„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vísindamenn telja rúmlega 95 prósent af alheiminum vera ósýnilegan

Vísindamenn telja rúmlega 95 prósent af alheiminum vera ósýnilegan
Jesus Zavala Franco, pró­fessor í eðl­is­fræði við Háskóla Íslands

Samkvæmt kenn­ingum vís­inda­manna er innan við fimm pró­sent af alheim­inum úr sýni­legu efni en afgang­ur­inn er huldu­orka (68%) og huldu­efni (27%). Það er því ekki að undra að vís­inda­menn innan stjarneðl­is­fræði og heims­fræði leggi höf­uð­á­herslu á að öðl­ast auk­inn skiln­ing á þessum stóra en óþekkta hluta bygg­ing­ar­ein­inga alheims­ins.

Jesus Zavala Franco, pró­fessor í eðl­is­fræði við Háskóla Íslands, og rann­sókna­hópur hans vinnur að því ásamt erlendum sam­starfs­að­ilum að varpa ljósi á það hvort huldu­efni, sem er talið eitt af megin bygg­ing­ar­efnum alheims­ins, sé sam­an­sett úr eindum eða ein­hverju öðru.

Líkön og tól til að herma uppbyggingu alheimsins

Vís­inda­hóp­ur­inn tók nýverið þátt í vinnu­stofu þar sem mark­miðið var m.a. að þróa betri líkön og tól til að herma upp­bygg­ingu alheims­ins.

Vís­inda­hópar við Eðl­is­fræði­stofnun tékk­nesku vís­inda­aka­dem­í­unnar (FZU), Stofnun í kenni­legri stjarneðl­is­fræði við Háskól­ann í Osló og Miðstöð stjarneðl­is­fræði og heims­fræði við Háskóla Íslands vinna saman að því að varpa nýju ljósi á eig­in­leika huldu­efn­is­ins.

Stofn­an­irnar þrjár stóðu fyrir vinnu­stofu í Prag í Tékk­landi á síð­asta ári með 13 alþjóð­legum fyr­ir­lesurum og 27 þátt­tak­endum. Vinnu­stof­unni var svo fylgt eftir með heim­sóknum milli sam­starfs­að­il­anna sem mið­aði að því að þjálfa hópana enn frekar með sér­hæfðum fyr­ir­lestrum og umræðum.

Markmið sjóðsins er að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði

Vinnu­stofan sem rann­sókn­ar­hóp­arnir tóku þátt í var styrkt af Upp­bygg­ing­ar­sjóði EES og Noregs en mark­mið sjóðs­ins er að draga úr félags­legum og efna­hags­legum ójöfn­uði innan svæð­is­ins auk þess að styrkja sam­starf við 15 lönd innan Evr­ópu­sam­bands­ins í Mið- og Suður-Evrópu.

Upp­bygg­ing­ar­sjóð­ur­inn er fjár­magn­aður af Íslandi, Liechtenstein og Noregi.
Verkefni hópanna þriggja beindust að eig­in­leikum og próf­unum tengdum ofur­léttu huldu­efni (e. Ultra-Light Dark Matter), sem er flokkur huldu­efna­lík­ana, og skimun­ar­að­ferðum og breyttu þyngd­ar­afli sem því tengj­ast.

Rann­sóknir þeirra fela í sér að þróa betri reikni­verk­færi til að líkja eftir upp­bygg­ingu alheims­ins í slíkum lík­önum.

Lokamarkmið er að kanna hvernig líkön hópsins ríma við gögn úr heimsfræði

Mark­miðið er að skilja hvort huldu­efni er búið til úr eindum og hvort eind­irnar eru mjög léttar eða hvort huldu­efni sé eitt­hvað allt annað. Til að sann­reyna þetta verða hóp­arnir að þróa mis­mun­andi kenn­ingar og búa til stór hermi­líkön til að prófa þær. Loka­mark­miðið er að sam­eina allar upp­lýs­ingar úr kenn­ing­unum og hermun­unum til að kanna hvernig líkön hóps­ins ríma við gögn úr heims­fræði.

Vís­inda­manna­hóp­arnir vinna að tengdum við­fangs­efnum en þar sem þeir hafa ekki nákvæm­lega sömu sér­þekk­ingu og nýta ólíkar leiðir til að varpa ljósi á sömu fyr­ir­brigðin var mark­mið að nýta sam­eig­in­lega þekk­ingu allra til nýrra upp­götv­ana. Styrk­ur­inn sem fékkst til sam­starfs­ins gerði hóp­unum kleift að þjálfa hver annan og læra hver af öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins