„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Um 211 hafa fallið fyrir eigin hendi síðan gerð myndarinnar hófst: „Umlukið dulúð og þrúgandi þögn“

Um 211 hafa fallið fyrir eigin hendi síðan gerð myndarinnar hófst: „Umlukið dulúð og þrúgandi þögn“

Ný kvik­mynd sem hverf­ist um sjálfs­víg og þá þöggun og skömm sem hefur umlukið slík mál í gegnum árin, verður frum­sýnd þann 20. apríl næst­kom­andi. Kvik­myndin ber nafnið „Út úr myrkr­inu“ og er ætlað að vekja athygli á mál­efn­inu og hvetja til opinnar umræðu um það sam­fé­lags­mein sem um ræðir. Myndin er eftir þá Helga Felixson og Titti Johnson, sem hafa getið sér gott orð í kvik­mynda­iðn­að­inum og áður gert myndir sem sýndar hafa verið um allan heim.

Í upp­lýs­ingum frá aðstand­endum kvik­mynd­ar­innar segir að frá því gerð mynd­ar­innar hófst árið 2017 hafi í það minnsta 211 ein­stak­lingar fallið fyrir eigin hendi á Íslandi.

„Þagn­ar­hjúpur og skömm hefur umlukið sjálfs­víg og sjálfs­vígs­hugs­anir í gegnum ald­irnar. Það skýrist eflaust af þeirri stað­reynd að litið var á sjálfs­víg sem glæp, sam­an­ber tungu­takið þar sem sumir tala um að „fremja sjálfs­morð“ en sögnin að fremja vísar í glæp­sam­legt athæfi og það sama á við orðið morð. Fyrr á öldum var hægt að gera eigur þeirra sem tóku eigið líf upp­tækar og greftrun þeirra í kirkju­görðum var bönnuð og Ísland var þar engin und­an­tekn­ing,“ segir í til­kynn­ingu frá þeim Helga Fel­ix­syni og Titti Johnson.

„Talið er að 500 til 600 sjálfs­vígstil­raunir séu gerðar á Íslandi árlega og að á milli 30 til 50 manns deyi á ári vegna sjálfs­vígs. Hvað er að, hvað veldur? Það er greini­lega eitt­hvað veru­lega mikið að í sam­fé­lagi sem sættir sig við þessa stað­reynd.

Þessi kvik­mynd miðlar reynslu aðstand­enda sem hafa misst ást­vin, sem tekið hefur eigið líf og hvernig þeir hafa kom­ist út úr myrkri og þöggun. Myndinni er ætlað að hvetja til opinnar umræðu um efni sem hingað til hefur verið umlukið dulúð og þrúg­andi þögn.“

Helgi Felixson og Titti Johnson eiga að baki langan feril í kvik­mynda­gerð og hafa áður gert myndir eins og Guð blessi Ísland, Vive la France og Undir stjörnu­himni, sem allar hafa verið sýndar víða um heim og hlotið umtals­verða athygli. Kvik­mynd­irnar hafa verið sýndar í sjón­varpi og á fjölda kvik­mynda­há­tíða.

Tón­listin í kvik­mynd­inni „Út úr myrkr­inu“ er eftir tón­skáldið og Ósk­arsverð­launa­hafann Hildi Guðna­dóttur. Frum­sýn­ing verður þann 20. apríl næst­kom­andi í Bíó Paradís.

Hér má horfa á stiklu úr kvik­mynd­inni:

https://bioparadis.is/kvikmyndir/ut-ur-myrkrinu/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins