„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
Ingólfur Þór­ar­ins­son

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu.

Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar sem aðili máls óskar eftir upp­lýs­ingum um kæru sem lögð var fram á hendur Ingólfi, betur þekktum undir nafn­inu Ingó veð­urguð, vegna lík­ams­árásar sem sögð er hafa verið framin árið 2017.

Í bréf­inu segir að þann 19. júlí árið 2021 hafi meintur brota­þoli komið til að kæra lík­ams­árás „sem átti sér stað á Hótel Hlemmur Square fyrir fjórum árum síðan.“ Í bréf­inu kemur fram að konan sem lagði fram kæruna hafi verið með­vituð um að brotið væri fyrnt, en hafi þó viljað til­kynna það.

Í útlistun á mót­töku kærunnar segir að konan hafi „farið með Ingólfi Þór­ar­ins­syni á hót­elið og hafi hún byrjað að stunda með honum kyn­líf. Skyndi­lega og upp úr þurru hafi hegðun hans breyst veru­lega og hafi hann farið að hrækja framan í hana.“ Þá kemur fram að kon­unni hafi brugðið og spurt Ingólf hvað hann væri að gera.

„Hafi Ingólfur þá kýlt hana einu sinni í and­litið.“

Umrætt skjá­skot af bréfi Lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Ingólfur sagði á dög­unum eið­svar­inn í dóms­sal að hann hefði aldrei verið kærður fyrir ofbeldi. Þegar frétta­miðlar tóku að birta nafn­lausa frá­sögn konu sem sagð­ist sann­ar­lega hafa lagt fram kæru á hendur honum vegna ofbeldis, skrif­aði Ingólfur pistil þar sem hann fór mik­inn í tengslum við birt­ingu frétt­anna. Þar sagði meðal ann­ars: „Að eg fari svo að kýla konu og hrækja framan í er í besta falli galið en þetta synir hversu langt ákveðnir hópar eru til í að ganga. Hér kemur skýrt fram að ég hef ALDREI verið ákærður fyrir ofbeld­is­brot eða kyn­ferð­is­brot enda aldrei gert slíkt.“

Með pistl­inum birti Ingólfur skjá­skot af tölvu­pósti frá lög­mönnum hans þar sem stað­hæft er að sam­kvæmt yfir­liti frá Rík­is­lög­reglu­stjóra hafi engin kæra verið lögð fram á hendur Ingólfi er varðar ofbeldi eða kyn­ferð­is­brot. Skjal frá Rík­is­lög­reglu­stjóra er þó ekki sýni­legt í skjá­skot­inu, heldur ein­ungis tölvu­póstar lög­mann­anna.

Konan sagð­ist í sam­tali við DV á dög­unum hvorki treysta sér til að koma fram undir nafni né bera vitni í meið­yrða­málum Ingólfs vegna nei­kvæðrar umræðu um þolendur og upp­hróp­anir í sam­fé­lag­inu í kringum mál hans.

„Ég treysti mér ekki til þess að bera vitni í dóms­mál­inu eða koma fram undir nafni og það er ekki vegna þess að ég hræð­ist Ingó sjálfan, hann veit hvað gerð­ist þessa nótt og í fram­hald­inu, heldur vegna þess hversu óvægin og ljót öll opin­ber umræða hefur verið. Ég hræð­ist að það verði gert lítið úr mér eða mér ekki trúað. Ég hef setið og hlustað á vinnu­fé­laga mína verja Ingólf og tala um að konur verði að kæra og að svona mann­orðs­morð séu ekki í lagi,“ sagði konan í sam­tali við DV.

Hún sagði mál sitt hafa verið fyrnt þegar hún kærði, fjórum árum eftir atburð­inn, en að hún hafi gefið skýrslu hjá lög­reglu og látið henni í té myndir sem hún átti af áverkum sem hún hlaut. Hún seg­ist einnig hafa haft vitni sem hún hefði getað kallað til.

Ekki náð­ist í Ingólf við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Þöggunarsamningar voru á borðinu í máli Vítalíu og auðjöfranna – Ari á beinskiptum bíl
InnlentMetoo

Þögg­un­ar­samn­ingar voru á borð­inu í máli Vítalíu og auð­jöfr­anna – Ari á bein­skiptum bíl

Þögg­un­ar­samn­ingar voru á borð­inu í máli Vítalíu Lazarevu og þeirra Þórðar Más Jóhann­es­sonar, Ara Edwald og Hregg­viðs Jóns­sonar. Stundin greinir frá þessu. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var Vítalíu boð­inn samn­ingur þar sem hún átti að fá greidda ákveðna upp­hæð mán­að­ar­lega yfir nokk­urra ára tíma­bil. Viðræður um samn­ing­inn eru sagðar hafa farið fram milli lög­manns Vítalíu og lög­manns mann­anna þriggja, en Vítalía...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins