„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þessi förðunartrend koma sterk inn fyrir 2022 – Glimmer, metall og glans allsráðandi

Þessi förðunartrend koma sterk inn fyrir 2022 – Glimmer, metall og glans allsráðandi

Elle hefur birt nokkur af aðal­förð­un­ar­trendum árs­ins 2022 í sam­starfi við förð­un­ar­fræð­ing­inn Allan Avendaño. Hann upp­lýsir Elle um hvað flýgur hæst í förð­un­ar­heim­inum um þessar mundir; farð­anir sem hann hefur sjálfur skapað fyrir kúnna sína, en á meðal þeirra eru þær Vanessa Hudgens, Jodie Turner-Smith og Rachel Zegler.

Lesendum er bent á að merkja þetta hjá sér og skemmta sér síðan kon­ung­lega við að prófa sig áfram – því trendin eru mörg hver afar lif­andi og fersk.

Það er þátta­röðin Euphoria, sem slegið hefur í gegn hjá HBO und­an­farið, sem virð­ist hafa haft hvað mest áhrif á tísk­una. Glimmer, met­all og kinna­litir eru alls­ráð­andi.

Metall

Förðun með metal-augn­förðun mun tröll­ríða öllu árið á enda og eflaust ennþá lengur. Hér er það krómið og fljót­andi augnskuggar í djúpum metallitum sem ráða lögum og lofum. Það er líka skemmti­legt að gera til­raunir með króm­flögur sem eru settar á augn­lokin eftir fíl­ing – mikið fjör, mikið gaman.

Elle mælir með:

Twin Flames Multichrome Pigment frá Danessa Myricks Beauty

Lid Lustre frá Victoria Beckham Beauty

Glitter & Glow Liquid Eye Shadow frá stila

Kajal Pencil frá Byredo

Mannlíf mælir sér­stak­lega með fljót­andi meta­laugnskuggum á borð við Inter­stellar frá LH Cosmetics – höf­undur á slíka sjálf og gjör­sam­lega elskar þá!

Kinnalitir – mótun og lyfting

Þetta trend er dálítið 80’s og við hrein­lega elskum það! Enda er það bæði frísk­legra og skemmti­legra en brúna „kontúrið“ að hætti Kim Kar­dashian sem átti sviðið síð­ustu ár. Hér notum við kinna­lit upp að gagn­augum til þess að móta and­litið og gefa því frísk­legt og skemmti­legt yfir­bragð. Kinna­lit­ur­inn er settur á kinn­arnar, eða eplin, og síðan dreg­inn upp eftir kinn­bein­unum og alveg upp að gagn­augum. Þetta gefur and­lit­inu bæði lyft­ingu og rammar það inn. Hér er algjört lyk­il­at­riði að byrja á litlu magni og byggja upp – og blanda vand­lega! Það er hægt að nota bæði púð­ur­k­inna­lit eða fljót­andi kinna­lit, allt eftir smekk. Munið bara að velja lit­inn vel og passa að hann henti ykkar húð­lit.

Elle mælir með:

Soft Pop Powder Blush frá Makeup by Mario

Blush Divine Radiant Cheek and Lip Color frá Rose Inc

Stick Glow frá Dior

Terracotta Light the Healthy Glow Vitamin-Radience Powder frá Guerlain

Mannlíf mælir ein­dregið með að prófa sig áfram með kinna­liti frá Bare Minerals og Mac, sem og að prófa „multiuse“-vör­urnar frá LH Cosmetics, sem mega not­ast á kinnar sem og varir og augu.

Glimmer og gloss

Loksins erum við laus við grímuna og þá er aðal­málið að leggja áherslu á var­irnar með girni­legum glossum. Þá er um að gera að para glitr­andi augu við glans­andi og fullar varn­irnar. Þarna koma þætt­irnir Euphoria sterkir inn þegar leitað er eftir inn­blæstri. Hér kemur glimmer fyrir augu og lík­ama aftur – hver man ekki eftir því, sem er af mil­lenial-kyn­slóð­inni? Það er bara svo SKEMMTILEGT. Svo eru það álímdir sem­el­íu­steinar. Það besta er að fara út að skemmta sér með glimmer á augum, bringu og hand­leggjum og vakna svo eld­hress dag­inn eftir í glimmer-rúmi. Hver saknar þess ekki, í alvöru?

Elle mælir með:

Glitter Shot All-Over Glitter Crush frá Smith & Cult

Eye Play Gem Pack frá Simihaze Beauty

Shineon Lip Jelly frá Tower 28 Beauty

Mothers­hip IV: Decadence Eye Shadow Palette frá Pat McGrath Labs

Mannlíf mælir aftur með fljót­andi metal-augnskugg­unum frá LH Cosmetics – það má nefni­lega nota þá um allt and­lit og lík­ama. Það er hægt að nota minna magn og þá færðu létt glimmer og glans.

Infinity Gloss frá LH Cosmetics. Þetta er algjör snilldar vara! Hún breytir öllu í gloss og má not­ast hvar sem er. Þannig er hægt að setja smá af vör­unni ofan á vara­liti og breyta þeim þar með í gloss, smyrja smá á kinn­beinin eða jafn­vel setja vör­una ofan á augnskugga og fá þannig „wet-look“ sem er líka eft­ir­sókn­ar­vert um þessar mundir.

Hér er kannski rétt að taka það fram að hér er ekki um aug­lýs­ingu fyrir LH Cosmetics að ræða – höf­undur er bara per­sónu­lega virki­lega hrif­inn af vör­unum!

Mónókróm fílingur

Þetta trend er frekar nátt­úru­legt án þess að vera „nude“. Gald­ur­inn hér er að nota sömu liti eða mis­mun­andi tóna af sama lit á bæði augu og varir – helst líka á kinn­arnar. Þannig eru svo­kall­aðar „multi-use“ förð­un­ar­vörur algjör snilld til að ná fram þessu útliti. Það er líka skemmti­legt að hafa allt matt eða allt með smá glans – sem ger­ist auð­vitað ef sama vara er notuð á allt.

Vin­sæl­ustu lit­irnir hér eru ferkju- og kór­allitir, bleikir, mjúkir „terracotta“-litir og gagn­sæir rauðir.

Þetta er útlit sem tekur enga stund og er kjörið fyrir þá sem eru á hrað­ferð og vilja ná fram frísk­legu útliti, með örlítið ferskum kinnum, líf­legum augum og smá lit á varn­irnar. Þegar not­aðar eru fljót­andi vörur er hægt að nota fing­urna til þess að setja allt á and­litið – ekk­ert vesen!

Elle mælir með:

Three Love Lip, Cheek and Eye Tint Stick frá INC.redi­ble

Huestick Corrector frá Live Tinted

Lip+Cheek Cream Blush and Lip Tint frá Milk Makeup

Nudies Matte All Over Face Blush Color frá Nudestix

Mannlíf ætlar aftur að mæla með „multiuse“-vöru frá LH Cosmetics –  Latex Fever í litnum Dusty Pink. Í alvöru, prófið þessar vörur!

Sólkysst húð og freknur

Það er ótrú­legt að hugsa til þess að fólk hafi einu sinni keppst við að fela freknurnar sínar, því í dag þykja þær ein­staka­lega fal­legar, auk þess að vera frísk­leika­merki. Við viljum flest næla okkur í örlítið sól­kyssta húð og freknur yfir sum­ar­mán­uð­ina – það gerir svo mikið fyrir okkur.

Nú er hins vegar líka mikið rætt um sól­ar­skemmdir og þann skaða sem sól­ar­geisl­arnir sem við erum flest svo hrifin af geta valdið húð okkar. Því er góð sól­ar­vörn algjört lyk­il­at­riði, allan árs­ins hring. Svo þarf ekki endi­lega sól til þess að ná fram dálítið úti­tek­inni og sól­kys­stri húð – í dag er til fjöld­inn allur af ótrú­lega vönd­uðum brúnku­kremum og brúnku­dropum fyrir and­litið. Auk þess er hægt að ná útlit­inu fram með förð­un­ar­vörum á borð við sól­ar­púður eða „bronzing“-dag­krem. Margir eru líka farnir að „feika“ freknur með því að teikna þær á and­litið og til eru ýmsar förð­un­ar­vörur sem skapa freknur sem engan myndi gruna að væru ekki þínar eigin.

Elle mælir með:

Les Beiges Healthy Glow Bronzing Cream frá Chanel

Freck OG The Original Freckle frá Freck Beauty

Glowish Soft Radiance Bronzing Powder frá Huda Beauty

Solar Paint frá Glossier

Mannlíf mælir ein­dregið með Bronzing Gel frá Sensai – höf­undur hefur notað það reglu­lega í mörg ár og fær ekki nóg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kúltúrinn

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“
Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugn­an­legar lík­kistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

DJ Khaled er orð­inn nýj­ast stjarnan til að fá afhenta óhugn­an­lega lík­kistu heim til sín í Flórída. Áður hafði Tekashi 6ix9ine fengið slíka send­ingu á höfð­ingja­setur sitt nokkrum dögum fyrr. Hin óhuggu­lega lík­kista var send að heim­ili Khaleds í Miami síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, af tveimur mann­eskjum sem keyrðu trukki til örygg­is­varðar, og sögð­ust vera frá send­ing­ar­fyr­ir­tæki, sam­kvæmt lög­reglu­skýrslu. Eftir að þeim...
Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans
Menning

Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tím­ans

Tón­list­ar­mað­ur­inn Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína á morgun en nafn hennar er Rykfall. Rykfall, þriðja breið­skífa Myrkva, er afrakstur margra ára vinnu. Hún er sjálf­stæð­asta verk lista­manns­ins til þessa en nán­ast hvert smá­at­riði plöt­unnar er spilað eða útsett af honum. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu var mark­miðið að skapa eitt­hvað sem gæti stað­ist tím­ans tönn. Platan fjallar um að leggja allt undir...
Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza
Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórn­ar­lömb þjóð­ar­morðs­ins á Gaza

Stór­tón­leikar verða haldnir í Háskóla­bíói laug­ar­dag­inn 1. mars kl. 14:00. Ágóði af miða­söl­unni rennur í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza. Laug­ar­dag­inn 1. mars efni Félagið Ísland-Palest­ína til stór­tón­leika í Háskóla­bíó þar sem fram koma Bubbi, GDRN, Friðrik Dór, Jón Jónsson, KK og Ellen og hljóm­sveitin FLOTT! Samkvæmt frétta­til­kynn­ing mun ágóði af miða­sölu renna í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza sem stofnað var...
The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“
Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tíma­lausum smellum og anda kán­trítón­listar“

Fyrir fjöru­tíu árum, árið 1985, varð kán­trítón­listar saga sköpuð þegar fjórir af bestu tón­lista­mönnum allra tíma, Johnny Cash, Waylon Jennings, Willie Nelson og Kris Kristoffer­son, komu saman til að stofna The Highwaymen. Samstarf þeirra var sam­stundis far­sælt, leiddi til upp­seldra tón­leika, toppplatna og var­an­legrar arf­leifðar sem mót­aði fram­tíð kán­trítón­listar. Kraft­mik­ill og hjart­næmur hljómur þeirra ómaði um allan heim og nú,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza