„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“

Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör.

Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn.

Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra.

Ástarhormón

Vís­inda­menn hafa raunar lengi haft vit­neskju um að oxýtósín teng­ist kær­leika, hjálp­semi og gleði. Þá hefur töl­fræðin jafn­framt leitt í ljós að eldra fólk er hjálp­legra en þeir yngri, ver meiri tíma í sjálf­boða­starf og lætur meira af hendi rakna til hjálp­ar­starfs.

Oxýtósín er hormón sem lík­am­inn fram­leiðir.

Hormónið kall­ast oft „ást­ar­horm­ónið“, sökum þess að við fram­leiðum það m.a. þegar við föðmum aðra, kyssum, gefum brjóst eða stundum kyn­líf.

Oxýtósín er fram­leitt í und­ir­stúku mið­heil­ans.

Hormónið færir okkur ham­ingju- og vellíð­un­ar­til­finn­ingu og er sér­lega mik­il­vægt þegar fólk myndar náin tengsl og teng­ist öðrum nánum böndum.

Konur eru með meira magn af oxýtósíni í lík­am­anum en karlar og efnið kemur oft við sögu í tengslum við brjósta­gjöf og fæð­ingar.

Rann­sóknir gefa til kynna að oxýtósín stuðli að því að við verðum ást­fangin, þannig að þeim ást­fangna finnst hinn aðil­inn vera meira aðlað­andi en nokkur annar.

Gerðar voru rann­sóknir á 100 þátt­tak­endum á bil­inu 18 til 99 ára sem leiddu í ljós að eldra fólk fram­leiðir svo sann­ar­lega þó nokkuð meira magn af þessu heila­efni ást­ar­innar en aðrir.

Í rann­sókn­inni var þátt­tak­end­unum sýnt mynd­band af föður sem er að segja frá syni sínum sem hefur veikst af krabba­meini. Vís­inda­menn­irnir tóku blóð­sýni úr þátt­tak­end­unum fyrir og eftir áhorf mynd­bands­ins.

Vís­inda­menn­irnir drógu jafn­framt þá ályktun að þátt­tak­endur með hærra magn af oxýtósíni í blóð­inu væru lík­legri til að gefa fé til krabba­meins­rann­sókna en þeir þátt­tak­endur sem greindust með minna magn.

Hjálpsemi hrindir af stað jákvæðu ferli

Þátt­tak­end­urnir voru enn fremur beðnir um að svara fimm spurn­ingum um hversu sáttir þeir væru í líf­inu. Eldra fólk var að öllu jöfnu sátt­ara með lífið en þeir yngri og þá einkum eldra fólk sem hafði yfir að ráða miklu magni ást­ar­horm­óns­ins.

Vís­inda­menn­irnir að baki skýrsl­unni leggja áherslu á að þeir geti ekki sagt fyrir víst hvað sé orsök og hvað afleið­ing: mikið magn af oxýtósíni, hjálp­semi eða sátt við lífið.

Í eldri dýra­rann­sóknum töldu vís­inda­menn sig hafa fundið sönnun fyrir því að oxýtósín væri hvetj­andi til að lið­sinna öðrum og að hjálp­semi léti heil­ann fram­leiða meira af oxýtósíni.

Með þessu móti verður oxýtósín, ánægja með lífið og hjálp­semi í garð ann­arra að jákvæðu ferli, þar sem allir þrír þætt­irnir leið­ast meira af hinum tveimur þátt­unum.

Vís­inda­menn að baki rann­sókn­inni hyggj­ast fyrir vikið rann­saka hvort náunga­kær­leikur þeirra grá­hærðu kunni að stafa af auknu oxýtósín­magni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu