„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skilorðsbinding nauðgunardóma: Gerandi í grófri nauðgun þarf aldrei að sitja af sér refsivist

Á Íslandi er farið mýkri höndum um ger­endur í kyn­ferð­is­brota­málum en víða í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Þeir sem sak­felldir eru fyrir slík brot þurfa jafn­vel ekki að sitja af sér dóma sína, heldur er skil­orðs­bind­ingu oft beitt og sak­born­ingar ganga þar með lausir. Í Svíþjóð er til að mynda ólög­legt að skil­orðs­binda dóma þar sem lág­marks­refs­ingin er hærri en eitt ár. Þar er lág­marks­refs­ing fyrir nauðgun tvö ár. Auk þessa er máls­með­ferð­ar­tími á Íslandi iðu­lega langur og njóta ger­endur oft góðs af því við dóms­upp­kvaðn­ingu. Á sama tíma hefur brota­þoli málið hang­andi yfir sér með með­fylgj­andi ang­ist og óvissu. Ofan á þetta kemur að brota­þolar þurfa síðan jafn­vel sjálfir að inn­heimta miska­bætur, með til­heyr­andi kostn­aði og kljást þannig áfram við þann sem á þeim braut.

Nýlegur dómur í grófu nauðg­un­ar­máli var skil­orðs­bund­inn að fullu, bæði fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og í Lands­rétti. Var þetta gert jafn­vel þótt sér­stöku refsi­þyng­ing­ar­á­kvæði hafi verið beitt í hér­aðs­dómi, sem ein­ungis er gert í til­fellum stór­felldra og sér­lega alvar­legra ofbeld­is­brota.

Bætur til brota­þola voru lækk­aðar á milli dóm­stiga og brota­þoli á ekki rétt á trygg­ingu miska­bót­anna úr rík­is­sjóði, þar sem brotið var framið á erlendri grundu.

Full skilorðsbinding þrátt fyrir þyngingu dóms

Um er að ræða mál þar sem Jón Páll Eyj­ólfs­son, fyrr­ver­andi leik­hús­stjóri hjá Leik­fé­lagi Akur­eyrar, var sak­felldur í Lands­rétti þann 3. des­em­ber fyrir gróft kyn­ferð­is­brot. Áður hafði Jón Páll verið dæmdur í tveggja og hálfs árs skil­orðs­bundið fang­elsi í hér­aðs­dómi, en áfrýjað dómnum til Lands­réttar. Lands­réttur þyngdi dóm­inn í þriggja ára skil­orðs­bundið fang­elsi en lækk­aði miska­bætur til brota­þola úr 2,5 millj­ónum króna niður í 2 millj­ónir króna.

Það vakti furðu margra að svo gróft ofbeld­is­brot skyldi enda með dómi sem er að fullu skil­orðs­bund­inn. Jón Páll þarf því aldrei að sitja af sér refsi­vist.

Því fer fjarri að þetta sé eina dæmið um mál þar sem sak­fellt er fyrir gróft kyn­ferð­is­brot og dóm­ur­inn skil­orðs­bund­inn að fullu.

Í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik var nýverið fjallað um brotala­mir á máls­með­ferð kyn­ferð­is­brota í rétt­ar­kerf­inu. Einn brota­þol­inn sem steig fram með sögu sína í þætt­inum lýsti því hvernig með­ferð á nauðg­un­ar­máli hennar hefði tekið sex ár í heild­ina, á tveimur dóm­stigum. Málið end­aði með sak­fell­ingu – en dóm­ur­inn var skil­orðs­bund­inn að fullu. Ástæða þess var sögð löng máls­með­ferð og að ekki væri hægt að kenna sak­born­ingi um það. Sama skýr­ing var gefin á skil­orðs­bind­ingu dóms­ins yfir Jóni Páli Eyj­ólfs­syni.

Það brot átti sér stað á hót­el­her­bergi erlendis árið 2008. Árið 2018 hóf lög­regla frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu, sem end­aði með ákæru. Dómur Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sem féll þann 30. nóv­em­ber árið 2020, lýsir grófu ofbeldi Jóns Páls á hendur brota­þola. Þar segir meðal ann­ars að hann hafi kastað sér á kon­una þar sem hún lá í rúmi á hót­el­her­berg­inu og haldið henni fastri. Hún hafi barist um og átökin endað með því að konan féll í gólfið. Þar hafi Jón Páll komið í veg fyrir að hún gæti staðið á fætur með því að grípa í fót­legg hennar, svo hún skall harka­lega með hnéð í gólfið og datt á bakið. Þá hafi hann sett hné sitt í bringu hennar með þeim afleið­ingum að hún hlaut stóran mar­blett af.

Þar segir meðal ann­ars að hann hafi kastað sér á kon­una þar sem hún lá í rúmi á hót­el­her­berg­inu og haldið henni fastri.

Eftir þetta hafi kon­unni tek­ist að skríða aftur upp í rúm sitt en þangað hafi Jón Páll elt hana, lagst ofan á hana og haft við hana sam­ræði án sam­þykkis hennar. Skýrslur frá neyð­ar­mót­töku, sem konan leit­aði til dag­inn eftir, við kom­una til Íslands, sýna að hún hefði meðal ann­ars hlotið marga mar­bletti og sár á ýmsum stöðum, rispur og nún­ings­sár auk sprungu í slím­húð við leg­gangaop. Allt var þetta talið sam­ræm­ast sögu hennar. Myndir voru teknar af áverk­unum á neyð­ar­mót­töku.

Í nið­ur­stöðukafla skýrslu læknis segir að brota­þoli hafi gefið grein­ar­góða sögu þegar hún leit­aði á neyð­ar­mót­töku og gekkst undir skoðun. Hún hafi verið dofin, tætt og aum um allan lík­ama og í kyn­færum.

Hún hafi verið dofin, tætt og aum um allan lík­ama og í kyn­færum.

Meðal gagna í mál­inu voru skrif­leg sam­skipti Jóns Páls og brota­þola þar sem Jón Páll gekkst afdrátt­ar­laust við brot­inu. Fram­burðir vitna fyrir dómi voru taldir auka trú­verð­ug­leika fram­burðar brota­þola en draga úr trú­verð­ug­leika fram­burðar Jóns Páls. Brota­þoli var sagður hafa verið sam­kvæmur sjálfum sér um meg­in­at­riði máls­ins frá upp­hafi og fram­burður því tal­inn trú­verð­ugur.

Jón Páll Eyj­ólfs­son. Úr hlut­verki hans í Hrauninu.

Skilorðsbinding jafnar refsiþyngingarákvæði við jörðu

Jón Páll var sak­felldur fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940 með því að hafa án sam­þykkis haft sam­ræði við brota­þola, með því að beita hana nánar til­greindu ofbeldi og ólög­mætri nauð­ung svo að hún hlaut áverka af.

Í hér­aðs­dómi beitti hér­aðs­dóm­ar­inn Barbara Björns­dóttir refsi­þyng­ing­ar­á­kvæð­inu (195. gr. almennra hegn­ing­ar­laga), sem er ein­ungis beitt þegar ofbeldið er „stór­fellt og sér­lega sárs­auka­fullt og meið­andi“. Þannig er ákvæðið almennt ein­ungis notað í til­felli nauð­gana sem taldar eru sér­lega ofbeld­is­fullar og alvar­legar. Þrátt fyrir þetta var sú ákvörðun tekin að skil­orðs­binda refs­ing­una, sem svo var stað­fest af Lands­rétti. Með öðrum orðum; Jón Páll Eyj­ólfs­son þarf aldrei að sitja í fang­elsi fyrir brot sitt.

Með öðrum orðum; Jón Páll Eyj­ólfs­son þarf aldrei að sitja í fang­elsi fyrir brot sitt.

Í augum hins almenna leik­manns getur það ekki annað en vakið undrun að refsi­þyng­ing­ar­á­kvæði sé beitt í máli sem þessu, en dóm­ur­inn svo skil­orðs­bund­inn að fullu. Þarna má segja að skil­orðs­bind­ingin, refsi­leysið, jafni refsi­þyng­ing­ar­á­kvæðið við jörðu.

Hér­aðs­dóm­ari lagði til grund­vallar skil­orðs­bind­ingu dóms­ins að langt væri liðið frá því brotið var framið og að rann­sókn hefði dreg­ist á lang­inn.

Þegar málið er skoðað í sam­hengi við þá skýr­ingu kemur ýmis­legt í ljós sem dregur úr rétt­mæti hennar.

Þegar málið var kært var um ára­tugur lið­inn frá brot­inu. Kyn­ferð­is­brot þar sem þyngsta refs­ing varðar meira en tíu ára fang­elsi fyrn­ast á fimmtán árum. Rannsókn máls­ins tók um 14 mán­uði, sem er ekki lengra en gengur og ger­ist í þessum mála­flokki. Auk þess var það ekki ákvörðun brota­þola að kæra málið, heldur hóf lög­regla frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu, eins og fram kemur í dómnum og rétt­ar­gæslu­maður brota­þola hefur bent á. Aug­ljós­lega þótti lög­reglu því full ástæða til að rann­saka brotið og færa það svo inn á borð ákæru­valds­ins, enda er um að ræða sér­lega ofbeld­is­fulla árás.

Sænska ákvæðið – ólöglegt að skilorðsbinda fyrir verstu brotin

Þess má geta að víða á öðrum Norð­ur­löndum er hrein­lega ólög­legt að skil­orðs­binda dóma fyrir brot þar sem lág­marks­refs­ingin er eitt ár eða meira. Þar er almennt um að ræða morð, mann­dráp og nauðg­anir.

Á síðu sem útskýrir refsirétt­ar­kerfið í Svíþjóð fyrir almenn­ingi segir:

„Vad det gäller straff­värde, som även det är ett stort ämne att utforska, är huvu­dregeln att påföljden ska bli fäng­else om straff­vär­det är högre än ett år.“ Á íslensku þýðir þetta að ef lág­marks­refs­ingin er hærri en eitt ár má ekki dæma til skil­orðs­bund­innar refs­ingar. Í Svíþjóð er lág­marks­refs­ing fyrir nauðgun tvö ár.

Ákvæðið má finna í 27. kafla sænska laga­bálks­ins, en Moa Bladini, lektor í lög­fræði við Gauta­borg­ar­há­skóla, stað­festi auk þess ofan­greind atriði um sænska rétt­ar­kerfið í sam­tali við blaða­mann. Þum­al­putta­reglan er að lág­marks­refs­ingin fyrir téð brot sé eitt ár – en við nauðgun er tveggja ára lág­marks­refs­ing í Svíþjóð, svo það þýðir að úti­lokað er að dæma til skil­orðs­bund­innar refs­ingar fyrir nauðgun þar í landi.

Á Íslandi eru engin slík lög í gildi. Blaða­maður kom að máli við nokkra álits­gjafa og spurði þá hvort þeim þætti sam­bæri­leg lög ekki eiga erindi við okkur hér á landi. Það kæmi spánskt fyrir sjónir að hægt væri að skil­orðs­binda dóma að fullu þar sem sak­fellt væri fyrir alvar­legt brot eins og nauðgun – sér­stak­lega þegar refsi­þyng­ing­ar­á­kvæði væri beitt í dómnum.

Á Íslandi eru engin slík lög í gildi.

Álits­gjaf­arnir nálg­uð­ust málið út frá ólíkum hliðum en voru allir sam­mála um að gera þyrfti breyt­ingar á dóms­kerf­inu.

Dr. Hildur Fjóla Ant­ons­dóttir rétt­ar­fé­lags­fræð­ingur sem hefur rann­sakað rétt­ar­stöðu brota­þola ítar­lega, sagð­ist telja að það væri vissu­lega til­efni til þess að hér á landi yrði skoðað ákvæði eins og það sem er í lögum í Svíþjóð. Hún velti fyrir sér skil­orðs­bind­ingu á dómi Jóns Páls Eyj­ólfs­sonar, sem blaða­maður nefndi sem dæmi við hana.

Dr. Hildur Fjóla Ant­ons­dóttir.

„Um er að ræða alvar­legt brot sem var þar að auki framið með svo grófum hætti að dóm­ur­inn nýtir þyng­ing­ar­á­kvæðið. Það skýtur því skökku við að dóm­ur­inn sé á sama tíma skil­orðs­bund­inn að fullu. Dómurinn ber þannig með sér að ekki sé tekið til­lit til hags­muna brota­þola í mál­inu, enda lítur íslenskt rétt­ar­kerfi í raun svo á að brota­þolar hafi engra hags­muna að gæta í refsi­málum. Efast má um að þetta við­horf end­ur­spegli rétt­ar­vit­und almenn­ings. Ég tel fulla ástæðu til að kanna betur hvernig þessu er háttað ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum og þá skoða hvort ekki sé rétt að taka fyrir það að hægt sé að skil­orðs­binda dóma vegna svona alvar­legra brota,“ sagði Hildur Fjóla í sam­tali við blaða­mann.

Andrés Ingi Jónsson.

„Jú, þetta er algjör­lega eitt­hvað sem þyrfti að skoða,“ sagði Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, aðspurður um laga­breyt­ingu af þessu tagi. „Það er stórt vanda­mál hvernig kerfið er á köflum algjör­lega úr takti við rétt­læt­is­vit­und almenn­ings – það byggir upp van­traust til kerf­is­ins ef fólki finnst rétt­læt­inu ekki vera full­nægt. Í kyn­ferð­is­brotum er þetta sér­stak­lega áber­andi í hversu fá brot rata inn í rétt­ar­sali, hversu lágt sak­fell­ing­ar­hlut­fallið er, eða þeirri stöðu að Lands­réttur virð­ist frekar milda dóma í kyn­ferð­is­brota­málum en öðrum brota­flokkum. Þegar kemur að alvar­leg­ustu brot­unum, brotum þar sem lág­marks­refs­ing í lögum fer yfir ákveðið langan fang­els­is­dóm, þá skýtur skökku við að geta skil­orðs­bundið til­tölu­lega þunga dóma.“

Helga Vala Helga­dóttir.

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er hlynnt­ari því að gera nauð­syn­legar úrbætur á máls­með­ferð­ar­tíma og upp­hæðum miska­bóta til brota­þola í kyn­ferð­is­brota­málum. „Ég aðhyllist ekki harða refsi­stefnu, því það er mín bjarg­fasta skoðun að hver dagur í frels­is­svipt­ingu sé veru­lega íþyngj­andi,“ sagði Helga Vala í sam­tali við blaða­mann, spurð um erindi sænska ákvæð­is­ins. „Þess vegna er ég mjög hlynnt því að beitt sé ákvæði hegn­ing­ar­laga til skil­orðs­bind­ingar, sér í lagi þegar um er að ræða ungt afbrota­fólk, því það hlýtur fyrst og fremst að vera mark­mið okkar að fólk verði fyrir betrun sem ég því miður ótt­ast að sé ekki mikil innan veggja lok­aðra fang­elsa. Þá verður að skoða aðstæður, þótt að kyn­ferð­is­brot séu vissu­lega meðal alvar­leg­ustu afbrota sem þekkj­ast, því þær eru jú mjög marg­vís­legar.
Mig langar líka að benda á að vegna þess hvernig stjórn­völd hafa búið um hnút­ana, með allt of fáu starfs­fólki í rétt­ar­vörslu­kerf­inu, þá hefur máls­með­ferð dreg­ist veru­lega, sem leitt hefur til þess að stærri hluti refsi­dóma hefur orðið skil­orðs­bund­inn að hluta. Þar er dóms­kerfið að bregð­ast við því hversu íþyngj­andi það er að hafa stöðu sak­born­ings árum saman. Það er hins vegar algjör skortur á því að tekið sé til­lit til þess hversu íþyngj­andi það er fyrir brota­þola að bíða nið­ur­stöðu máls árum saman, því dóm­stólar hafa ekki hækkað miska­bætur vegna þess­ara tafa á máls­með­ferð. Eðlilegt væri að miska­bætur yrðu hækk­aðar og þá að hluta greiddar af rík­is­sjóði, sem ber ábyrgð á þessum töfum.“

Undirskriftalisti stofnaður vegna máls Jóns Páls

Þegar nið­ur­staða hér­aðs­dóms í máli Jóns Páls var kunn­gerð var stofnað til und­ir­skrifta­lista á Change.org sem um 2.000 manns skrif­uðu nafn sitt við. Krafa und­ir­skrifta­list­ans var að skil­orðs­bundnir nauðg­un­ar­dómar ættu að heyra sög­unni til. Í texta við und­ir­skrifta­list­ann segir meðal ann­ars:

„Þann 30. nóv­em­ber 2020 féll fyrsti nauðg­un­ar­dóm­ur­inn í máli sem teng­ist #metoo á Íslandi. Umfjöllun fjöl­miðla bendir til þess að nauðg­unin hafi verið hrotta­leg og voru les­endur varaðir við grófum lýs­ingum. Sak­born­ing­ur­inn hlaut tveggja og hálfs árs dóm sem var skil­orðs­bund­inn að fullu.

Það hlýtur að vera á skjön við rétt­læt­is­kennd almenn­ings að fólk geti framið hrotta­legar nauðg­anir og að þeir örfáu ger­endur sem eru sak­felldir fyrir dóm­stólum þurfi ekki að verja einni mín­útu bak við lás og slá.

Hér er enn einn dóm­ur­inn sem er algjör­lega á skjön við alvar­leika brots­ins. Rétt­ar­kerfið er þrauta­ganga fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis, og í þeim fáu til­fellum sem ger­endur hljóta dóm er hann í hróp­andi ósam­ræmi við refsiramma lag­anna og rétt­læt­is­kennd sam­fé­lags­ins. Lögin virð­ast vernda frekar þá sem brjóta af sér en þá sem er brotið er á.“

Mótsagnir og jafnræði

Mót­sögnin sem fólgin er í því að refsi­þyng­ing­ar­á­kvæði sé beitt í dómi á sama tíma og hann er skil­orðs­bund­inn að fullu, líkt og gert var í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, er ekki eina mót­sögnin í máli Jóns Páls Eyj­ólfs­sonar. Aðra slíka má finna í dómi Lands­réttar, þar sem refsi­þyng­ing­ar­á­kvæðið er afnumið – en dóm­ur­inn samt sem áður þyngdur í tíma.

Dómurinn stingur auk þess í stúf við nýlega dóma í kyn­ferð­is­brota­málum.

Þór­hallur Guð­munds­son.

Má þar nefna dóm sem féll í Hæsta­rétti í febr­úar árið 2021 yfir Þórhalli Guð­munds­syni, sem er betur þekktur sem Þór­hallur mið­ill. Þór­hallur hlaut 18 mán­aða fang­els­is­dóm fyrir að hafa tíu árum áður brotið kyn­ferð­is­lega á ungum karl­manni sem kom til hans í heil­un­ar­með­ferð. Hæsti­réttur þyngdi þar ekki dóm Lands­réttar, meðal ann­ars með þeim rökum að langt væri um liðið frá því brotið var framið. Þrátt fyrir þau rök var dómur Þórhalls þó ekki skil­orðs­bund­inn, heldur hljóð­aði hann upp á fang­els­is­vist, ólíkt dómi Jóns Páls Eyj­ólfs­sonar. Í báðum til­vikum var sam­bæri­lega langur tími lið­inn frá brot­inu.

Í báðum til­vikum var sam­bæri­lega langur tími lið­inn frá brot­inu.

Annað umhugs­un­ar­vert eftir þann 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn í Lands­rétti er að eini nauð­gar­inn sem var nafn­greindur í dómi þennan dag, reynd­ist vera pólskur. Aðrir nutu nafn­leyndar, þar á meðal Jón Páll Eyj­ólfs­son.

Ef Jón Páll hefði verið maki, fyrr­ver­andi maki, faðir eða bróðir brota­þola hefði verið skilj­an­legt að hann yrði kall­aður X í dómnum. Brota­þoli hans er hins vegar alls ótengdur honum og það vekur spurn­ingar um þetta mis­ræmi hjá dóm­stólnum.

Ef tveir menn sem fremja sams konar brot fá svo ólíka með­höndlun frá sama rétt­ar­kerfi hlýtur það að brjóta gegn jafn­ræð­is­regl­unni, en í henni segir að allt fólk sé jafnt fyrir lögum og eigi að hljóta sömu með­ferð.

Lækkaðar miskabætur og engin ríkistrygging

Að lokum er komið að þeim miska­bótum sem sak­born­ingur var dæmdur til að greiða brota­þola. Hér­aðs­dómur dæmdi hann til að greiða henni 2,5 millj­ónir króna ásamt vöxtum í miska­bætur en í Lands­rétti var upp­hæðin lækkuð niður í 2 millj­ónir króna auk vaxta. Brota­þoli hafði farið fram á að sak­born­ingur greiddi henni 6 millj­ónir króna, ásamt vöxtum, í miska­bætur.

Nú þegar ljóst er að sá sak­felldi mun ekki sitja af sér neina fanga­vist geta bæt­urnar varla talist annað en smán­ar­legar. Sér­stak­lega í ljósi þess að sam­kvæmt íslenskum lögum á þessi til­tekni brota­þoli ekki rétt á því að rík­is­sjóður tryggi nokkurn hluta bót­anna til hennar, ef svo vildi til að sak­born­ingur gæti ekki greitt þær. Þetta er vegna þess að brotið var framið erlendis og ramm­inn í kringum rík­is­trygg­ingu á bótum til brota­þola er afar þröngur. Í raun er ein­ungis afmark­aður hópur sem að end­ingu á rétt á trygg­ing­unni frá rík­inu.

Í raun er ein­ungis afmark­aður hópur sem að end­ingu á rétt á trygg­ing­unni frá rík­inu.

Fyrir þá brota­þola sem falla ekki í þann afmark­aða hóp er staðan sú, að ef sak­born­ingur greiðir bæt­urnar ekki fljótt og vel, þarf brota­þoli sjálfur að rukka hann um þær, með ærnum inn­heimtu­kostn­aði. Það þarf því ekki að koma á óvart hversu mikið af bótum í kyn­ferð­is­brota­málum hefur aldrei feng­ist greitt.

Lands­réttur.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Atli Þór sendir pílur á Brynjar Níelsson: „ECHR dómur er ferðalag sem ágætt er að forðast“
Innlentdómstólar

Atli Þór sendir pílur á Brynjar Níelsson: „ECHR dómur er ferða­lag sem ágætt er að forð­ast“

„Ég óska Brynjari Níels­syni til ham­ingju með dóm­ara­sætið. Eins og hann sjálfur hefur nú sagt á Facebook þá fylgir það starf­inu að geta ekki ælt yfir allt og alla lengur.“ Þannig hefst færsla Atla Þórs Fanndals um þær fregnir að Brynjar Níelsson hafi hlotið dóm­ara­sæti við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur. Segir Atli Þór að um tvennt sé um að ræða fyrir Brynjar:...
Uppnám hjá ríkissaksóknaraembættinu – Helga Magnúsi verður ekki úthlutað verkefnum
Innlentdómstólar

Uppnám hjá rík­is­sak­sókn­ara­emb­ætt­inu – Helga Magnúsi verður ekki úthlutað verk­efnum

Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari segir að Helgi Magnús Gunn­ars­son upp­fylli ekki lengur almenn hæfn­is­skil­yrði til að gegna emb­ætti vara­rík­is­sak­sókn­ara og verður því ekki úthlutað verk­efnum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Sigríður sendi frá sér fyrir stundu. Fyrir tveimur dögum var sagt frá því að Helgi Magnús hefði aftur hafið störf eftir að rík­is­sak­sókn­ari bað dóms­mála­ráð­herra um að hann yrði...
Blake Lively kærir meðleikara sinn fyrir kynferðislega áreitni: „Rangar og svívirðilegar ásakanir“
Heimur

Blake Lively kærir með­leik­ara sinn fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni: „Rangar og sví­virði­legar ásak­anir“

Blake Lively hefur ákveðið að lög­sækja It Ends with Us-með­leik­ara sinn og leik­stjór­ann Justin Baldoni fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni. Baldoni hefur brugð­ist við með því að kalla kæruna „skammar­lega“ til­raun til að bjarga eigin orð­spori í kjöl­far kvik­myndar þeirra sem var þjökuð af full­yrð­ingum um ósætti bak­við tjöldin. Leik­konan, sem er 37 ára, vann með Justin, 40, að kvik­mynda­að­lögun á met­sölu­skáld­sögu...
Eva segir að dómskerfið eigi við tvö alvarleg vandamál að stríða: „Lata dómara og duglega dómara“
Innlentdómstólar

Eva segir að dóms­kerfið eigi við tvö alvar­leg vanda­mál að stríða: „Lata dóm­ara og dug­lega dóm­ara“

Eva Hauks­dóttir segir að íslenskt dóms­kerfi eigi við tvö alvar­leg vanda­mál að stríða. Lög­mað­ur­inn Eva Hauks­dóttir skrif­aði færslu rétt í þessu á Facebook þar sem hún segir tvo alvar­leg vanda­mál vera til í íslensku dóms­kerfi, það séu latir dóm­arar og aftur á móti dug­legir dóm­arar. Útskýrir hún fyrst lötu dóm­ar­ana: „Íslenskt dóms­kerfi á við tvö alvar­leg vanda­mál að stríða. Lata...
Fyrrum kennari og skátaforingi dæmdur fyrir kynferðisleg samtöl við börn
Heimur

Fyrrum kenn­ari og skáta­for­ingi dæmdur fyrir kyn­ferð­is­leg sam­töl við börn

Fyrr­ver­andi grunn­skóla­kenn­ari og skáta­for­ingi hefur verið dæmdur í fang­elsi eftir að hafa átt kyn­ferð­is­legt sam­tal við mann­eskju sem hann hélt að væri 13 ára. Samuel Robinson, 27, hafði sam­band við mann­eskj­una, sem reynd­ist vera tál­beita frá aðgerð­ar­hópi á net­inu gegn barn­a­níð, í gegnum spjall­kerfi á sam­fé­lags­miðlum milli föstu­dags­ins 7. apríl og þriðju­dags­ins 11. apríl, 2023. Tál­beitan sagð­ist ítrekað vera 13...
Albert er mættur til landsins og gefur skýrslu fyrir dómi
Innlent

Albert er mættur til lands­ins og gefur skýrslu fyrir dómi

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Albert Guð­munds­son er kom­inn til Íslands frá Ítalíu í þeim til­gangi að gefa skýrslu fyrir dómi. Er hann ákærður fyrir að hafa brotið gegn konu á þrí­tugs­aldri en aðal­með­ferð í kyn­ferð­is­brota­máli gegn honum hefst næsta fimmtu­dag. Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður Alberts stað­festi við Vísi að skjól­stæð­ingur hans væri kom­inn til lands­ins til að verða við­staddur aðal­með­ferð­ina. Í fyrra var...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins