frá Ís­landi var mest til Króatíu, Litháen, Lett­lands, Pól­lands, Portúgal og Rómaníu. Flutn­ingar innan­lands hækk­uðu um sex­tán pró­sent milli áranna 2019 og 2020 og höfðu ekki verið hærri frá árinu 1986.

At­vinnu­leysi á Ís­landi hefur hækkað mikið frá því far­ald­ur­inn hófst. Í fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2019 var at­vinnu­leysi 2,5 pró­sent. Í öðrum árs­fjórð­ungi árið 2021 náði at­vinnu­leysi há­punkti og var þá 7,9 pró­sent en hefur fallið síðan. Við lok árs 2021 var at­vinnu­leysi 5,3 pró­sent.

Þeir geirar vinnu­mark­aðs­ins sem urðu verst fyrir barð­inu á far­aldr­inum voru fast­eigna­mark­að­ur­inn, flutn­ingar og sam­göngur, og listir.

Í skýrsl­unni kemur fram að verg lands­fram­leiðsla dróst mest saman á Ís­landi af öllum Norður­lönd­unum, eða um 6,5 pró­sent á árinu 2020 saman­borið við -2,9 pró­sent í Finn­landi, -2,8 pró­sent í Sví­þjóð, -2,1 pró­sent í Dan­mörku og að­eins 0,8 pró­sent í Noregi.

Þegar hús­næðis­verð er skoðað sér­stak­lega sést að það hækk­aði al­mennt tals­vert á öllum Norður­lönd­unum síð­ast­liðin tvö ár, en þó mest á Ís­landi. Þar á eftir koma verð­hækk­anir hús­næðis í Sví­þjóð, Dan­mörku og Noregi á meðan Finn­land sker sig nokkuð úr með hóf­legri verð­hækk­unum og stöðugri hús­næðis­mark­aði.

„Það blasir við að hlut­fall þeirra sem vinna að heiman hefur auk­ist mikið sem hefur haft á­hrif á ferða­hegðun, hús­næðis­verð og val á bú­setu. Hús­næðis­verð í sumum lands­byggðar­svæðum Norður­land­anna – til dæmis í Åre í Sví­þjóð og Born­holm í Dan­mörku – jókst meira en í stór­borg­unum. Þegar verð á lands­vísu er svo skoðað var hækk­unin mest á í­búðar­hús­næði á Ís­landi,“ segir Linda Randall, annar skýrslu­höf­unda hjá Nor­dregio.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins