„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ólafía er eitt af 14 meintum fórnarlömbum dr. Skúla: „Í rauninni sveltur hún til dauða á níu dögum“

Ólafía er eitt af 14 meintum fórnarlömbum dr. Skúla: „Í rauninni sveltur hún til dauða á níu dögum“
Ólafía með börnum sínum Mynd: aðsend

Ólafía Kristný Ólafs­dóttir var harð­dug­leg og ljúf kona sem var dáð og elskuð af sínu fólki. Dóttir hennar lýsti henni meðal ann­ars sem ljós­bera og nátt­úru­afli. Í nóv­em­ber 2019 lagð­ist Ólafía Kristný inn á göngu­deild Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­nesja með ólækn­andi krabba­mein í brisi. Hún var sett á lífsloka­með­ferð án þess að hún eða hennar nán­ustu aðstand­endur voru látnir vita. Var henni neitað um vökva og nær­ingu í æð þrátt fyrir beiðni aðstand­enda. Níu dögum síðar var hún látin. Sér­fræð­ing­ur­inn í með­ferð hennar var dr. Skúli Tómas Gunn­laugs­son.

Mannlíf hefur fjallað ítar­lega um mál Skúla Tómasar frá því að lög­reglan hóf rann­sókn á því í fyrra. Hægt og bít­andi hafa meint fórn­ar­lömb meintra mis­taka Skúla fjölgað en í dag er lög­reglan að rann­saka and­lát níu sjúk­linga Skúla auk fimm ann­arra sem tókst að bjarga frá ótíma­bærum lífsloka­með­ferðum. Lög­reglan segir að málið eigi sér ekki for­dæmi á Íslandi.

Var ráðlagt að fara í göngutúr og skipta um matarræði

Mannlíf tal­aði við dóttur Ólafíu Kristnýjar, Lindu Rós Eðvarðs­dóttur sem sendi skýrslu fyrir hönd aðstand­enda Ólafíu, til land­læknis, þar sem kvartað var undan með­ferð­inni á móður hennar. Ólafía var rétt orðin 63 ára er hún lést rétt fyrir mið­nætti þann fimmta des­em­ber 2019. Átti hún fimm börn og einn stjúp­son.

Linda Rós

Fjórtán sinnum á fimm mán­uðum hafði hún farið til læknis á HSS, vegna verkja sem hún var með en lækna­nemi hafði séð að blóð­syk­ur­inn hefði hækkað óeðli­lega hjá henni. Þrátt fyrir það var hún ekki send í frek­ari skoðun heldur gefið það ráð að fara í göngut­úra, taka íbú­fen og borða ein­föld kol­vetni. Þegar hún fékk því loks­ins í gegn að fara í mynda­töku kom í ljós að hún væri með fjórða stigs krabba­mein í brisi og við tók lyfja­með­ferð. Að sögn Lindu brást lík­ami hennar illa við lyfja­með­ferð­inni á Land­spít­al­anum og var bún því flutt með sjúkra­bíl til Kefla­víkur. Að sögn Lindu við­ur­kenndu Skúli og yfir­lækn­ir­inn að það hafi verið mis­tök að setja hana í lyfja­með­ferð þann dag­inn, það hafi ekki verið fylgst nógu vel með blóð­inu í henni. Þegar Ólafía er komin á HSS eru aðstand­endur boð­aðir á fund. „Og við erum kölluð á fjöl­skyldufund þar sem þeir tala um að krabba­meinið hafi dreift úr sér og að þeir ætli að hætta með­ferð. Þegar ég spyr þá hvort hún kom­ist heim af spít­al­anum svör­uðu þeir því til að þeir ætli að sjá til, kannski verður það hægt. Mér fannst þeir virka nokkuð von­góðir, svona hvernig þeir töl­uðu, þeir Skúli Tómas og yfir­lækn­ir­inn. En þeir neita að gefa henni nær­ingu og vökva.

Ólafía og Linda á góðum degi.

Eftir lyfja­með­ferð­ina var hún mjög þjáð en þeir eru ekk­ert að gefa henni nær­ingu eða vökva. Við þurftum að biðja um það. Fyrst var ekki mikið um svör en svo er okkur sagt að vök­vinn myndi bara setj­ast utan á líf­færin hennar. Og við vorum bara „Ha? ok“. En svo heimt­uðum við bara að hún fengi nær­ingu og afi kall­aði annað hvort Skúla eða yfir­lækn­ir­inn, morð­ingja, að hann væri að drepa hana með því að gefa henni ekki nær­ingu.“ Eftir tvo daga fór Ólafíu að líða aðeins betur og gat borðað smá sjálf. „En þrátt fyrir það að henni leið orðið betur gáfu þeir henni ekki nær­ingu og vökva í æð. Hún fékk bara mor­fín,“ sagði Linda Rós og hélt áfram: „Í raun­inni sveltur hún til dauða á níu dögum. Hún hætti að geta borðað aftur en þeir neit­uðu að gefa henni nær­ingu og vökva í æð. Þeir héldu henni eig­in­lega sof­andi bara frá fyrsta degi.“

Blaða­maður Mannlífs: En hvernig voru lækn­arnir í við­móti? Var erfitt að fá upp­lýs­ingar frá þeim og þurftuð þið að ganga á eftir því?

Linda Rós: „Við erum mörg syst­kynin, við erum fimm, plús einn stjúp­bróðir og það var alltaf talað við sitt­hvort okkar og við látin bera upp­lýs­ingar óform­lega á milli okkar skil­urðu? Og við rif­umst alveg stundum. Sumir vildu að hún fengi nær­ingu í æð en ég vildi til dæmis hlusta á lækn­ana því ég hélt að þeir vissu hvað þeir væru að segja.“ Eig­in­maður Ólafíar er heyrn­ar­laus en hann fékk aldrei túlk þegar upp­lýs­ingar bár­ust um með­ferð og líðan Ólafíar. „Maðurinn hennar mömmu er heyrn­ar­laus en hann fékk aldrei túlk. Og ég bað um það tvisvar en hann fékk ekki túlk. Og þar sem hann heyrði ekki í hryglu­hljóð­inu í mömmu, átt­aði hann sig ekki alveg á ástand­inu, hann hélt að hún væri bara í hvíld. Þannig að þegar hún dó, var það rosa­lega áfall fyrir hann.“

Sjúkraskýrslan stenst ekki skoðun

Linda segir að þegar þau hafi séð Evu Hauks­dóttur, sem er dóttir eins af meintum fórn­ar­lömbum dr. Skúla, tala um málið í fjöl­miðlum, hafi þau ákveðið að biðja um sjúkar­skýrsl­una frá HSS. „Þá eru þeir að ljúga í sjúkra­skýrsl­unni. Þeir sem sagt setja hana á líkna­með­ferð á degi tvö og í sjúkra­skýrsl­unni er spurt við hvern er talað varð­andi það en þar stóð bara „óskráð.“ Af því að við vorum aldrei látin vita. Svo stendur líka í sjúkra­skýrsl­unni að það hafi verið haldnir margir fjöl­skyldufundir og að allir hafi verið rosa sáttir. En ég meina, það var eng­inn sáttur.“

Aðspurð um kveðju­stund­ina segir Linda að þau hefðu ekki náð að kveðja hana. „Okkur var bara sagt að hún hefði óskað eftir því að vera haldið sof­andi en hún hafði aldrei sagt okkur frá því.“

Kærði greiningarferlið

Linda segir ómögu­legt að vita hvað móðir hennar hefði getað lifað lengi með krabba­mein­inu en að lækn­arnir sem sáu um hana á HSS hefðu klár­lega flýtt fyrir and­láti hennar. En þau systk­inin eru líka ósátt við grein­ing­ar­ferlið. „Ég kærði grein­ing­ar­ferlið. Af því að í jan­úar fer hún til ein­hvers lækna­nema og fór fastandi í blóðprufu hjá honum, sem sýndi hækk­andi blóð­sykur,“ sagði Linda en þarna var móðir hennar sár­þjáð og leit­aði því til lækna, óaf­vit­andi að hún væri komin með krabba­mein. „En í stað­inn fyrir að rann­saka þetta betur er henni sagt að vinna með ein­földum kol­vetnum og fara í göngut­úra. Og þetta stendur í lækna­skýrsl­unni. Hún þurfti að berj­ast fyrir því að krabba­meinið yrði greint, ég held hún hafi bara farið sjálf í Domus Medica og beðið um mynda­töku. En svo hverfa tvær til þrjár vikur úr lækna­skýrsl­unni. Það vantar að það hafi komið í ljós að hún væri með krabba­mein í júní og þangað til hún hefur lyfja­með­ferð­ina. Og hún sagði okkur að lækn­arnir sem hún leit­aði til á HSS, hefðu verið með tárin í aug­unum þegar þeir voru að segja henni frá krabba­mein­inu, af því að þeir vissu upp á sig sök­ina. Þannig að það var ekki bara þessi líkn­andi með­ferð sem okkur var ekki greint frá eða útskýrt heldur var það líka grein­ing­ar­ferlið sem við erum ósatt við. Hún fór til Domus Medica sem svo sendu nið­ur­stöð­urnar til Kefla­víkur en lækn­arnir á HSS hringja ekki í hana og segja henni frá nið­ur­stöð­unum. Hún ákvað að hringja bara að sjálfs­dáðum á sjúkra­húsið á Akranesi og biðja þá um nið­ur­stöð­urnar. Þeir sögðu henni að fara beint á bráða­mót­tök­una. Og þetta stendur allt í sjúkra­skránni.“

Reið og sár

Fjöl­skyldan er auð­vitað afar ósátt með með­ferð­ina á Ólafíu en Linda segir að þetta hafi haft gríð­ar­leg áhrifa á þau öll. „Við upp­lifðum öll alvar­lega áfallasteituröskun. Sum okkar misstu vinn­una, bróðir minn fór í Virk og mað­ur­inn hennar mömmu fór í hjarta­að­gerð tveimur mán­uðum eftir and­látið. En við vorum ekk­ert að fatta þetta strax, okkur leið skringi­lega með þetta og vorum að spá í að fá sjúkra­skýrsl­una en gerðum aldrei neitt í því fyrr en Eva kom fram í fréttum.“

Manneskjan á bak við tölfræðina

Nafn Ólafíu er nú í rann­sókn­ar­skýrslum um mann­dráps­rann­sókn lög­regl­unnar ásamt átta öðrum nöfnum en hvaða mann­eskja er á bak­við nafnið?

„Hún var bara ótrú­lega ljúf og sterk. Hún átti blóma­búð­ina í Glæsibæ, Dalíu og var með hana í 10 ár og vann alla daga þar ein, frá níu til sex, sjö á kvöldin. Þannig að hún var harð­dug­leg en hún var samt öryrki. Hún var dug­leg að tala við fólk sem aðrir nenntu ekki að tala við, gaf þeim alltaf tíma, var góð við þau og þekkti þau öll með nafni og gaf þeim sígó, skil­urðu? Hún var sem sagt með stórt hjarta og var ótrú­lega list­ræn, bæði í blóma­búð­inni og að gera mál­verk og teikn­ingar. Hún teikn­aði lista­verk á gler. Hún eign­að­ist sex börn en eitt þeirra dó úr heila­himnu­bólgu 9 mán­aða gam­alt.“

Linda Rós sagði að lokum að móður hennar sé afar sárt saknað af fjöl­skyldu og vinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins