„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ellert óttaðist um son sinn: „Ég opna hurðina og kolsvartur reykjarmökkurinn kemur á móti mér“

Ellert óttaðist um son sinn: „Ég opna hurðina og kolsvartur reykjarmökkurinn kemur á móti mér“

„Að vakna upp um miðja nótt við það að heim­ili manns stendur í ljósum logum er skelfi­leg lífs­reynsla. Eins og að vera fastur í hræði­legri martröð sem þú getur ekki vaknað upp af,“ skrifar Ellert Grét­ars­son, íbúi í Keflavík, sem vakn­aði upp í fyrrin­átt við það að íbúð hans stóð í ljósum logum.Ellert, sem er þekktur ljós­mynd­ari, skrifar slá­andi færslu á Facebook um þessa lífs­reynslu sína. Það var sem krafrta­verk hefði vakið hann.„Það sem vakti mig var svefn­her­berg­is­hurðin sem glamr­aði í hurð­ar­fals­inu, líkt og hún gerði alltaf í jarð­skjálft­unum síð­asta vetur því hún er örlítið laus í fag­inu. Þess vegna hélt ég í svefn­rof­anum að það hefði komið skjálfti. En glamrið varð að þungum höggum, ég hrökk upp og spratt fram úr rúm­inu. Þá fann ég bruna­lykt­ina. Ég opna hurð­ina og kol­svartur reykj­ar­mökk­ur­inn kemur á móti mér,“ skrifar Ellert.Hann býr ásamt syni sínum. Fyrsta hugs­unin var sú að að hann væri í lífs­háska.

Hrópaði á son sinn

„Ég hrópa af öllum lífs og sálar kröftum á strák­inn minn en fékk ekk­ert svar. Náði að kom­ast inn í her­bergið hans en hann var ekki í rúm­inu sínu. Þetta var það skelfi­leg­asta af öllu – að vita ekki um hann,“ skrifar hann.Ellert sá ekki handa sinna skil í kolsvörtu reykj­ar­kóf­inu. Hann reyndi að halda niðrí í sér and­anum og fet­aði sig með­fram veggnum að úti­dyra­hurð­inni og náði að kom­ast fram á stiga­gang.„Ég hafði gripið með mér sím­ann af nátt­borð­inu til að geta hringt á hjálp. Stuttu síðar er slökkvi­liðið komið og Neyð­ar­línan slítur sam­tal­inu. Ég hringi þá í strák­inn minn og til allrar Guðs bless­unar svar­aði hann. Hann hafði ekki verið heima. Allir komust út úr hús­inu heilir á húfi,“ skrifar Ellert.Hann þakkar nágrönnum sínum fyrir þá hug­ul­semi að hlúa að sér þar sem hann stóð hálf­nak­inn fyrir utan heim­ili sitt.

Hrikaleg aðkoma í íbúð­inni.

Íbúðin og inn­búið eru gjör­ó­nýt, eins og sjá má af myndum. Elds­upp­tök munu hafa verið í fjöltengi í stof­unni.„Það dýr­mætasta sem ég á var ekki það sem brann og eyði­lagð­ist heldur fólkið mitt, fjöl­skylda og vinir sem hafa umvafið mig hlýju og kær­leik og hjálpað mér að kom­ast yfir versta áfallið. Þetta er ekki fyrsta áfallið sem ég tekst á við í líf­inu og þá hefur fólkið mitt alltaf verið til staðar. Það er ómet­an­legt að eiga góða að og það er alls ekki sjálf­sagt. Ekkert er sjálf­sagt í hverfug­leika lífs­ins, hvort það sem eru ást­vinir, heilsan eða bara lífið sjálft. Það er ekk­ert víst að það sem þú átt og hefur í dag verði á sínum stað á morgun. Það er engin trygg­ing fyrir því. Verið þess vegna þakk­lát fyrir það sem þið hafið, hugsið minna um það sem þið teljið ykkur vanta. Ræktið þakk­lætið því þakk­lætið er nátengt ham­ingj­unni,“ skrifar Ellert.

Hann segir í sam­tali við Mannlíf að nú sé hann að jafna sig eftir áfallið. Næsta vika fer svo í að huga að trygg­ingum vegna tjóns­ins og koma líf­inu í fastar skorður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldsvoði

Hundaeigandi í Los Angeles fann hvolpinn sinn eftir fimm daga aðskilnað – MYNDSKEIÐ
Heimur

Hunda­eig­andi í Los Angeles fann hvolp­inn sinn eftir fimm daga aðskilnað – MYNDSKEIÐ

Hunda­eig­andi í Los Angeles fann hund sinn aftur eftir fimm daga leit í miðjum elds­voð­anum sem nú skekur borg englanna. Vít­islogarnir sem brennt hafa heilu hverfin í Los Angeles til grunna síð­ustu daga hafa haft áhrif á þús­undir borg­ar­búa en dán­ar­talan er komin upp í 24. Blessuð gælu­dýrin hafa einnig fundið fyrir eyð­ing­ar­mætti elds­ins en í fjöl­miðlum vestra er sagt...
Fræga fólkið gagnrýnt fyrir að sóa vatni í Los Angeles: „Þú ert brandari!“
Heimur

Fræga fólkið gagn­rýnt fyrir að sóa vatni í Los Angeles: „Þú ert brand­ari!“

Nú þegar eld­arnir geisa í Los Angeles hefur meint vatns­óun fjölda fræga per­sóna þar í borg valdið mik­illi reiði. Frægt fólk á borð við Kim Kar­dashian hafa verið skot­mörk á net­inu fyrir „for­rétt­inda­stæla“ eftir að hafa verið sökuð um að sóa vatns­birgðum. Vatns­vernd­ar­ráð­staf­anir voru gerðar í L.A. árið 2022. Regl­urnar fólu í sér að íbúum var aðeins leyft að vökva...
Fyrrverandi barnaleikari meðal látinna í Los Angeles: „Mamma, farðu frá mér“
Heimur

Fyrr­ver­andi barna­leik­ari meðal lát­inna í Los Angeles: „Mamma, farðu frá mér“

Fyrr­ver­andi barna­leik­ar­inn Rory Callum Sykes er einn þeirra 16 sem nú hafa lát­ist vegna eld­anna sem nú brenna í Los Angeles-borg. Hann var 32 ára. Rory, sem var frá Ástralíu, lék í breska sjón­varps­þætt­inum Kiddy Kapers árið 1998. „Það er með mik­illi sorg sem ég verð að til­kynna and­lát fal­lega sonar míns @Rorysykes vegna Malibu-eld­anna,“ sagði móðir hans Shelley Sykes...
Hollywood brennur – Listi fræga fólksins sem misst hefur heimili sín í vítislogunum
Heimur

Hollywood brennur – Listi fræga fólks­ins sem misst hefur heim­ili sín í vít­islog­unum

Fræga fólkið hefur síð­ustu daga farið á sam­fé­lags­miðla til að til­kynna að heim­ili þeirra hafi brunnið í vít­islog­unum, sem hófust fyrr í vik­unni, víðs vegar um Los Angeles, þar á meðal í Hollywood. Hrika­legir skóg­ar­eldar hafa gleypt fjölda heim­ila fræga fólks­ins í Los Angeles, þar á meðal fólks eins og Mark Owen, Paris Hilton og fleiri. Í fjölda­flutn­ingum hafa þús­undir...
Gríðarlegt tjón eftir eldsvoða á markaði í höfuðborg Gana – MYNDSKEIÐ
HeimurEldsvoði

Gríð­ar­legt tjón eftir elds­voða á mark­aði í höf­uð­borg Gana – MYNDSKEIÐ

Mikill eldur kom upp í gær á Kanta­m­anto-mark­aðnum, stóru versl­un­ar­svæði í höf­uð­borg Gana, Accra, og olli miklu tjóni á eignum. Sjón­ar­vottar greindu frá æsi­legum til­raunum fólks á staðnum til að slökkva eld­inn þegar eld­ur­inn breidd­ist út um mark­að­inn og eyði­lagði yfir hund­rað versl­anir. Að sögn neyð­ar­þjón­ustu á staðnum kvikn­aði eld­ur­inn snemma morg­uns, sem varð til þess að 13 slökkvi­liðs­menn voru...
Yfir sex þúsund hænsn drápust í eldsvoða í eggjabúi í Vogum
InnlentEldsvoði

Yfir sex þús­und hænsn drápust í elds­voða í eggja­búi í Vogum

Töluvert tjón varð í nótt þegar eldur kvikn­aði í eggja­bú­inu Nesbúi í Vogum á Vatns­leysu­strönd. Minnsta kosti sex þús­und hænsna­flugar drápust af völdum elds og reyks. Samkvæmt RÚV barst til­kynn­ing um elds­voða í eggja­bú­inu Nesbúi í Vogum á Vatns­leysu­strönd, um mið­næt­ur­bil. Var allt til­tækt slökkvi­lið Bruna­varna Suð­ur­neskja kallað út auk tank­bíls frá Slökkvi­liði Grinda­víkur. Þegar slökkvi­lið kom á vett­vang log­aði...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins