„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sveitahundurinn Trýna er týnd og gæti verið slösuð – Óskað eftir sjálfboðaliðum

Sveitahundurinn Trýna er týnd og gæti verið slösuð – Óskað eftir sjálfboðaliðum
Trýna. Tekið af síðu Dýrfinnu.

Sjálf­boða­liða­sam­tökin Dýrfinna, sem aðstoða fólk við leit að týndum dýrum, óska eftir sjálf­boða­liðum í leit að tík­inni Trýnu, sem hefur verið týnd í tvo daga.

Í sam­tali við Mannlíf segir for­svars­kona sam­tak­anna að mikil þörf sé á fleiri aðilum sem geti haft augun opin og aðstoðað við leit að tík­inni. Hún sé 11 ára gam­all sveita­hundur sem sé hugs­an­lega slösuð eftir að hafa orðið fyrir bíl.

Samtökin segja að eig­andi Trýnu hafi ekki heilsu í leit­ina og því sé þátt­taka sjálf­boða­liða enn brýnni. Einungis tvær hafi kom­ist úr Hunda­sveit­inni.

Í til­kynn­ingu frá Dýrfinnu segir:

„Trýna er 11 ára sveita­hundur sem týnd­ist kl. 13 þann 10. apríl frá Lamb­haga­vegi í Graf­ar­holti en býr úti á landi. Hún þekkir ekki bæinn vel.

Hún hefur sést á eft­ir­töldum stöðum:

Hún hljóp yfir Vest­ur­lands­veg­inn hjá hring­torg­inu hjá Bauhaus og varð mögu­lega fyrir bíl.

Hún sást að öllum lík­indum hjá skóg­rækt­inni í Úlf­árs­dal og hljóp í átt að Bauhaus um 15:40.

Hún gæti verið mjög hrædd og mögu­lega slösuð.

Kl. 22 þann 10 apríl sést hún fara upp í átt að Húsa­hverfi í graf­ar­vogi en sést ekk­ert eftir það.“

Fólki er bent á að elta hvorki Trýnu né kalla á hana, ef það sjái tík­ina. Þess í stað skuli taka mynd eða mynd­band og hringja strax í síma 854-4666 (Leópold) eða 896-8330 (Kristín Áslaug).

Til þess að taka þátt í leit­inni er hægt að skrá sig í athuga­semd undir færsl­una um Trýnu á Facebook-síðu Dýrfinnu. Við­kom­andi verður þá bætt í leit­ar­spjall sam­tak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins