„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fjögurra ára biðlistar eftir ADHD-greiningum: „Skaðlegar afleiðingar verða okkur sífellt ljósari“

Fjögurra ára biðlistar eftir ADHD-greiningum: „Skaðlegar afleiðingar verða okkur sífellt ljósari“
Heilsu­gæslan. Mynd/skjá­skot RÚV

ADHD segj­ast í nýrri ályktun fagna þeim breyt­ingum sem nú sé verið að gera á þjón­ustu við fólk með ADHD. Álykt­unin var sam­þykkt á aðal­fundi sam­tak­anna, sem hald­inn var þann 30. mars 2022. Í henni skora sam­tökin einnig á ráð­herra og þing­menn að auka við fjár­fram­lög til grein­inga og þjón­ustu við fólk með ADHD.

„Nýtt ADHD teymi heilsu­gæsl­unnar fyrir full­orðna, Geð­heilsu­m­ið­stöð barna og fyr­ir­heit um aukið fjár­magn og bætta þjón­ustu á lands­vísu eru löngu tíma­bærar aðgerðir af hálfu hins opin­bera til að bregð­ast við því ófremd­ar­á­standi sem skap­ast hefur í mála­floknum á liðnum árum,“ segir í álykt­un­inni.

Þar segir enn­fremur að aukin þekk­ing og með­vit­und um ADHD hafi leitt af sér stór­aukna eft­ir­spurn fyrir grein­ingar og þjón­ustu. Hvorki einka­að­ilar né hið opin­bera hafi náð að anna þeirri eft­ir­spurn. Afleið­ingar þess hafa meðal ann­ars verið að biðlistar hafa lengst ár frá ári og hafa aldrei verið lengri en þeir eru í dag.

Biðtími eftir greiningu orðinn allt að fjögur ár

„Vel á þriðja þús­und ein­stak­lingar, börn og full­orðnir eru nú á biðlistum eftir grein­ingu og þjón­ustu vegna ADHD hjá hinu opin­bera og eru þá ótalin þau sem bíða eftir þjón­ustu einka­að­ila. Bið­tím­inn orð­inn allt að fjögur ár!“ segir í ályktun ADHD sam­tak­anna.

Mannlíf fjall­aði síð­ast­liðið haust um langa biðlista eftir grein­ingum á ADHD. Þar var til að mynda ein­stak­lingur á biðlista eftir grein­ingu sem hafði fengið bréf sem gaf til kynna ófremd­ar­á­stand í mála­flokknum. Við­kom­andi hafði á þeim tíma­punkti þegar beðið lengi eftir grein­ingu en bréfið gaf til kynna algjöra upp­lausn og óvissu um það hvort ein­stak­ling­ur­inn kæmi til með að kom­ast í grein­ing­ar­ferli.

Ef marka má ályktun ADHD sam­tak­anna og til­kynn­ingar frá Heilsu­gæsl­unni virð­ist nú horfa til betri vegar í mála­flokknum.

„Skað­legar afleið­ingar ógreinds og ómeð­höndl­aðs ADHD verða okkur sífellt ljós­ari og aug­ljós ávinn­ingur sam­fé­lags­ins og ein­stak­ling­anna sjálfra af bættri þjón­ustu hins opin­bera við fólk með ADHD er him­in­hróp­andi. Afleið­ingar aðgerð­ar­leysis lið­inna ára kalla hins­vegar á stór­aukið fjár­magn næstu árin, til að vinna niður þá 3-4 ára biðlista sem nú blasa við.

Þannig og aðeins þannig getur nýtt skipu­lag grein­inga og þjón­ustu á vegum hins opin­bera orðið sú mikla sam­fé­lags bót sem vonir standa til. Valið stendur í raun um óbreytt ástand með ára­löngum biðlistum eða að Ísland verði til fyr­ir­myndar á heims­vísu þegar kemur að lífs­gæðum fólks með ADHD.

Aðal­fundur ADHD sam­tak­anna skorar því á ráð­herra og þing­menn að stór­auka fjár­magn til grein­inga og þjón­ustu við fólk með ADHD nú þegar og nýta þannig það gullna tæki­færi sem nú býðst til að bæta lífs­gæði fólks með ADHD sam­fara nýju skipu­lagi þjón­ust­unnar á vegum hins opin­bera. Tæki­færið er núna!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins