„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Genalækningar eiga að gera líkamsfitu heilsusamlegri: „Brún fita brennir orku“

Genalækningar eiga að gera líkamsfitu heilsusamlegri: „Brún fita brennir orku“

Þegar hvítri fitu er breytt í brúna verður ekki ein­vörð­ungu þyngd­ar­tap heldur batnar ástand lifr­ar­innar að sama skapi.

Í lík­ömum okkar fyr­ir­finn­ast tvö afbrigði fitu, svokölluð hvít fita, svo og brún fita. Í hvítu fit­unni gegna frum­urnar hlut­verki óvirkrar fitu­upp­söfn­unar á meðan brúnu fitu­frum­urnar virkja brennsl­una og láta lík­amann breyta fitu í varma.

Genatil­raunir á músum sýna að hægt sé að með­höndla offitu með því að breyta fitu­frumum lík­am­ans, þetta fjallar Jens Matthiesen um í grein sinni í Lifandi Vísindi.

Breyttir erfðavísar þola feitan mat

Með nýrri aðferð verður brátt hægt að breyta óheilsu­sam­legri hvítri fitu í brúna með því að taka einn erfða­vísi úr umferð. Þessu getur nýja tæknin gjör­breytt að vild. 

Þegar frum­urnar voru lausar við erfða­vís­inn breytt­ust þær í brúnar fitu­frumur sem vís­inda­menn­irnir síðan spraut­uðu inn í til­rauna­mýs. Vís­inda­menn­irnir gáfu mús­unum síðan fitu­ríka fæðu í því skyni að kanna áhrifin. Aðrar mýs fengu sömu með­höndlun en þær fengu reyndar aðeins hvítar fitu­frumur.

Nið­ur­stöð­urnar leiddu í ljós að mýsnar með brúnu fit­una þyngd­ust helm­ingi minna en þær sem höfðu fengið hvíta fitu.

Blóð­syk­ur­magn mús­anna með brúnu fit­una hélst eðli­legt og sama máli gegndi um insúl­ín­næmi. Mýsnar með hvítu fit­una þró­uðu á hinn bóg­inn með sér ein­kenni syk­ur­sýki og blóð­syk­ur­magnið var óeðli­legt.

Hvernig hefur þessi árangur náðst?

Vís­inda­menn við Massachusetts háskól­ann í Banda­ríkj­unum náðu þessum árangri með því að styðj­ast við svo­nefnda CRISPR-tækni sem felst í því að klippa til­tekin gen úr erfða­efni frumn­anna. 

Það sem er gert er að:

1 – Hvítar fitu­frumur teknar úr umferð

Læknar fjar­lægja hefð­bundnar hvítar fitu­frumur úr lík­ömum offitu­sjúk­lings­ins. Eitt gramm af frumum er nægj­an­legt.

2. Erfða­vísir fjar­lægður úr kjarn­anum

Með því að beita svo­nefndri CRISPR-tækni er erfða­vísir­inn NRIP1 fjar­lægður úr fru­munum og við það breyt­ast þær í brúnar fitu­frumur.

3. Brúnum frumum bætt inn

Þegar brúnu fitu­fru­munum er komið fyrir í lík­am­anum breyta þær fitu í varma og sá sem hald­inn var offitu byrjar að létt­ast.

Ungabörn hafa yfir að ráða mörgum brúnum fitu­frumum og geta fyrir vikið auð­veld­lega fengið hita í lík­amann en brúnu fru­munum fer hins vegar fækk­andi þegar við eld­umst.

Tæknin verður prófuð á öpum

Rann­sóknir á lifrum mús­anna leiddu enn fremur í ljós mun. Mýsnar með brúnu fit­una voru að öllu jöfnu með dekkri lifur á meðan mýsnar með hvítu fit­una voru með stærri og ljós­ari lifur.

Vís­inda­menn­irnir hyggj­ast gera til­raunir með aðferð­ina á öpum áður en end­an­lega verður hægt að hefja til­raunir á mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins