„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sveinn Óskar harðorður um Borgarlínu: „En fjárfestarnir, þeir hesthúsa sínar únsur gulls án áhættu“

Sveinn Óskar harðorður um Borgarlínu: „En fjárfestarnir, þeir hesthúsa sínar únsur gulls án áhættu“
Sveinn Óskar Sig­urðs­son, bæj­ar­full­trúi í Mos­fellsbæ.

„Gullæði fjár­fest­anna virð­ist ráða. Þeir virð­ast hafa offjár­fest í lóðum um alla borg, húsum á lóðum sem þarf að rífa með til­svar­andi kostn­aði. Áform um Þungu Borg­ar­lín­una getur sett bæði almenna borg­ara út af spor­inu og fjár­fest­ana sjálfa. Ef Þunga Borg­ar­línan tefst, sökum þess flækju­stigs sem Reykja­vík hefur komið henni í, gætu þessir fjár­festar valdið tjóni,“ skrifar Sveinn Óskar Sig­urðs­son, bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, í grein á Mannlífi um vænt­an­lega Borg­ar­línu og það brask sem á sér stað með fast­eignir og lóðir við svæðin sem Borg­ar­línan liggur um.

Sveinn Óskar telur einnig að fram­kvæmdin eigi eftir að taka gríð­ar­legan tíma með til­heyr­andi kostn­aði. Hann tekur sem dæmi að bygg­ingu stokks undir Miklu­braut  „Miklu­braut­ar­stokkur mun í smíðum valda gíf­ur­legum töfum svo aðeins eitt dæmi sé nefnt. Slíkt tjón lendir að mestu á almenn­ingi sem verður fyrir töfum og fari verk­efnið úr bönd­unum fjár­hags­lega er heim­ild fyrir Betri sam­göngur ohf að setja á skatt sem nú er oft nefndur sem flýti- og tafagjöld, sbr. ákvæði 4. gr. Sam­göngusátt­mál­ans. Fari allt úrskeiðis verður almenn­ingur lát­inn borga með nýjum skatti. Ef skatt­ur­inn dekkar ekki tjónið, nú þá hækkar hann þar til að jafn­vægi í árs­reikn­ingi Betri sam­gangna ohf er náð. En fjár­fest­arnir, þeir hest­húsa sínar únsur gulls án áhættu“.

En hvar er árlega tjónið sem Þunga Borg­ar­línan muni valda umfram þetta sem dekka má með hærri sköttum nýju skatt­stof­unnar sem ber nú heitið Betri sam­göngu ohf? Það eru taf­irnar sem Betri sam­göngur ohf eru að láta fram­kalla með því m.a. að miðju­setja og taka frá akreinar, þétta byggð og þrengja að umferð sem hönnun og skipu­lag Þungu Borg­ar­lín­unnar gengur út frá. Þar fara saman ókræsi­legir hags­munir sveit­ar­fé­laga sem fá hækk­andi fast­eigna­gjöld með hækkun á hús­næð­is­verði á mark­aðnum.

„Svo eru það fjár­fest­arnir sem eru að fara að rífa bygg­ingar og byggja ný háhýsi á hámarks­verði. Það er Reykja­vík­ur­borg sem hefur með umboðs­vanda skipu­lags­ins heimtað allt að 5 pró­senta bygg­ing­ar­magns á þró­un­ar­reitum fyrir hús­næði á und­ir­verði sem sett verður á end­ur­mats­verði inn í Félags­bú­staði. Svo Betri sam­göngur ohf, sem rétt eins og Rík­is­út­varpið verður e.k. ríki í rík­inu, reyndar með eigin skatt­stofn sem þeir þar stýra sjálfir. Og úr þessu verður til ein helj­ar­innar elíta, allt á kostnað almenn­ings.

Grein Sveins Óskars er að finna í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins