„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Simbi var á kafi í undirheimunum en sneri við blaðinu: „Það er leið út úr þessu“

Þetta er brot úr við­tali sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Sig­mundur Geir Helgason, sem ávallt er kall­aður Simbi, var í harðri neyslu um ára­bil og lifði og hrærð­ist í und­ir­heimunum. Hann fram­fleytti sér með glæpum, lenti í fang­elsi og missti tengslin við það sem gæti talist eðli­legt líf. Simbi var djúpt sokk­inn í neyslu; fyrstu árin var það amfetamín, sem svo þró­að­ist út í blöndu af efnum og síð­asta árið var hann kom­inn út í mikla mor­fín­n­eyslu. Þegar tveir vinir hans lét­ust úr alkó­hól­isma kom augna­blikið sem hann ákvað að horfast í augu við sjálfan sig og snúa við blað­inu í eitt skipti fyrir öll. Honum bauðst að lengja með­ferð­ar­tíma á Hlað­gerð­ar­koti í stað­inn fyrir fanga­vist, sem hann þáði feg­inn og nýtti sér alla þá aðstoð sem honum bauðst.

Hjálpar öðrum að verða edrú

Simbi segir ekki ýkja mörg dæmi um menn sem hafi verið djúpt sokknir í und­ir­heim­ana og náð að koma sér út úr þeim og algjör­lega snúið við blað­inu.

„Þeir eru til, en við erum ekki margir. Og það er gaman að segja að við erum fyr­ir­myndir og þurfum að standa okkur, svo aðrir geti horft á okkur og hugsað: „Það er leið út úr þessu.“ Það er leið. Ég veit að ég er fyr­ir­mynd af því að mér er sagt það. Ég var með svona fyr­ir­mynd líka, til þess að horfa á og til þess að kom­ast áfram. Þannig að þetta er hægt.“

Þarna var Simbi á hvað verstum stað í neysl­unni. Það var um þetta leyti sem hann hringdi á Hlað­gerð­ar­kot.

Simbi hefur lagt sitt af mörkum til þess að hjálpa öðrum sem eru á slæmum stað, eins og hann var sjálfur.

„Já, ég hef verið að hjálpa strákum. Í AA sam­tök­unum, leið­beina þeim við það hvernig á að verða edrú og hvað maður á ekki að gera. Svo hafa líka margir sem eru edrú komið og sagt sög­una sína og segj­ast hafa séð mig á fundi og hugsað: „Ef hann nær þessu, þá ætla ég að ná þessu.“ Þeir eru edrú í dag. Það er gaman að sjá þetta líka. Án þess að gera sér grein fyrir því, þá er maður að hjálpa. Bara með því að vera edrú. Þannig að þetta snýst svo­lítið mikið um að hjálpa hver öðrum.

Það er gaman að vera til taks líka. Þessi sjúk­dómur er líka í fjöl­skyld­unni minni og ég reyni að hjálpa til þar. Þar er einnig leitað til mín. Við stöndum saman sem glímum við þennan sjúk­dóm, þetta snýst um það.“

Í dag er Simbi sem nýr maður og ber það sann­ar­lega með sér.

Simbi seg­ist afar hepp­inn með fjöl­skyld­una sína.

„Ég á rosa­lega góða fjöl­skyldu. Amma og afi misstu aldrei trúna á mér. Ég var alltaf Simbi, litli strák­ur­inn þeirra. Það var rosa­lega gott, þegar maður var á versta staðnum þarna, að hugsa að það var fólk sem missti ekki trúna á manni. Það eru rosa­góð tengsl í fjöl­skyld­unni minni. Ég var alveg búinn að missa tengslin við bræður mína í svo­lít­inn tíma, en við erum aftur orðnir alveg rosa­lega nánir. Sér­stak­lega yngri bróðir minn og ég. Eins og við vorum á sínum tíma.

Stóri bróðir minn myndi gera allt fyrir mig. Hann hefur líka staðið með mér. Fyrstu mán­uð­ina þegar ég var edrú var ég á áfanga­heim­ili. Þá þurfti ég bara að hringja í hann ef mig vant­aði aðstoð. Ég vissi ekki í hvern ég ætti að hringja. Hann aðstoð­aði mig strax. Það voru allir til­búnir að hjálpa um leið og ég var búinn að sanna að ég ætl­aði að verða edrú.

Það þurfti að taka góðan tíma í með­ferð, koma út og halda áfram; þá fékk ég aðstoð. Það er ómet­an­legt. Ég er kannski einn af þeim heppnu. Ég myndi halda það.

Svo er það konan mín. Við kynnt­umst þegar ég var búinn að vera edrú í næstum því tvö ár og ég hefði ekki getað þetta allt saman án hennar.

Ég held líka að þetta sé smá heppni – hvernig líf mitt er búið að blómstra á góðan hátt og ég hef ekki farið í hina átt­ina aftur. Mér finnst ég ekki alveg geta sett kreditið á mig, þótt ég hafi unnið vinn­una. Og sé að vinna vinn­una. Þá tel ég guð hafa sent ákveðið fólk til mín í mínar aðstæðum og hjálpað mér að leysa þær. Af hverju ekki? Kannski bara guð – hann er nátt­úr­lega að leik­stýra sýn­ing­unni. Það er svo­lítið þannig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

geðheilbrigði

Hlaðgerðarkot rak andlega veikan mann úr meðferð – Ekkert pláss á geðdeild
Innlentgeðheilbrigði

Hlað­gerð­ar­kot rak and­lega veikan mann úr með­ferð – Ekkert pláss á geð­deild

Ungur vist­maður var rek­inn af með­ferð­ar­heim­il­inu Hlað­gerð­ar­koti, án þess að hafa brotið þar reglur. Maðurinn þjá­ist af geð­hvarfa­sýki og er í oflæti (e. Mania), sem er sögð trufla aðra vist­menn með­ferð­ar­heim­il­is­ins. Maðurinn er fíkni­efna- og áfeng­is­sjúk­lingur en var búinn að vera edrú í þrjú og hálft ár, og varð faðir fyrir ári síðan en veikt­ist fljót­lega eftir fæð­ing­una. Féll hann...
Gulur september hefst í dag – Auka á meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna
Innlent

Gulur sept­em­ber hefst í dag – Auka á með­vit­und fólks um mik­il­vægi geð­ræktar og sjálfs­vígs­for­varna

Opn­un­ar­við­burður um sam­vinnu­verk­efni um geð­rækt og sjálfs­vígs­for­varnir verður hald­inn í Kringl­unni í dag klukkan 14:00. Gulur sept­em­ber er sam­vinnu­verk­efni stofn­ana og félaga­sam­taka sem vinna saman að geð­rækt og sjálfs­vígs­for­vörnum. Sjá líka á gul­ursept­em­ber.is Það er von und­ir­bún­ings­hóps­ins að gulur sept­em­ber, auki með­vit­und fólks um mik­il­vægi geð­ræktar og sjálfs­vígs­for­varna, sé til merkis um kær­leika, aðgát og umhyggju. Slag­orðin; „Er allt í...
Öryrkja neitað um greiðslur: Hvernig sefur maður á nóttunni eftir að senda svona bréf?“
Innlentgeðheilbrigði

Öryrkja neitað um greiðslur: Hvernig sefur maður á nótt­unni eftir að senda svona bréf?“

Öryrki segir Trygg­inga­stofnun skað­lega heilsu skjól­stæð­inga sinna. Karl­maður sem er öryrki, greindur með krónískt þung­lyndi, kvíða­röskun og sjálfs­vígs­hugs­anir skrif­aði stutta en sterka færslu á Facebook í kvöld þar sem hann kvartar undan Trygg­inga­stofnun. Segir hann að stofn­unin sé „bein­línis skað­leg heilsu skjól­stæð­inga sinna“ og segir álagi sem fylgi stöð­ugum kröfum og höfn­unum sem hann segir að sé á grund­velli „computer...
Sólveig Anna hlær með Villa Neto: „Ég hélt að þú ætlaðir að segja mér brandara“
Menning

Sólveig Anna hlær með Villa Neto: „Ég hélt að þú ætl­aðir að segja mér brand­ara“

Sólveig Anna Jóns­dóttir sýnir á sér glæ­nýja hlið í nýrri aug­lýs­ingu Geð­hjálpar. Lands­sam­tökin Geðhjálp fór nýverið af stað með aug­lýs­inga­her­ferð þar sem svokölluð G-vítamín dags­ins eru sýnd. Í nýjasta myn­skeið­inu er G-vítamín dagsin að hlæja með öðrum. Þar má sjá Villa Neto fá Sólveigu Önnu Jónssdóttur verka­lýðs­for­ingja, hlæja með sér en fólk sem stundar hlát­urjóga veit að slík iðja bætir...
Símafyrirtæki á undan ríkisstjórninni að bjóða upp á niðurgreidda sálfræðiþjónustu
Innlentgeðheilbrigði

Síma­fyr­ir­tæki á undan rík­is­stjórn­inni að bjóða upp á nið­ur­greidda sál­fræði­þjón­ustu

Sím­fyr­ir­tækið Nova býður við­skipta­vinum sínum upp á tvo fyrir einn af sál­fræði­tímum. Nova hefur lengi boðið upp á afslætti og til­boð fyrir þá sem nýta sér þjón­ustu þeirra, oft­ast eru þau til­boð á mat og á veit­inga­stöðum en algjör nýj­ung er að bjóða upp á þessa þjón­ustu. „Opnaðu þig. Þú færð 50 mín­útna sál­fræði­við­tal á net­inu hjá Mín líðan á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins