„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Aðferð fundin upp á Íslandi gegn sýkingum í sílíkonígræðslum: „Þekking til góðs fyrir samfélagið“

Aðferð fundin upp á Íslandi gegn sýkingum í sílíkonígræðslum: „Þekking til góðs fyrir samfélagið“
©Kristinn Ingv­ars­son Mynd: Kristinn Ingvarsson – KRI / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Ný aðferð vís­inda­manna Háskóla Íslands, sem ætlað er að koma í veg fyrir alvar­legar sýk­ingar á yfir­borði síli­konígræðsla og gervi­liða, bar sigur úr býtum í hinni árlegu sam­keppni um Vísinda- og nýsköp­un­ar­verð­laun skól­ans sem fór fram í Hátíða­sal Háskól­ans í gær. Unnið er að því að fá einka­leyfi á tækn­inni sem þróuð er í sam­starfi við fyr­ir­tækin Össur og Primex. 

Sam­keppnin um Vísinda- og nýsköp­un­ar­verð­laun Háskóla Íslands hefur verið haldin í yfir 20 ár undir ýmsum nöfnum. Að þessu sinni bár­ust 27 til­lögur í sam­keppn­ina. Dómefnd, sem skipuð var sér­fræð­ingum innan og utan skól­ans, fór yfir til­lög­urnar og mat þær út frá nýnæmi og frum­leika, útfærslu, sam­fé­lags­legum áhrifum, m.a. út frá heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna, og hvort verk­efnið væri í sam­ræmi við stefnu skól­ans og styddi við starf­semi hans.

Sig­ur­veg­ari í flokknum Heilsa og heil­brigði og í heild­ar­keppn­inni var verk­efnið Lífsam­hæfð og örveru­eyð­andi húðun fyrir síli­kon sem hlaut sam­tals þrjár millj­ónir króna í verð­launafé. Um er að ræða nýja aðferð við örveru­eyð­andi og lífsam­hæfða húðun fyrir síli­konígræðslur og gervi­liði. Sílikon er mikið notað í lækn­inga­tækjum, t.d. gervi­liðum, hjarta­lokum, lyfja­brunnum og þvag­leggjum. Það hefur marga góða eig­in­leika en helsti ókostur þess er myndun bakt­ería og sveppa á yfir­borð­inu sem leitt getur til sýk­inga, sem kunna að vera lífs­hættu­legar, með til­heyr­andi notkun sýkla­lyfja, lengri sjúkra­húsa­vist og auknum kostn­aði fyrir við­kom­andi og sam­fé­lagið.

Dómnefnd keppn­innar telur verk­efnið hafa mikið hag­nýt­ing­ar­gildi og nýnæmi. Um sé að ræða þekkt vanda­mál innan heil­brigð­is­geirans og verk­efnið hafi mik­inn ávinn­ing fyrir þann hóp sjúk­linga sem um ræðir og ekki síður sam­fé­lagið í heild. „Verk­efnið er gott dæmi um að sam­vinna Háskóla Íslands og aðila úr atvinnu­líf­inu leiði til fram­fara og nýrrar þekk­ingar til góðs fyrir sam­fé­lagið,“ segir í umsögn dóm­nefndar.

Að verk­efn­inu standa Vivien Nagy, dokt­or­snemi í lyfja­fræði, og Már Másson, pró­fessor í sömu grein. Þau hafa sótt um einka­leyfi á tækn­inni í sam­starfi við Hug­verka­nefnd Háskóla Íslands og Land­spít­ala og Auðnu tækni­torg. Vivien og Már hafa einnig hug á að stofna sprota­fyr­ir­tæki til að vinna að frek­ari þróun og mark­aðs­setn­ingu upp­finn­ing­ar­innar en verk­efnið er unnið eins og fyrr segir í sam­starfi við Össur ehf. og Primex ehf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins