„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigmundur Davíð tjáir sig um fjárkúgunina: „Það er annars eðlis þegar fjölskyldan blandast í málið“

Sigmundur Davíð tjáir sig um fjárkúgunina: „Það er annars eðlis þegar fjölskyldan blandast í málið“

Þann 28. maí 2015 fékk þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, hót­un­ar­bréf. Þar var hann kraf­inn um átta millj­ónir króna, ann­ars yrðu meintar upp­lýs­ingar um teng­ingar hans við DV.

Sig­mundur Davíð tjáði sig í fyrsta skipti um málið í hlað­varps­þætt­inum Eftirmál með þeim Þórhildi Þorkels og Nadine Yaghi. Sig­mundur Davíð sagði þar frá því að hót­un­ar­bréfið hafi borist á þrjá staði, heim til hans, á leik­skóla þriggja ára dóttur hans og heim til aðstoð­ar­manns hans.

Þegar málið var í umfjöllun hjá fjöl­miðlum kom aldrei fram að hót­anir hafi beinst að dóttur Sig­mundar. „Það er ann­ars eðlis þegar fjöl­skyldan bland­ast í málið,“ sagði Sig­mundur í hlað­varp­inu.

Lög­reglan tók málið strax föstum tökum, sér­sveitin var fengin til að fela sig og bíða þess að ger­end­urnir létu sjá sig á ónefndum stað á Suð­ur­nesjum, þar sem Sig­mundur átti að afhenda pen­ing­inn.

Við hand­tök­una kom í ljós að þarna voru á ferð­inni syst­urnar Hlín Ein­ars­dóttir og Malín Brand. Hlín var í miklum fjár­hags­vanda á þessum tíma og veik á geði.

„Hlín hringdi í mig að kvöldi 28. maí og sagð­ist hafa sent bréfið og nú þyrfti að ná í pen­ing­ana. „Sendirðu bréfið og held­urðu virki­lega að það hafi kom­ist til skila og það verði tekið mark á þessu rugli,“ spurði ég hana. Ljóst var að hún var búin að fylgj­ast með högum for­sæt­is­ráð­herra því hún sagð­ist vita á hvaða leik­skóla barn þeirra hjóna væri og hafði velt fyrir sér hvort hún ætti að lauma bréf­inu í tösku barns­ins. Hún var aug­ljós­lega veik en ég brást henni og sjálfri mér þá sem fyrr með því að stoppa hana ekki af. Hún sagði að ég yrði að koma með henni á afhend­ing­ar­stað­inn, ofan Hafn­ar­fjarðar. Ég neit­aði í fyrstu en hún nauð­aði í mér áfram. Ég hugs­aði með mér að eina leiðin til að þessu linnti væri að ég færi með henni. Það yrði frið­þæg­ing og hún losn­aði við þetta mál af heil­anum. Mér leið eins og ég væri að fara með lítið barn til að athuga hvort jóla­sveinn­inn væri í fjall­inu. Hlín hafði und­ir­búið þetta vand­lega. Hún sagð­ist hafa lesið sér til um fjár­kúg­anir á vefnum. Við mæltum okkur mót morg­un­inn eftir,“ sagði Malín Brand í við­tali við Stundina í nóv­em­ber árið 2015.

Hér­aðs­dómur dæmdi báðar syst­urnar 12 mán­aða fang­elsi fyrir fjár­kúg­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins