„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Umhverfissóðar í Breiðholti: „Mér er eiginlega orða vant“

Umhverfissóðar í Breiðholti: „Mér er eiginlega orða vant“
Ekki er fal­legt um að lit­ast við grennd­ar­gámana á Selja­braut.

„Vandinn er umgengni sóð­anna, þetta kemur alltaf aftur,“ segir íbúi í Selja­hverfi um sóða­skap og rusl við gáma í hverf­inu.

Við Selja­braut í Breið­holti eru grennd­ar­gámar stað­settir, þar sem fólk getur komið með pappa, plast og gler til end­ur­vinnslu, og fatnað til þess að gefa í söfnun. Umgengni við gámana hefur verið afar slæm og er íbúum á svæð­inu mörgum nóg boðið.

Þessi var tekin nýlega við gámana.

Íbúar sem blaða­maður Mannlífs ræddi við segja að um sé að ræða stórt vanda­mál þar sem ákveðið fólk hlaði rusli á svæðið, löngu eftir að gám­arnir eru orðnir fullir. Þannig safn­ist upp rusl sem síðan á það til að fjúka út um allt svæðið í vinda­sömu veðri, eins og mikið hefur verið um í vetur.

Umhverf­is­sóð­arnir hafa þó ekki látið það duga að hrúga upp end­ur­vinn­an­legu rusli í kringum gámana, eftir að allt er orðið fullt. Þannig hefur rusl af ýmsu öðru tagi skotið upp koll­inum á svæð­inu. Þar er meðal ann­ars um að ræða barna­bíl­stóla, þvotta­vélar og fleira sem ætti að vera öllum ljóst að eigi þar engan sama­stað.

„Það er alveg stór­merki­legt að fólk fari ekki bara með þetta drasl sitt á Sorpu,“ segir einn íbú­anna í sam­tali við blaða­mann. Flokk­un­ar­stöð Sorpu er stað­sett rétt fyrir ofan svæðið, í Jafn­a­seli, eða í um 800 metra fjar­lægð. Það gerir um það bil þriggja mín­útna akstur. Ef fólk fer gang­andi með pok­ana sína, er aðeins um tíu mín­útna göngu að ræða og má ætla að ef fólk geti gengið að grennd­ar­gámunum geti það sömu­leiðis gengið í Sorpu.

Ástandið við gámana var orðið veru­lega slæmt í gær, annan í páskum, en í dag var búið að tæma gámana og hreinsa í kring um þá. Þó ekki það rusl sem hafði fokið, sem enn er á víð og dreif um svæðið.

Rusl sem fokið hefur um svæðið í kringum gámana, sem vit­an­lega hverfur ekki þegar gám­arnir eru tæmdir.

„Það er búið að kvarta undan umgengni við grennd­ar­stöðv­arnar í Breið­holti í þó nokkurn tíma,“ segir annar íbúi. „Ein stöðin við Arn­ar­bakka var fjar­lægð vegna þessa en það dugði ekki til. Rusl er enn skilið eftir þar.“

Svona er iðu­lega um að lít­ast við Arn­ar­bakka, þótt gám­arnir hafi verið fjar­lægðir. Fólk kemur samt sem áður með hina ótrú­leg­ustu hluti þangað.

Þegar Facebook-síða íbúa Breið­holts er skoðuð kemur í ljós að málið er mikið til umræðu þar. Þar vill einn íbúi meina að þetta komi til vegna gjald­skrár­hækk­unar og þeirrar stað­reyndar að nú fái fólk sektir fyrir að koma með svarta poka á Sorpu. Annar íbúi gefur lítið fyrir þá skýr­ingu og segir vanda­málið hafa verið til staðar löngu áður en sú reglu­gerð var sam­þykkt. „Svona sóða­skapur frá fíflum er ekki til­kom­inn vegna ein­hverra sekta.“

„Mér er eig­in­lega orða vant,“ segir annar íbúi á síð­unni. Af hverju er fólk svona miklir sóðar? Sorpa nokkur hund­ruð metra frá þessum gámum við Selja­braut­ina – ef fólk heldur áfram að skilja draslið sitt eftir á þennan hátt verða þessir gámar fjar­lægðir eins og gerð­ist við Arn­ar­bakk­ann – viljum við það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins