„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þingkonan Þórunn segir kerfislægan rasisma á Íslandi: „Leit lögreglu að strokufanga afhjúpaði það“

Þingkonan Þórunn segir kerfislægan rasisma á Íslandi: „Leit lögreglu að strokufanga afhjúpaði það“
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir.

Pistill Þórunnar Svein­bjarnar­dóttur þing­konu er athygl­is­verður og þar segir hún til dæmis:

„Ís­land er að breyt­ast hratt og til hins betra. Eins­leitni er ekki lengur ráð­andi og Ís­lend­ingar eru alls konar. Við sem lítum út fyrir að geta rakið ættir okkar til mið­alda í Ís­lend­inga­bók þurfum að að­lag­ast nýjum veru­leika. Eins og dæmin sanna gengur sú að­lögun upp og ofan.“

Þórunn Bætir við:

„For­senda þess að við getum byggt upp lýð­ræðis­legt fjöl­menn­ingar­sam­fé­lag er að við öll horf­umst í augu við eigin for­dóma, af­neitum þeim ekki, heldur göng­umst við þeim og vinnum með þá.

Hún færir í tal að ras­ismi „getur birst á til­tölu­legan mein­lausan en afar þreyt­andi hátt, til dæmis með því að ein­stak­lingar eru á­varp­aði á ensku í versl­unum og á vinnu­stöðum. Hann getur birst sem á­reiti, beint og ó­beint: Má ég snerta á þér hárið? Hvaðan ertu? Úr Breið­holt­inu? Nei, ég meina HVAÐAN ertu? Hann birt­ist í því að heyra ekki hvað fólk er að segja heldur hvernig það segir það. Og þannig mætti á­fram telja.“

Þórunn vill meina að „í at­huga­semda­kerfum fjöl­miðl­anna virð­ist marka­leysið al­gert. Þar fær hatur­s­orð­ræðan að bólgna út í ó­geð­felldri blöndu af ísla­mófó­bíu, ras­isma og kven­fyrir­litn­ingu. Ég velti því fyrir mér hvort skrif­arar mundu láta það sem þar má lesa út úr sér aug­liti til aug­liti við mann­eskj­una sem um ræðir. Hinum kerf­is­læga ras­isma verður ekki heldur afneitað. Nýlegt dæmi um fram­göngu lög­regl­unnar við leit að stroku­fanga afhjúpaði hann með sárs­auka­fullum hætti. Við erum öll jöfn fyrir lög­unum – eða hvað?“

Þórunn nefnir að „ís­lenskt sam­fé­lag stendur á tíma­mótum og nú reynir á að stjórn­mála­fólk skynji og skilji hlut­verk sitt og á­byrgð og taki for­ystu í bar­átt­unni gegn mis­munun og     ras­isma hér á landi. Eigi það að takast skulum við ekki af­neita veru­leik­anum, heldur viður­kenna eigin for­dóma, vanda okkur í dag­legum sam­skiptum og ráð­ast af öllu afli gegn kerfis­lægum ras­isma,“ skrifar Þórunn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins